Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1911, Side 7

Eimreiðin - 01.05.1911, Side 7
83 Hrafni. En hvorki studdi þessi nýi auður hamingju biskups né Hrafns, því tveim árum síöar lét Hrafn líf sitt í einvígi fyrir sveini sínum, sem hann neyddi til að þreyta vígfimi við sig. Börðust þeir fyrir bæjardyrum í Glaumbæ, þar sem Teitur hafði síðast stigið á hest sinn, er hann kvaddi Glaumbæ og mælti bölbænir yfir þeim, sem við tæki. Tórunn ekkja Hrafns hvarf við það heim aftur til Hóla, og var þá 16 ára; var kallað, að hún hefði alið barn við Hrafni, og því hafi Jón bp. tekið til sín eignirnar. Nokkru síðar gifti hann hana ísleifi sýslumanni á Grund í Eyjafirði, og bjó hún þar síðan; þótti hún skörungur mikill, en ærið stórráð. Var ísleifur stórauðugur, en varð ekki gamall; giftist þá þórunn í þriðja sinni, fornkunningja sínum, Porsteini syni Guðmundar undir Felli, Andréssonar. Ekki átti hún afkvæmi, sem lifði. Glaumbæ gerði Jón bp. að prestsetri, áður en þeim stað varð náð af honum af erfingja Teits, og hefur þar prestur verið síðan. Lýkur nú hér að segja frá hinum fyrri stórræðum Jóns bps. Mátti nú heita að hann sæti í góðum friði alllanga hríð, eða jafnvel þangað til 1548, að uppreist hans hófst og afskifti í Skál- holtsstifti. Skal nú geta barna hans og Helgu. Tau voru 6 og af þeim tvær dætur, og hef ég minst á Pórunní. Hin hét Helga. Hana gifti biskup Eyjólfi í Stóradal undir Eyjafjöllum, Einarssyni, Eyjólfssonar lögmanns. Hann taldi sér 6 hundr. hundraða. Pau áttu margt barna og urðu kynsæl. Magnús hét hinn elzti sona þeirra Jóns og Helgu og varð prestur á Grenjaðarstað. Hann andaðist ungur og flutti þá í hans stað næsti sonurinn, hinn nafnkunni séra Sigurður, er þann stað hélt lengi eftir daga föður síns; var hann tvisvar kjörinn biskup til Hóla, en Danir ónýttu kosning hans í bæði skifti; en þó var hann spakmenni mikið og hélt uppi höfðingskap föður síns meðan hann lifði og var stór- auðugur, enda fylgði honum dóttir Péturs Loftssonar í Stóradal. Ari varð lögmaður fyrir tilstilli föður síns eftir Hrafn, og þótti þó ærið ungur, en hann var manna bezt á sig kominn, lagamaður mikill og forvitri. Hann bjó í Möðrufelli og átti Halldóru frá Möðruvöllum, dóttur Porleifs hins ríka, Grímssonar. Síra Björn var hinn 4., eins og kunnugt er. Honum fylgdi Steinunn dóttir Jóns sýslumanns á Svalbarði. Hann var og stórauðugur, en heldur þótti hann ribbaldi; en Steinunn þótti hið mesta kvennval og líkust bróður sínum Magnúsi prúða; þau síra Björn sátu á Mel í Miðfirði, og gekk þeirra rausn næst Jóns bps. sjálfs, en ekki

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.