Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Side 34

Eimreiðin - 01.01.1910, Side 34
34 því að ekki sé kunnugt um, að neitt hafi það fyrir komið á tíma- bilinu frá dögum Nóa og fram á daga Davíðs, sem hafi getað stytt mannsæfina úr nærfelt iooo árum niður í 70 ár, annað en einmitt breyting á tímatalinu. þessi skýring blaðsins virðist í fljótu bragði afarsennileg, og er mjög líklegt, að hún fái mikinn byr, En oss virðist þó sem ekki séu öll kurl komin til grafar enn, því fleira er hér að athuga en þær tölur, sem blaðið tekur fram. I fyrstu Mósebók 17.17 er Abraham þannig látinn segja (er guð hefir heitið að gefa honum son: ísak): »Mun hundrað ára gamall maður eiga börn, og mun Sara, níræð, ala barn?« Bæði Abraham sjálfur og söguritarinn skoða það því sem yfirnáttúrlegt, að hjón á þeirra aldri geti alið börn. En samkvæmt tímatali því, er blaðið álítur, að notað hafi verið um þær mundir (fimmtungla ár), ætti Abraham þá að hafa verið 41 árs og Sara 37. Eað virðist því tæpast geta talist yfirnáttúr- legt, að þau gætu átt barn á þessum aldri, þó sennilegt sé, að slíkt sé fremur undantekning í Austurlöndum, þar sem konur eld- ast svo snemma. Vér skulum því láta þetta dæmi eiga sig og álíta, að það þurfi ekki að koma í bága við kenningu blaðsins. En þá koma önnur dæmi frá hinum elztu tímum, sem eru erfið- ari viðfangs. I 1. Mós. 5. kap. segir, að Adam hafi verið 130 ára, er hann gat Set, Set 105 ára, er hann gat Enos, Enos 90, er hann gat Kenan, Kenan 70, er hann gat Mahalalel, Mahalalel 75, er hann gat Jared, og Enok 65 ára, er hann gat Metúsalem. Sé nú hvert ár biflíunnar sama sem 1 tunglmánuður, hefir Adam ekki verið nema rúmlega 10 ára (eða á 11. árinu), er hann gat Set. Set hefir verið rúmlega 8 ára (eða á 9. árinu), er hann átti barn, Enos langt kominn á 8. árið, Kenan hátt á 6. árinu, Mahalalel 6 ára, ok Enok ekki nema rúmlega 5 ára (að minsta kosti ekki hálfs sjötta árs), er hann gat Metúsalem, sem þó reyndist jafnkröftugur og lífseigur og raun varð á, — jafnvel þó miðað sé við, að hann hafi ekki orðið nema tæplega áttræður. Auðvitað má segja, að bráðþroski manna hafi verið meiri fyr á öldum en nú, þegar alt uppeldi hneig að líkamsmentun einni. Pað sýna líka fornsögur vorar og fornlög, er 12 ára ungl- ingar eru taldir fullveðja að lögum og leggjast þá í víking. Pá giftust og meyjar, er þær voru 12 ára, eða jafnvel yngri. Og alkunnugt er, að enn meira bráðþroska hafa menn jafnan verið í Suður- og Austurlöndum, en á Norðurlöndum. — En að menn

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.