Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1917, Síða 1

Eimreiðin - 01.01.1917, Síða 1
Maður og kona. Eftir prófessor LÁRUS H. BJARNASON. Ég stend hér aö beiðni Kvennafélags og Kvennréttindafélags, enda hafa forstöðukonur þeirra félaga fengið mér yrkisefnið. Ég kalla erindið mann og konu, en get því miður ekki gefið neina von um að verða jafnskemtilegur og Jón Thóroddsen. Ég tala um afstöðu karls og konu a ð 1 ö g u m og aðallega um af- stöðu húsfreyju til bónda og barns m ó ð u r til barns f ö ð u r og og hvors um sig til sameiginlegra b a r n a. Éað er nú svo komið, að konur eiga hér á landi yfirleitt sömu réttindi að lögum og karlar. Pær ráða sjálfum sér og fé sínu sem karlar, erfa sem þeir, eru embættisgengar sem þeir, og hafa pólitísk réttindi og rétt um sveitastjórnarmál á borð við þá. Pær eru jafnvel að sumu leyti frjálsari að lögum en karl- menn. Pær eru yfirleitt lausar við svokallaðar kvaðir eða ýms skyldustörf í almennings þarfir, sem venjulega fylgir annaðhvort engin borgun eða örlítil. Pannig eru konur t. d. leystar undan kjörgengi til landsdóms og þurfa ekki að taka við kjöri til bæjar- stjórna eða hreppsnefnda fremur en þær vilja. Aðalmunurinn á réttindum kvenna og karla kemur nú fram í afstöðu húsfreyju til bónda og móður og föður til óskilgetins barns. Og hallast þar sitt á hvert, sumstaðar á konuna, sum- staðar á karlmanninn og ekki sízt á barnið. YfirLeitt gilda sömu giftingarsjíilyrði fyrir konu og karl. Þó er þar nokkur munur á. Kona er hjúskapargeng 16 ára eða 4 árum fyr en karl, og mundi það vera full-lágur aldur, þótt enn lægri sé með nokkrum þjóðum. Pað bætir um, að hvortveggja i

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.