Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1911, Side 13

Eimreiðin - 01.05.1911, Side 13
8g tekinn og fluttur utan blindur. Hvað skyldi nú til bragðs taka? Urræðin urðu þau, að bisbup sneri norður aftur, en Ari ritaði lögréttunni og sagði af sér lögmenskunni. Síðan sendi Jón biskup Sigurð son sinn utan á konungsfund og bað leyfis að halda við hinn forna sið, en hindra ekki að öðru leyti kirkjuskipan konungs. Sigurður kom aftur með þetta leyfi.1) Lét nú biskup vera kyrt. Tók hann það ráð að gera tyllisætt við Gissur, eins og fyr við Ogmund, því að hann vissi, að Gissur var hinn slungnasti ráða- gerðarmaður, en hafði ótakmarkað konungstraust, enda sá hann fyrir, að hinn nýi biskup mundi ekki verða ofsæll í tigninni, eins og brátt sýndi sig, að hávaðinn af klerkdóminum og nálega öll alþýðan var honum þrjózkt og óhlýðið, óðara en hann reyndi til að bæta siðina. Fór því alt skipulega, en vináttulaust, milli biskupanna, meðan Gissur lifði. Pó tók Jóni loksins að leiðast kyrsetan, og víkingslundin enn að gera vart við sig, og það var sú ástríða, sem ein benti á eitthvað sjúkt eða eitthvert ósjálf- ræði í fari hans. Hann gat ekki gleymt Bjarnarnesseignunum, er Skálholtsbiskup hefði keypt ranglega af Teiti, sekum manni og útlaga. Hann hóf því reið mikla þangað 1545, en náði litlu, og fór því aftur austur 1547 og tók þá Bjarnarnes og það, sem hann náði. Pá ritaði Gissur honum þungyrt bréf og kvað hann gera lagabrot, því að eignirnar lægi undir konungsdómi. Ekki kipti Jón bp. sér upp við það, heldur reið samsumars vestur í Vatns- fjörð, því hann þóttist hafa einhverjar heimildir fyrir þeim stað. En síra Jón Eiríksson, er þar bjó, hafði margt manna fyrir, og tók viturlegt ráð. Hann sló upp stórveizlu fyrir biskup. Blíðkaðist hann svo við það, að málið jafnaðist að mestu; skildu þeir nafnar vel. I Vatsnsfirði leizt biskupi vel á sig og mintist Vatnsíjarðar- Kristínar. sem vísan sýnir: Virðist mér Vatnsfjörðr vera, það sem sagt er, heiðarlega húsaðr horfinn um með grænt torf. Kristín hefir bygt bezt og búið þar rík frú. Hann tel ég heppinn, sem hlotið getur það slot. Og nú komu uppreistarárin 1548 til 1550. Og skal ég þá fara fljótt yflr sögu, enda er hér atburðaröðin ljós og óyggjandi. ') I3etta mun miður nákvæmt sjá hinum háttv. höf. — Sjá- Siðbótarsögu F B. bls. 67. RITSTJ.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.