Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1911, Síða 16

Eimreiðin - 01.05.1911, Síða 16
92 riðið af þingi. Pegar biskup hafði sýslað það, er hann vildi, reið hann í Skálholt írieð allan flokk sinn og hafði Martein í broddi fylkingar. Par var enn sem fyr órugg fylking hermanna fyrir. Og er staðarmenn hikuðu við að leyfa Hólabiskupi aðgöngu að staðnum, lét hann Martein rita bónarbréf heim, að menn skyldu veita Jóni biskupi móttöku og full grið, því að líf sitt væri í veði. fetta dugði, og er inn kom, grýtti síra Jón Bjarnason staðarlyklunum í Martein og bað hann ábyrgjast. Par sat svo Jón bp. nokkra daga og umrótaði öllu, sem hann vildi, lét hreinsa og vígja upp dómkirkjuna, grafa upp lík Gissurar bps. og jarða utan garðs; síðan vígði hann nokkra presta, og ekki gleymdi hann Bjarnarnessjörðunum og lét 12 menn, og suma að sögn sárnauðuga, dæma sér þær. Loks lýsti hann yfir því, að hann hefði tekið að sér umsjón Skálholtsstiftis að íslenzkum lögum. .Ætlaði hann síra Birni syni sínum biskupsdæmið, en síra Jóni skipaði hann yfir staðinn sem fyr; en Martein skyldi þar engu ráða, heldur fara vestur til bús síns. Og það gerði hann. Pá er haft eftir J. A., að nú hefði hann alt ísland á valdi sínu, nema 1J/2 kotungsson. Meinti hann þá Pétur og Martein bp., bræður. Úr Skálholti reið biskup til Viðeyjar, setti aftur klaustrið, en rak Múla hirðstjóra og alla aðra Dani út á skip. faðan reið hann vestur til Helgafells og viðrétti klaustrið þar, en rak burt umboðs- mennina. Daða náði hann ekki, en setti honum dag, þá er liði á sumarið. Að þessu búnu reið hann heim, og gat þá með góðri samvizku sungið: Nú er hann kominn til Hóla heim, o. sv. frv. Nálega ótrúleg þrekraun hefur slíkt ferðalag, auk alls annars, verið meira en hálfsjötugum manni. Pví vegalengdin fram og aftur er eflaust nærfelt 200 mílur! Um haustið vildi Jón bp. endilega skreppa vestur í Dali til fundar við Daða; réð kona hans honum alvarlega frá þeirri ferð, en — tíminn var kominn, og biskup lét sig ekki letja. Hann hafði eina 30 (ýgjaða menn með sér og sonu sína báða. I Borgar- firði safnaði hann vinum sínum til fylgdar, og urðu þeir alls um 90 manns. Peir settust að á Sauðafelli, öðru höfuðbóli Daða, og skamman veg frá Snóksdal. Par kom Ormur til að setja dóminn, en Daði ekki. Var sá galli á Ormi, að honum trúðu hvorki vinir hans né óvinir, svo hjóllyndur var hann. Hafði hann selt síra Birni Sauðafell, eða heitið að selja, en fullselt það Daða. Og

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.