Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1917, Page 41

Eimreiðin - 01.01.1917, Page 41
41 Mér þótti vænt um það, en það atvikaðist þó einhvernveginn svo, að við urðum ekki samferða þangað. Ég fór einn, því ég var búinn að fá að vita, hvar hann bjó. Þegar ég kom þangað, var Jón ekki heima. En frú Ingibjörg, kona hans, tók á móti mér, bauð mér inn og sagði, að hann kæmi bráðum. Þetta var hérumbil kl. 5 e. m., og kom Jón von bráðar. Var ég þar svo alt kvöldið fram til kl. .11, ásamt fleirum löndum, sem voru að smátínast þangað. Þar var margt skrafað um landsins gagn og nauðsynjar, en það kvöld þó mest um fjárkláðann, sem þá geisaði hér á landi. Jón Sigurðsson, var lækningamaður, sem kunnugt er, en margir af gestum hans voru niðurskurðarmenn. En þó hygg ég, að flestir þeirra hafi orðið lækningamenn, þegar Jón var búinn að tala yfir hausamótunum á þeim. Eftir þetta var ég oft hjá Jóni á kvöldin þennan vetur, og voru þá aldrei færri, er þar borðuðu kvöldverð, en 6, og stundum fleiri. Ekki man ég nú nöfn allra þeirra, er þar komu, en þessir komu þar oft: Benedikt Sveinsson, Arnljótur Ólafsson, Magnús Eiríksson, sem oftast var nefndur »frater,« Steingrímur Thor- ste' nsson og Sumarliði gullsmiður Sumarliðason, auk f’orláks Ó. Jóhnsons, sem var þar heimagangur og borðaði þar. Margir komu þar fleiri, þó ekki muni ég nú nöfn þeirra. far var ætíð íslenzkur matur á borðum, bæði harðfiskur, hangi- kjöt og kæfa. Og eftir máltíð var sezt að drykkju, og ávalt drukkið »toddý.« Bar þá margt á góma, en þann vetur þó mest talað um fjárkláðann. En veturjnn eftir (1859—60) var frekar slegið á stór- pólitiska strenginn, og komst þá oft í hart meðal gestanna, því mein- ingamunur var mikill hjá sumum, sem oft kann að verða. Þegar sezt var að drykkju, var það vandi Jóns, að halla sér aftur á bak á stólnum og hneppa frá sér vestinu, og þá reykti hann hvern vindilinn á fætur öðrum. En þess utan sá ég hann aldrei reykja. Já, þá var nú pólitíkin ekki látin liggja í láginni. En þar sem svo langt er um liðið síðan, man ég nú lítt, hvernig ræður féllu. Þó man ég, að verið var að velta því fyrir sér, hvernig bezt færi á, að landinu væri stjórnað. Vildu sumir hafa jarl, en aðrir landsstjóra. með ráðgjöfum og löggefandi þingi, og sumir slógu því jafnvel fram, hvort ísland gæti ekki verið þjóðveldi. En þá man ég, að Jón Sigurðsson tók í taumana og sagði: »Látið ykkur ekki detta þjóðveldi í hug, því það er okkur ofætlun. í sambandi við einhverja þjóð verðum við að vera. En það segi ég, að út fyrir Norðurlönd megum við ekki fara. Sambandið verður að vera annaðhvort við Danmörku, • Svíaríki eða Noreg.« Þá man ég, að spurt var, því við mættum ekki fara út fyrir Norðurlönd. Þá sagði Jón: »Vegna þess, að ef við værum f sambandi við eitthvert stórveldi, mundi það gleypa okkur, svo þjóðerni og tungu væri hætta búin; en smáríkin mundu ekki verða okkur eins hættuleg, að því er þjóðerni og tungu snertir.« — Ég var ekki nema rúmlega tvítugur þá, og lítt farinn að hugsa um pólitík; en ég tók eftir því, sem talað var, og man svo vel, að svona var álit Jóns, að því er samband við aðrar þjóðir snerti. Það var mesta unun, að vera kvöldstund hjá Jóni Sigurðssyni.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.