Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Side 67

Eimreiðin - 01.01.1910, Side 67
67 JÓN HELGASON: PRESTARNIR OG J ÁTNIN G ARRITIN (sérpr.). Rvík 1909. Ritgerð þessi, sem er »að stofninum til inngangsorð til umræðu, flutt á prestastefnunni á Þingvelli 1909«, er ákaflega tímabær um þessar mundir, sérstaklega þegar litið er til deilu landa vorra í Vestur- heimi. í henni er einkarglögt og gagnort yfirlit yfir játningarrit lútersku kirkjunnar og sögulegan uppruna þeirra, og sýnt fram á með fullum rökum, að þau séu að eins mannasetningar, sem ekkert vit sé í, að ætlast til að hafi ævarandi gildi. Þau séu að eins marksteinar á fram- sóknarbraut kirkjunnar, er sýni, hvernig menn á þeim og þeim tímum skildu ritninguna og kristindóminn. En nú sé skilningur manna í ýms- um greinum orðinn annar, og það verði því ekki réttlætt, að heitbinda kennimenn kirkjunnar við útlistanir löngu liðinna alda á sannindum kristindómsins, eins og þar væri um hinn algjöra sannleik að ræða. En það, sem þó öllu öðru fremur geri kröfuna um kenningarfrelsi presta réttmæta, sé þó það, að eiðbinding eða heitbinding prestanna við játningarritin ríði algerlega í bága við höfuðfrumreglu lútersku kirkjunnar, sem sé sú, að heilög ritning skuli vera hin eina óbrigðula regla og mælisnúra trúar og kenningar í kirkjunni á öllum tímum, af því að ritningin ein hafi að geyma hinn eilífa og óbreytilega sannleika til sáluhjálpar. Það er hreint og beint hressandi, að sjá jafndjarfmannlegar og frjálslyndar skoðanir settar fram af forstöðumanni prestaskóla vors. Og sannarlega erum vér honum samdóma um það, að hin gömlu játningarrit kirkjunnar séu svo úrelt orðin, að ekki sé rétt að heitbinda presta vora við þau. En ekki getum vér þó verið honum algerlega samdóma um það, að ekkert eigi að koma í staðinn fyrir þau, — ekki binda prestana við neitt, nema loforð um að þeir skuli kenna samkvæmt guðs orði í ritningunni eftir beztu samvizku. Þó að enginn efi sé á, að þessi leið mundi reynast ágæt til að víkja á bug hræsni og yfirdrepskap, erum vér þó hræddir um að kenna mundi allmikillar hálku á þeirri braut og hún jafnvel geta orðið stórhættuleg fyrir kirkj- una með tímanum. Því ef hver á að hafa leyfi til að skilja og skýra ritninguna eins og honum þóknast, þá er hætt við, að skýringarnar verði margar og margvíslegar, og mundi þá skjótt koma fram mikið ósamræmi í kenningum prestanna. Sumir mundu álíta alla ritninguna guðs orð, en aðrir mundu samkvæmt biflíugagnrýninni nýju varpa svo og svo miklu á glæ. Ósamræmi kenninganna hlyti að vekja sundur- þykkju, og er þá hætt við, að kirkjufélagið mundi skjótt rofna, eins og hvert það ríki, sem er í sjálfu sér sundurþykt. Vér getum því eigi betur séð, en að nauðsyn sé á einhveiju frekara bandi en skilningi hvers einstaklings á ritningunni, ef máttarviðir kirkjunnar eiga ekki að gliðna í sundur. V. G. ARAMOT. V. ár. Winnipeg 1909. í þessum árgangi kveður mest að ritgerð eftir séra Jón Bjarna- son: »Sjálfsvörn«, þar sem hann- rekur æfiferil sinn og framkomu í trúmálum. Auk hennar eru þar 3 aðrar ritgerðir: »Trúarlegt víðsýni« eftir séra Björn B. Jónsson, »Gildi heilagrar ritningar« eftir séra 5

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.