Eimreiðin - 01.05.1911, Blaðsíða 58
134
Smáhendur.
I. ALSÆLA.
I hallanum ligg ég og horfi’ út í geiminn,
á himinblámann og fugla-sveiminn;
á trjánum kringum mig blöðin bærast
og blessuð sólin, hún ljómar skærast;
og blómin anga í brekkunni fríðri
og börnin sér leika á flötinni víðri; —
á alsælu vantar ei annað en þig,
ástin mín! — til að kyssa mig.
II. HATUR.
Eg hata — hvern heldurðu? — vindinn,
er hamast sem ástfanginn sveinn;
munninn þinn — minn — hann kyssir,
meðan ég heima sit einn.
ALEXANDER JÓHANNESSON.
Bréf frá Finni biskupi.
Bréf það, er hér fer á eftir, frá Finni Jónssyni biskupi, er geymt
i bréfasafni Gríms Thorkelíns í Ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn;
hvernig það er þangað komið veit ég ekki. A því stendur ekki, til
hvers það sé ritað, en það er auðvelt að ráða af efni þess, að það
er til síra Björns Halldórssonar £ Sauðlauksdal, prófasts í Barðastrandar-
sýslu.
Velæruverðuge Hra Præposite,
Bref yðar með Skólapilltum í haust meðtekeð af dato 13 7br. og
því fylgiande blöð, þacka eg kiærlega, þa feck eg ecke tíma til að