Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1911, Síða 2

Eimreiðin - 01.05.1911, Síða 2
78 með þjóösálarinnar eigin hendi. Pjóðirnar geyma nær æfinlega stórmenni sín í lifanda minni, sem menjagrip eða fasteign. En um leið fegra þær og magna mynd hetjunnar, svo hún skýrist sem bezt og verði sem líkust — ekki veruleikanum, sem var, heldur þjóðarinnar eigin hugsuðu mynd og líkingu. Pessu hrýs sagnfræðingnum hugur við að hreyfa, því að ljósmyndir eru brot- hættar. Vilji hann leita réttra heimilda og fullra raka, veit hann fyrir, að skuggar muni falla á myndina, því að »tvinnað er æ í athöfn manna ilt og gott sem dæmin votta.« En ætli hann sér að semja sögu hetjunnar þannig, að alþýðu-myndin héldi sér hreinni, verður hann gullgerðar-maður, en ekki sagnameistari; enda er það hið sama og að vilja gylla gull. Eg hef nú miklu léttara verkefni að leysa, og vil einungis reyna að mynda stutt sýnishorn af Jóni biskupi og samtíð hans, og verð að vísa þeim, sem meiri fróðleiks æskja, til sjálfra heimildanna, sem flestar eru komnar á prent; hefi ég fyrir löngu kynt mér þær allar, án þess að koma þeim saman; það er og víða ekki unt. Langbeztu not hefi ég haft af Árbókum Espólíns, því þótt hann þá hefði ekki nær allar þær heimildir, sem vér nú höfum, og frásögn hans sé stundum athugaverð, geta fáir farið betur með sögur en sá meistari; og um Jón Arason tókst honum einna bezt að rita og eflaust næst hinu sanna. Jón Arason var borinn árið 1484 (ári síðar en hans mikli samtíðarmaður Lúther) á Syðra-Laugalandi í Eyjafirði; var hann kominn af hinum beztu ættum, þótt foreldrar hans væri engir auðmenn. Var Ari faðir hans sonur Sigurðar príors á Möðru- völlum, en Elín móðir Jóns var frændkona Einars ábóta ísleifs- sonar á Pverá, er var góður maður og réttvís. Móðir Jóns varð snemma ekkja og fluttist þá með einkason sinn Jón að smábýlinu Grýtu, skamt frá klaustrinu á Pverá. Hún var engin búkona, en Jón óþroskaður; lifðu þau því við lítinn kost. Eitt sinn hafði Jón leitt heim á til skurðar úr innstæðu jarðarinnar, og hafði lagt niður, en í því kom móðir hans að, og bað hann bíða, meðan hún vitjaði um kú sína. Jón gerði svo, og kom þá móðir hans með það fagnaðarerindi, að kýrin væri borin. »E*á verð ég eitthvað annað en sauðaþjófur,« svaraði piltur. Á klaustrinn var

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.