Eimreiðin - 01.01.1917, Page 16
IÓ
jafnvel ver með sakborinn mann en kindur, sem bíða hnífsins í skurðar-
kvínni. Pær eru látnar óáreittar. En utan að sakborna manninum
setjast oft fleiri eða færri sjálfkjörnir vandlætingamenn, menn
sem mega ekki vamm sitt vita — á pappírnum, og kroppa og
kroppa því í ólánsmanninn og jafnvel ættingja hans, svo sem
þeir hafa vit og gogg til. Svona er farið, eða réttara sagt, má
enn fara með sakborinn mann hér á landi — sé hann ekki ráð-
herra. Sé hann það, verður að fara með mál á móti honum
líkt og með skuldamál, jafnvel þótt hann þætti sekur um landráð.
Og ég lasta það ekki, þvert á móti. Ég hefi ásamt öðrum komið
því á. Og það ei rétta meðferðin. En hví er þá ekki farið eins
með alla sakborninga ?
Hví hefir yfirleitt ekki verið bætt úr þeim brestum, sem hér
hefir verið minst á. — Ég hefi fengist við löggjafastörf í 13 ár
og ætti því að geta haldið uppi frambærilegri vörn fyrir löggjafann
eða a. m. k. fyrir sjálfan mig. En ég verð að játa, að ég get
það ekki. í*ó mun á alþingi 1902 hafa verið borin fram tillaga
í þá átt, að bæta dómaskipunina og réttarfar í refsimálum, — mig
minnir að ég bæri hana fram, — en hún varð úti þá, og hefir
ekki reist höfuðið frá koddanum síðan. Má vera, að það valdi
nokkru um, að flest þingin hafa verið að meira eða minna leyti
baráttuþing. Á slíkum tímum hættir þeim, sem í stríðinu standa,
til að gleyma réttlætinu, jafnvel gagnvart þeim, sem þeir eiga
ekki í höggi við, eða svo sýnist mörgum nú.
Pó hefir æði margt verið gjört til umbóta hér í landi, síðan
vér fengum sjálfræði, og karlmönnunum mun hætta til að þakka
sér það. En margt er samt óbætt enn, auk þess, sem hér ér
getið. Kvennfólkið þarf því ekki að kvíða verkefnisleysi, meti
það að nokkru nýfenginn kosningarrétt og kjörgengi til alþingis.
Filippus hefir aftur látið Alexander nóg verkefni eftir.
Pað er enginn vafi á því, að konur hafa óbeinlínis komið
ýmsu góðu til leiðar einnig í löggjöf vorri. Pær hafa sumar vafa-
laust þar átt ekki alllítinn þátt í sumu, sem karlmönnum er
eignað. En mundi þó ekki meira hafa verið að gjört, ef konurnar
hefðu sjálfar lagt hönd á plóginn? Mundi ekki hugsjónunum vera
eitthvað líkt farið og blómunum ? Mundu þær ekki, eins og þau,
dafna bezt og bera beztan ávöxt í þeim jarðvegi, sem þær
spruttu upprunalega í? Pað hafa finsku konurnar auðsjáanlega