Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1911, Side 61

Eimreiðin - 01.05.1911, Side 61
137 legar ríkisstofnanir — með öðrum orðum afnema það eftirlit ríkis- valdsins, sem enn þá er í gildi —• og heimila líka uppsögn á hin- um sameiginlega fæðingjarétti. Og Danir mundu heldur aldrei fá mikla ánægju af þeirri alríkisskipan, sem að dæmi Stöðulaganna er gert ráð fyrir í 6. gr. Uppkastsins, að stofna megi til, þó þetta sé enn ógreinilegar orðað þar en í Stöðulögunum. Pví það er ljóst, að séu þau mál, sem sameiginleg eru samkvæmt Stööulög- unum, of fá til þess, að á þeim verði bygðar sameiginlegar ríkis- stofnanir, t. d. sérstakt þing fyrir alt ríkið, þá mundi það reynast frágangssök, að kalla sérstaka þjóðfulltrúa frá Islandi, til þess ásamt dönskum fulltrúum að ræða einungis þau fáu mál, sem eftir yrðu, þegar aðeins utanríkismál og hervarnir ættu að vera sam- eiginleg. En þar við bætist, að munurinn á fólksfjölda Danmerkur og íslands er altof átakanlegur til þess, að Danir gætu gert sér að góðu, að íslendingar, sem eru 30 sinnum færri, hefðu jafnmarga fulltrúa eða jafnan atkvæðisrétt; og fulltrúamagn eftir fólkstölu einni, sem ekki mundi gefa Islandi meiri atkvæðisrétt en Lálandi og Falstri, mundi aldrei fullnægja þjóðerniskröfum íslendinga, enda hefir það verið skýrt tekið fram af þeirra hálfu. En í rauninni er það algerlega tilgangslaust að ræða um nokkra alríkisskipan, er byggja mætti á Uppkastinu, með því annað þeirra mála, er óupp- segjanleg áttu að vera, sem sé hervarnirnar, og sem í öðrum ríkis- samböndum er svo afarmikils virði fyrir sambandið, aldrei gæti orðið eina verulega máttarstoðin undir sannarlega gagnhverfu ríkissambandi millum Danmerkur og íslands, með því að íslend- ingar gætu að minsta kosti aldrei orðið hervörnum Dana að neinu liði, enda áttu þeir samkvæmt Uppkastinu meira að segja að vera undanþegnir allri skyldu til þess. Loforð Uppkastsins um hluttöku Islendinga í stjórn sameiginlegra mála ríkisins, yrði því aðeins notað til þess eins, að byggja á því nýja stjórnarbaráttu, sem gæti leitt til þess að rjúfa ríkissambandið að fullu og öllu, löngu áður en 37 ára uppsagnarfresturinn, sem ákveðinn er í 9. gr., væri útrunn- inn — alveg eins og þegar krafa smáríkisins Láenburg um jafnt fulltrúamagn í alríkinu danska varð hinni dönsku alríkisskipan að fótakefli og aldurtila. En hérumbil alveg sömu ástæðurnar mundu líka gera málefna- samband það, sem minnihlutinn íslenzki (Hafsteins-flokkurinn) vildi koma á, óaðgengilegt frá dönsku sjónarmiði. Í’ví reyndar er það almennast, að slík málefnasambönd, eins og t. d. Noregur-Svíþjóð

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.