Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1917, Page 46

Eimreiðin - 01.01.1917, Page 46
46 Festamál frá 18. öld. Þess heyrist ekki oft getið nú á tímum, að karlar og konurr er opinbera trúlofun sína, gjöri skriflega kaupmála milli sín með vottum, og enn síður að prestur sé þar tilkallaður, til að leggja blessun yfir áform hjónaefnanna, eins og tíðkast hefir í fyrri daga, samkvæmt lagafyrirmælum þeirra tíma, t. d. í Norsku lögum (3. B. 18. kap. 11. art.) er sagt: /»Engin trúlofun skal ske, án þess að presturinn og fimm aðrir vottar að minsta kosti séu þar viðstaddir... . Pó skal meðal þeirra, sem eru í Ranginum (hafa há embætti) eður af aðli, eður og þeirra, sem aðli eru jafnir að virðingum, haldast fyrir full- komna egtaskapar lofun, þegar hvorutveggja í nærveru sex manna, af beggja vinum, heitir hvort öðru eiginorði, og gefur hvort öðru fullkomið jáyrði.« Hvort öll hjónaefni hafa fylgt þessum reglum, er að líkindum vafamál; en telja má víst, að mörg hafi gjört það. En þess- konar samning eða kaupmála frá 18. öld á ég, er sýnir greinilega, hvernig festar fóru þá fram, líklega í sóknarkirkju brúðarefnis; að minsta kosti hafa þessi hjónaefni opinberað trúlofun sína á þeim stað, er þau áttu bæði kirkjusókn að. Þar sem ég ímynda mér, að mörgum þyki fróðlegt að heyra innihald skjalsins, þá læt ég það fylgja hér með, með lítið breyttri stafsetning: »í nafni heilagrar guðdómsins þrenningar. Anno 1775 Þann 26. septembris, að Óspakseyri í Bitru, framfór og fullgjörðist svolátandi hjónabands-undirbúningur eptirskrifaðra í millum, af einni hálfu virðu- legs heiðursmanns msr. Ólafs Hallssonar, sem talaði máli æru og sómagædds heiðursmanns Andijesar Sigmundssonar, og af annari virðulegs heiðursmanns monsér f’óiðar Ólafssonar, er svörum uppi hjelt vegna sinnar ástkæru dóttur, æru og sómagæddrar heiðursmeyjar Oddhildar Þórðardóttur. En þareð velnefndur Andijes er ekkjumaður, og 2ja skilgetinna barna, Jóns og Ásnýjar, móðurarfur er í hans búi innistandandi, sem eptir því fyrra kaupmálabrjefi er helmingur af föstu og lausu góssi, nær registrað var, jafnvel þótt upphæð arfsins sje ei enn nú annríkis vegna frá hr. sýsiumanninum sr. Halldóri Jakobssyni í Andrjesar hendur komin, þá lofar áður velnefndur Andrjes, að nefnd börn sín, Jón og Asný, skuli hjá sjer í umgetinn móðurarf inni eiga hálfa jörðina Skriðnessenni 8(*' að dýrleika og 1í lausafje, svo að ■hann sje viss um að þeim sje enginn afdráttur gjörður. En fjárskil-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.