Eimreiðin - 01.01.1910, Side 58
58
Nú var komið kapp í Pjóðverja, svo eigi brast Zeppelín fé
til nýrra tilrauna, jafnvel keisarinn hljóp undir bagga. Nýtt skip
var smíðað, og Zeppelín reyndi það í október 1906. Varð hann
undir eins að setja það í naust aftur og gera það betur úr garði.
Um haustið 1907 var björninn unninn. Pá var skip hans orðið
hraðskreiðara en önnur loftskip og gat svifið lengur í lofti; en
ekki lét það eins
vel að stjórn og
þau frakknesku.
Pá studdi þýzka
ríkið hann til að
smíða nýtt loft-
skip, er vera skyldi
miklu stærra og
fullkomnara. Smíð-
inu var lokið vor-
ið 1908 og skipið
hlaut nafnið Zeppe-
lín IV, því það var
«■ fjórða skipið, sem
hann hafði smíðað.
1. júlí lagði það
upp frá smíðastöð-
inni í Friedrichs-
hafen, og sveif
yfir nokkrar borg-
ir í næstu héruð-
um, og kom svo
aftur um kveldið.
Skipið vakti mestu
aðdáun allra, er
sáu það. Pað lét
ágætlega að stjórn,
ýmist var því stýrt nærri jörðu, eða látið svífa yfir fjöll og hæðir.
Pessi för Zeppelíns greifa var sannkölluð sigurför, og frægð hans
flaug eftir símanum um allan heim, enda var hann nú kominn
langt fram úr öllum öðrum í loftsiglingum. Petta loftskip hafði
60 km. (8 mílna) hraða á kl.stund, og gat svifið að minsta kosti
12 stundir í lofti.
3. Zeppelín greifi.