Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 48

Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 48
48 »Hlaðið byssurnar!« hrópar ofurstinn, og skrjáfið af hleðslu- stokkunum heyrist í tinnuhlaupunum. Pá er hrundið upp hliðinu á fangelsisgarðinum, og tveir menn ríðandi koma á harða stökki. Sá, sem er á undan, hefir gráan feld yfir sér og þríhyrndan hatt á höfði. Jafnskjótt og hann er kominn í augsýn, hljómar hvellandi: »Keisarinn lifi!« Napóleon stökkur af baki og kastar taumunum til meðreiðar- manns síns. Síðan gengur hann að Pitois, réttir honum hendina og segir: sPú hefir bætt fyrir brot þitt. Pú skalt ekki deyja. Eg fyrirgef þér, af því þú hefir elskað móður þína svo heitt. Pierre Pitois, ég geri þig að liðsforingja í lífverði mínum. Ekki getur hjá því farið, að jafntrúfastur sonur hljóti líka að vera trúfastur hermaður!« Pessum orðum var tekið með dynjandi fagnaðarópi. En Pitois brast í grát af þakklæti og gleði. Herforinginn, sem heimsótt hafði Pitois í fangaklefanum um miðnættisbilið, hafði sem sé enginn annar verið en Napóleon sjálfur. Sex árum síðar, 18. júní 1815, féll ofurstinn hrausti, Pitois, við Waterloo. (Þýtt af V. G.). Ny notkun mómýra. Franskur vísindamaður, prófessor Mutz í París, hefir fundið upp á að nota mómýrar til að framleiða saltpétur. Hann hefir sem sé uppgötvað bakteríu, sem dregur til sín köfnunarefni, og þessi baktería þrifst sérstaklega vel á mó. Aðferð prófessor Mutz er sú, að fyrst er borið kalk og ammóníakvatn á stórt mómýra- svæði, og því næst er bakteríunum sáð á þetta svæði. Af hverj- um hektar í mómýrinni kvað með þessu móti mega fá 48,000 smálestir af saltpétri á ári. Og mórinn er jafngóður til eldiviðar eftir sem áður, þó hann hafi verið þannig notaður til að framleiða saltpétur. Ekki annað en stinga hann upp í hnausa og ná síðan ammóníakvatninu úr honum.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.