Eimreiðin - 01.09.1920, Qupperneq 21
EIMREIÐIN)
JÓN BISKUP VÍDALÍN
277
Matt 28, og er þó undir eins svo líknsamur, sem faðirinn er
börnunum miskunnsamur, Sálm. 103; hún kallar hann
herra, því treystir hún að hann gæti; hún kallar hann
son Davíðs, því varð hann að vilja; hún biður um misk-
unn, hvort vildi þá brunnur miskunnarinnar láta sina læki
renna, ef ekki í svoddan trúarskaut? En þetta eykur mjög
svo á, að hún biður fyrir sitt eigið lífsafkvæmi, hvors sál
að hékk af hennar sál, eins og Jakobs og Benjamíns;
hún segir: Dóttir min, það var sárt; hún kvelst, það var
herfilegra; hún kvelst illa, það var óbærilegt; og það af
Djöflinum, það yfirgekk alla tímanlega hörmung. . . .
Hvað fast mun hin heita móðurást hafa þrengt að hans
hjarta, er sjálfur segir, Jes. 49: Kann nokkuð móðirin að
gleyma sinu barni o. s. frv. Sjá, eg kem, vill þessi kona
segja; eg er ein vesæl móðir, eg bið um miskunn, ekki
um muni þessarar veraldar, ekki um líf óvina minna,
alleina bið eg um að mitt barn, sem er Guðs voluð
skepna, að það mætti fríast frá Djöfulsins valdi og ofríki.
Mun ekki Jesús hafa þenkt til sinnar móður, sem stóð
siðar undir hans krossi, þegar hann hékk þar sem maðkur,
en ekki maður, afmyndaður af Djöfulsins þrælum? Mun
nú ekki hann, sem í bilrustu dauðans angist og helvítis
kvölum staddur, sá aumur á sinni móður, mun hann
ekki, segi eg, hafa aumkast yfir þessari voluðu mann-
eskju?« — Viðar bregður fyrir viðknæmni hjá honum, en
of sjaldan, og hefir það liklega legið í skapferli þessa
stórbrotna höfðingja og siðameistara.
Hitt er það, að þótt engan vafa þurfi að telja á því,
að Vídalin hafi verið einlægur trúmaður á sína vísu, þá
finst mér vanta hjá honum tilfinningu fyrir og skilning á
því dýpsta andlega í trúarbrögðunum, því eiginlega hreina
trúarlega. Alt uppleysist í föst form, löngu steypt og viður-
kend. Sáluhjálparvegur mannsins er margtroðinn og varð-
aður þjóðvegur, og því lendir líka öll leitandi þrá mann-
anna í hinum vonda flokki hjá honum með villuráfandi
sauðum. Hér verður því ekki neitað, að rétttrúnaðarstefn-
an á sökina. Hann er sjálfur orþódox, og tilheyrendur
hans sömuleiðis, og þá er ekki meira um það að segja.