Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1911, Qupperneq 25

Eimreiðin - 01.05.1911, Qupperneq 25
IOI huga. Ef þú því vilt ná hylli húsbænda þinna, þá taktu eftir, hvar þeir eru veikir fyrir, því hvert einasta mannsbarn hefir sína breysk- leika. Neyttu svo skynseminnar, vertu einlæg og einföld sem dúfa, en jafnframt séð sem höggormur, og þér mun vel farnast. Vertu ekki að fást við að leiðrétta óvanda og bresti hjá öðrum. Þú hefir enga köllun til slíks enn þá. Þú skalt ekki samsinna því í orði, sem þú getur ekki verið annað en mótfallin í hjarta þínu; en þú getur þagað og leynt hugsun þinni, þegar þú áynnir ekkert með því að tala, en mundir aðeins skaða sjálfa þig og álit manna á þér. Mundu vel eftir þessu, elsku dóttir mln, því þig vantar enn nægi- lega lífsreynslu og hyggindi, og verður því altof gjarnt, að láta þína sönnu skoðun í ljósi á mönnum og málefnum. Komstu á snoðir um, hvað húsmóður þinni er geðfeldast, og hvernig henni geðjast bezt að því, og hagaðu þér svo eftir því, sem þér er framast unt. Þegar þú fyrst ert komin »inn undir« hjá henni, sem kallað er, getur þú brátt farið að leika meir lausum hala. Mundu ávalt eftir því, að þeir, sem dæma vægt um aðra, geta líka krafist vægra dóma af þeim. En þeir, sem fella harða og hlífðar- lausa dóma, geta vænst samskonar dóma af öðrum. Sá maður er ætíð velkominn, sem menn vita, að aldrei beitir kærleikslausri gagn- rýni, en hinum reyna menn helzt að bægja burtu, sem menn vita, að grípur hvert tækifæri til að gagnrýna menn og málefni. 4. Haf gát á hjarta þínu! Hlustaðu ekki á orð smjaðrarans, því hann er að jafnaði glepjandi tálseggur, og orð hans smáskamta- eitur, sem dreypt er í hjörtun, án þess menn verði þess varir. Eg þarf ekki að segja þér, að sá dagur, er heiðvirður maður bæði um hönd þína og hjarta, og þú gæfir honum hvorttveggja, — sá dagur mundi verða foreldrum þínum sannur gleðidagur. En það verð ég að segja þér, elsku dóttir mín, að jafneðlileg og sú ósk er hjá konunni, og jafnsæl og sú stúlka er, sem eignast góðan og göfugan mann, þá er þetta skref svo mikilvægt og áríðandi, að það verður ákaflega vandlega að íhugast. l’ví hve oft mega menn ekki sanna, að »ekki er alt sem sýnist« ? Hversu oft hefir það ekki við borið, að stúlka, sem hélt, að hún hefði gefið vönduðum og trúföstum manni hönd sína og hjarta, hefir orðið fyrir sárri blekkingu! Guð gefi, að dóttir mín elskuleg megi aldrei verða fyrir þess konar táli og svikum, því ég er hræddur um, að það mundi ríða þér að fullu. Sýndu mér því fullan trúnað í þeim efnum, og öll þau ráð, sem ástrlkast hjarta getur í té látið, þau skulu þér í té látin af föður þín- um og þinni góðu móður. Við óskum ekki að gefa þér önnur ráð en ástsamleg. Snúðu þér þessvegna fyrst til okkar, — þú veizt, að enginn vill þér eins hjartanlega vel og við. 5. Vertu kát og kurteis bæði i samkvæmum og heima fyrir. Forðastu alt smjaður, en haf þó kátínu þína í hófi. Láttu hana ekki verða að taumlausri ofsakakæti. Af öllu má ofmikið gera. 6. Forðastu öfundsýki, sem er hræðilegur löstur. J’að er hættu- legt að gefa þeim bresti nokkurt rúm í hjarta voru, því hann ban- eitrar brátt hveija sál, sem hann hefir fest rætur i. 7. Gerðu það, sem þú getur, til að venja þig á háttprúða fram-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.