Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1911, Page 21

Eimreiðin - 01.05.1911, Page 21
97 hugann blíðkar heilagt sumarkvöld; uppi’ í lofti ómar fugla-kliður, undir tekur harnrafossins niður, breikkar tóna-bylgjan — þúsundföld. Upp í fjarskann andans sjónir miða, iða smá-ský, tvístrast þar og riða bjartir möskvar bylgjum loftsins á; á þeim festist fjöldi himinljósa, fjærst í vestri er úða-bakki rósa, í austri’ er skýlaus uppheims-höllin blá. Daggarblæjur liðast lofts í hæðum — líkt og faldar blakti’ á töfraslæðum, birtast, hverfa, breiðast fjær og nær; frjálsar dansa’ í friði sólar-hallar fagurskrýddar Huldur loftsins allar; Alvalds kraftur uppheims-strengi slær. Leiðast smá-ský ljóss á örmum þöndum — líkt og englar taki saman höndum; iða vængir eilífðar um geim; — en við hafsbrún yzt hjá vestur-ströndum, aftan-sól, sem lampa í hjálmaböndum, lætur drottinn loga handa þeim. III. PÚ, HLJÓMSINS GUÐ. Pú, hljómsins guð! með víðtækt undra-veldi, þinn vængja-máttur lyftir þreyttum hug, er flý ég til þín, inni — einn — á kveldi, þú afl mér glæðir við þitt tóna-flug; þú friðinn ber! ég fagna þér! þú fýlgir mér til hugsjónanna landa, með himin-sælu eilífðar í anda; — minn uppheims guð! ég fagna þér!

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.