Eimreiðin - 01.09.1920, Page 110
366
FRESKÓ
[EIMKEIÐIN
varð að leggja fast að mér, að vera rólegur og láta ekk-
ert á mér sjá. En mér tókst það, og eg sagði að eins eitt
orð: »nei«. Eg held hún hafl án efa skilið mig og ekki
tekið þetta fyrir ókurteisi. Hún sagði ekkert meira. Hún
rétti mér höndina. Eg sá tár blika i augum hennar. Eg
er hræddur um að hún hafi séð eitthvað svipað í mínum.
Það er satt, sem þér segið. Sorgir, sárar sorgir bíða
okkar beggja. En sá er munurinn, að hennar sorgir munu
fljótt drukna við glaum og auð og tilbeiðslu annara. Það
er svo margt, sem hlýtur að dreifa hugsunum hennar. En
mínar sorgir — — —? Tilfinningar hennar til mín hljóta
að eins að vera meðaumkun, samúð, i hæsta lagi goðum-
lik velvild. Það getur líka vel verið, að hún beri lotningu
fyrir mér af því, að eg hefi aldrei smjaðrað eða skriðið
fyrir henni. — — Það er óhugsandi, að hún beri hreina
ást til mín. Og þó að það væri, þá erum við svo langt
hvort frá öðru, eins og haf og há fjöll lægju i milli.
Ef hún vildi nú færa mér ást sina að fórn, og eg væri
þegar fús að taka við þeirri fórn — ó hvað hún mundi
fyrirlíta mig innilega og að maklegleikum!
í dag fékk eg fyrsta bragðið af enska vetrinum. Það er
nistings-kuldi og krapa-veður, ýmist regn eða hagl eða
snjór. Ómögulegt að mála. Eg held áfram vinnu minni í
lesstofunni. Eg er búinn að finna mörg hólf og skúfi'ur,
alt fult af teikningum og allskonar myndum, sem raða
þarf. Þetta er glæsileg stofa, og þegar búið er að kveikja
á sínum arninum í hvorum enda, slær þægilegum flökt-
andi bjarma um þil og loft. Eg þyrfti ekki að láta mér
líða illa hér, ef--------ef. Eg hefi beð'ð kunningja minn
í Róm að reyna að selja myndir, sem eg á í stofu minni
i Róm, þó að hann fái ekki nema 20 franka fyrir hverja,
og senda mér andvirðið hingað. Þá get eg farið héðan,
þegar hún kemur, og það er ómögulegt að ætla á það,
hvenær það verður. Hún skrifaði mér í morgun mjög
vingjarnlegt bréf. Eg verð að taka á öllum kröftum mín-
um, að skrifa henni »formlegt« kurteisis svar. En hún
hlyti að lítilsvirða mig, ef eg notaði mér þetta tækifæri
til nokkurs meira. Hún er nú komin til Cannes fyrir 14