Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1917, Qupperneq 60

Eimreiðin - 01.01.1917, Qupperneq 60
6o Til kaupendanna. Afleiðingar Norðurálfustríðsins mikla koma víða við, og hafa útgefendur bóka og blaða fengið smérþefinn af þeim, ekki síður en aðrir. kannig hefir pappír tvöfaldast í verði (hækkað um ioo°/o) síðastliðið ár, og á máske eftir að hækka enn þá meira. Nú um áramótin var og prentun hér í Khöfn hækkuð um 20— 30°/» og í fyrra um io°/o. Afleiðingin af þessu hefir orðið sú, að öll blöð og tímarit hafa orðið að hækka verð sitt eða hætta að öðrum kosti, sem sumstaðar hefir orðið niðurstaðan, ekki sízt í ófriðarlöndunum. Par sem nú prentun á EIMREIÐINNI hafði á undanförnum árum smámsaman hækkað um 30°/o, frá því sem hún fyrst var, er Eimr. hóf göngu sína, án þess að verð hennar hafi nokkru sinni verið hækkað, var ljóst, að hún gat ekki staðist hinar stór- feldu nýju hækkanir á útgáfukostnaðinum, án þess eitthvað væri að gert. Pví sýnilegt var, að svo ramt mundi að kveða í ár, að ef miðað var við hinn upprunalega útgáfukostnað, þegar verð hvers árgangs var ákveðið 3 kr., þá mundi verð hans nú verða að hækka upp í 5 kr., ef árg. var hafður jafnstór og útgefandi átti að fá álíka í sinn hlut til kostnaðar við útgáfuna, eins og í upphafi. En hætt við, að kaupendum mundi þykja sú hækkun nokkuð gífurleg, og ýmsum falla svo allur ketill í eld við hana, að þeir segðu upp ritinu og hættu kaupunum, máske svo margir, að ritið yrði að hætta. Hér var því úr vöndu að ráða, en tvær leiðir tii. Önnur sú, sem tekin hefir verið af flestum (og eins af íslenzkum blöðum), að hækka verðið meira eða minna, en hin sú, sem ensk tímarit hafa valið, að halda verðinu óbreyttu, en minka í þess stað ritin meðan á stríðinu stendur. Og þá leið hefir Eimr. kosið að halda, þó minkunin samsvari auðvitað ekki nándarnærri kostnaðaraukanum. Og það því síður sem Eimr. var svo ógætin að hafa síðasta árg. (1916) rúml. */* örk stærri en að undanförnu, þrátt fyrir aukinn útgáfukostnað. En þar hafa allir eldri kaupendur fyrirfram fengið ofurlitla uppbót fyrir þá minkun ritsins, sem nú er ákveðin fyrst um sinn. Heftin í þessum árgangi verða jafnmörg og áður, en í hverju hefti verða nú ekki nema 4 arkir, í stað 5 áður (og hver örk því í rauninni 5 aurum dýrari en áður). Vonum vér, að allir sann- gjarnir kaupendur sætti sig við þá ráðstöfun, heldur en að láta árg. hækka í verði — eða ritið hætta með öllu. En verði önnur reyndin á, þá er að snúa sér að hinni leiðinni, — eða hinni síðast- töldu, ef því, er að skifta. RITSTJ.

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.