Eimreiðin - 01.05.1911, Side 55
En það fór ekki betur í Berlín. Reyndar fékk hún þar eftir
margar árangurslausar tilraunir og langt flakk loksins atvinnu hjá
einum meistara, — en hér fór sem fyr, að atvinnan reyndist
stopul, því — »hinir sveinarnir — —«.
Og svo sneri hún aftur til Hamborgar með tóm vonbrigði í
vasanum.
Hún hætti nú að leita sér atvinnu, þar sem það reyndist
árangurslaust og tímatöf ein, og braut nú odd af oflæti sínu og
þáði styrk frá systkinum sínum, til þess að geta sótt kenslu í iðn-
skóla og málaraskóla í Hamborg. Hún tók þátt í bæði morgun-,
miðdags- og kveldkenslu, og fékk sér líka kenslu á sunnudögum.
Hún neitaði sér um allar skemtanir og allar frístundir, lifði við
reglulegan sult og seyru, seldi sín dýru, íslenzku silfurspensl og
silfurhnappa, hvað á fætur öðru, — og komst svo loksins svo
langt, að hún í maí 1910 stóðst meistarapróf hjá dómnefnd, er í
sátu 5 málarameistarar í Hamborg.
Nú er hún sjálfstæður málarameistari í Kaupmannahöfn, í fé-
lagi við annan kvenmálara, fröken Karen Hansen, sem fengið
hefir mentun sína í Buxtehuder-málaraskólanum, — og þær hafa
kven-lærisveina. Vilji menn með eigin augum sjá, hvernig fyrsta
kven-málarafélagið þrífst og blómgast, þá er ekki annað en að
bregða sér inn í vinnustofuna hennar Ástu meistara í Peder Skrams-
götu 19 í Khöfn.
Framanskráð grein er hér tekin (í þýðingu) eftir þýzka blað-
inu »Frauen-Fortschritt« (10. nóv. 1910). Hún er valin nokkuð
af handahófi úr þeim mörgu greinum, sem ritaðar hafa verið um
fröken Ástu Árnadóttur í þýzkum og dönskum blöðum, af því
hún er stutt og laggóð, en rúm Eimr. takmarkað. Hins vegar
þótti rétt, að lesendur vorir fengju að sjá eitthvað af því, sem
ritað hefir verið um þessa íslenzku stúlku og baráttu hennar,
sem er svo átakanlega eftirtektarverð — og jafnframt svo eftir-
breytnisverð.
Pví hvað er fremur eftirbreytnisvert en þetta: Fátæk og
umkomulaus stúlka brýtur bág við rótgróið almenningsálit, bæði
hjá kynsystrum sínum og karlmönnum og ryður sér nýja braut
til frægðar og frama. Hún lætur hvorki bugast af örbirgð né