Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1917, Side 48

Eimreiðin - 01.01.1917, Side 48
48 135 r<3- (27° kr.) o. s. frv. Einkadóttir þeirra Andrésar og Odd- hildar hét Sigríður og giftist Jóni Hjálmarssyni, prests frá Trölla- tungu; eitt þeirra barna var merkismaðurinn Lýður Jónsson, fyrr- um hreppstjóri í Hrafnadal. Af börnum Andrésar er komin hin íjölmenna og merka Ennisætt. FINNUR JÓNSSON frá Kjörseyri. Ritsj á. ERLENDUR GOTTSKÁLKSSON: VÍSUR OG KVIÐLINGAR. Með æfiágripi og minningarorðum. Utgefendur: Þór. Stefánsson bóksali og Vald. Erlendsson læknir. Khöfn 1916. fó að í kvæðasafni þessu megi finna dáindis falleg kvæði (eins og t. d. »Við æfilokin« bls. 59, »Hugspár« bls. 61, »Úr eftir- 1 mælumc bls. 54, hið meinfyndna skopkyæði »Yfirvöldin* bls. 780. fl.), þá verður þó ekki sagt, að það fylli neitt autt skarð í bókmentum vor- um eða beri vott um mikla skáldgáfu hjá höf., heldur aðeins, að hann hafi verið gáfaður hagyrðingur. í’etta virðist honum og sjálfum hafa verið ljóst, þvf svo segir í æfiágripinu framan við kvæðin: »í’ess ber að geta, að Erlendur ætlaðist ekki til, að ljóð hans kæmust nokkumtíma fyrir almennings sjónir, því hann lét brenna, áð- ur en hann dó, allstórt ljóðasafn, er hann átti í handriti. Pað, sem hér birtist, er því ekki nema lítill hluti af ljóðum hans, aðallega nokkrar tækifærisvísur og eftirmæli, er geymst hafa í manna minnum og dagblöðum frá fyrri árum. Hitt alt mun algerlega glatað.« Þar sem hér því ekki er um nema lítið hrafl af kvæðum höf. að ræða, og mikið af því eftirmæli, vantar sýnilega nægilega ábyggilegan grundvöll til að dæma um skáldskap hans yfirleitt. En ljóðakver þetta er heldur ekki útgefið í þeim tilgangi, að afla höf. þess sætis sem neinni blikandi stjörnu á bókmentahimni vorurn, heldur eru ljóðmælin notuð sem undirstaða undir minningarmark, sem sonur og sonarsonur höf. hafa óskað að reisá honum. Og þetta hefir þeim tekist snildar- lega vel. Því bæði æfiágripið og minningarorðin framan við kvæðin eru svo prýðilega rituð, að þau gefa bókinni gildi og gera hana að fögru minningarmarki. Þau sýna svo ljóslega, að Erlendur Gottskálksson hefir verið harla merkilegur maður í mörgum greinum, gáfumaður og smekkmaður, glettinn, fyndinn og þarfur maður í sínum verkahring. Og að hann hafi verið góður og skemtilegur heimilisfaðir, bera ihinningarorð Valdimars læknis sonar hans ljósastan vott um.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.