Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 36

Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 36
36 kyrlátt og góðlátlegt við fjöruna. En öðru hverju tryllist það af hamslausri löngun til þess, að ráða öllu landinu eins og áður. Pá flóir það með sigurópum lengra og lengra inn yfir sandauðn- irnar, rótar burtu grassverðinum við fjörumörkin og ólmast í magnþrota æði við óvinnanleg standbjörgin. En landið stendur fast fyrir og að lokum kýs brimið þann kost að hörfa aftur út fyrir hin fornu takmörk og leggjast þar til hvíldar. Og frá hjarta landsins streymir vatnið stöðugt úr jöklum, vötnum, tjörnum, flóum og flám. Fram hjá hverjum einasta bæ hoppar dálítill bæjarlækur, eftir hverri sveit bugðast á. Pað beljar óstýrilátt í hlíðunum og horfir þunglyndislegt og djúpsætt til him- ins í stórum heiðavötnum. Pað fossar taumlaust og freyðandi af fjöri fram af snarbröttum hömrum og blundar deyfðarlegt og sljóskygnt í leirugum flóum. Én alt leitar það til hafsins og flytur því þá fregn, að í raun og veru sé alt landið vatninu háð og alt gjaldi það því ógrynni skatts. Og allar öldurnar utan af hafi leita til lands, til þess að taka á móti ánum og tengja eilíf vináttubönd milli vatnsins í kringum landið og vatnsins inni í landinu. Alla liti og öll hljóð ber vatnið í skauti sínu. Pví er jafn- lagið að spegla grámyglulega haustþokuna og heiðstirndan, víð- hvelfdan vetrarnæturhimininn. Pví ferst jafnsnildarlega að mála tunglið með kvikasilfri og sólina með glampandi lýsigulli. í*að leikur á mjúka vonarstrengi undir hugsanir sveitastúlkunnar, sem situr við lækinn við þvott, og hefur látið hendurnar falla í kjöltu sér í óljósum ástardraumum. Pað kveinar í örvæntingu með ekkj- unni, sem leitar að líki mannsins síns í fjörunni, með hárið flax- andi í ofviðrinu. Pað hvíslar framtíðarvonunum að unglingnum og fortíðardraumunum að hvíthærðum öldungnum. Pað getur sollið af sjóðandi fýsn og logandi hatri, titrað af ást og unaði og runn- ið hægt og blíðlega í kyrlátri nautn. Og Þ'6 getið haldið, að ég skildi ykkur ekki! Ég, sem finn taugar mínar titra og hjarta mitt slá eftir hljóðfallinu í gjálpinu ykkar. Ég, fóstursonur vatnsins. Verið þið sælar, Eystrasalts öldur. Nú liggja leiðir mínar frá hafinu, inn til fjallanna, inn í laufhvolf skóganna.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.