Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 49
49
Reynist þessi nýja notkun mómýranna eins vel og af er
látið, getur það orðið eigi alllítið hagræði og gróðavegur fyrir
eigendur mómýra.
Annar vísindamaður, von Morsey-Picard, hefir fundið upp
nýja aðferð til að flýta fyrir þurkun á mó, sem farið er að nota
í Luneburg og kvað reynast ágætlega. Aðferðin er sú, að sterkum
rafmagnsstraumi er hleypt í gegnum móinn, áður en hann er
stunginn og meðan hann er vel votur. Verður þá sú efnabreyting
í mónum, að vætan næst fljótt úr honum. En breytingin hefir
þó engin óþægindi í för með sér, því hann er jafngóður til elds-
neytis, og samloðunin hin sama, svo hann molnar ekki. En með
þessu móti er miklu hægra að flytja móinn langar leiðir og gera
hann að verzlunarvöru, með því að kostnaðurinn við þurkun hans
og flutning verður miklu minni. V. G.
Loftsiglingar og fluglist.
Eftir GXJÐM. G. BÁRÐARSON.
Vér mennirnir erum láðs, en ekki lagardýr, og sízt af öllu
erum vér frá náttúrunnar hendi lagaðir til flugs.
I öndverðu hafa menn orðið að fara allra sinna ferða gang-
andi, en seint þykir oss ferðin oft ganga með því móti, og margur
verður farartálminn, bæði ár, vötn, höf og hamrar. En andlegt
atgervi höfum vér hlotið, sem hefir gert oss að drotnum heimsins
og fyrir þá sök höfum vér lært að temja farskjótana og hagnýta
náttúrukraftana til að hraða ferðinni og yfirstíga torfærurnar; fyrst
koma söðlaðir reiðskjótar, síðan eimvagnar og rafmagnsvagnar,
sem þjóta með ofurhraða landshornanna á milli. Fyrir mörgum
þúsundum ára hafa forfeður vorir hætt sér út á hafið; í fyrstu
hafa þeir orðið að »ýtast á árum á bárum«, svo drógu þeir upp
segl og lærðu að aka þeim eftir vindi; loks fyrir hér um bil ioo
árum taka eimskipin við; þá fyrst geta menn kosið sér byr og
beitt beint í vindinn, — eins og forneskjumennirnir fyr á öldum, —
og farið nokkurn veginn fullra ferða sinna, hvernig sem blæs.
Að lokum koma svo kafskipin til sögunnar, þau geta stungið sér
eins og hvalirnir, og eru þá flestar leiðir hafsins kannaðar.
4