Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1985, Page 19
DV. MÁNUDAGUR 28. OKTOBER1985.
19
Bifreiðakostnaður
ríkisins:
815 milljónir
á síöasta ári
Bílakostnaður ríkisins og fyrir-
tækja á vegum þess var um 815 millj-
ónir á síðasta ári. Þetta er aukning
sem nemur um 28 prósentum en þá
var þessi kostnaður um 638 milljónir.
I þessum tölum er allur viðhalds-
og rekstrarkostnaður bifreiða í eigu
ríkisins. Þá er einnig kostnaður við
leigubílaakstur. Þá eru greiðslur
fyrir afnot af bílum starfsmanna svo
eitthvað sé nefnt.
Kostnaður vegna greiðslna vegna
bifreiða starfsmanna nam t.d. tæp-
lega 132 milljónum á síðasta ári.
Kostnaður vegna ríkisbifreiða var
548 milljónir eða stærstur hluti bif-
reiðakostnaðar ríkisins.
Kostnaður vegna leigubilaaksturs
var um 30 milljónir og vegna bíla-
leigubíla 48 milljónir.
Fjöldi ríkisbifreiða á síðasta ári var
1037 en var 1000 árið áður. APH
Gaddahanskinn, sem lögreglan hefur nú í vörslu sinni, er hreinasta
voðaverkfæri, eins og glöggt sést á myndinni. DV-mynd JGH.
Lögreglan á Húsavík:
Lagði hald á
stórhættulegan
gaddahanska
Frá Jóni G. Haukssyni, blaða-
manni DV á Akureyri:
Lögreglan á Húsavík tók um
næstsíðustu helgi stórhættulegan
gaddahanska af ungum manni sem
vísað hafði verið af skóladansleik
í Laugaskóla í Þingeyjarsýslu.
Ungi maðurinn var kærður fyrir
líkamsárás á Laugum. Þar hafði
hann ráðist á einn kennara skól-
ans, ásamt tveim félögum sínum.
Hann notaði ekki gaddahanskann
í áflogúnum en hótaði með honum.
Gaddahanski þessi er hreinastá
voðaverkfæri og óskiljanlegt að
menn skuli gera slíkan hanska. Sé
hanskanum slegið í andlit fólks
tætir hann andlitið og getur valdið
óbætanlegum lýtum.
Ungi maðurinn hafði, ásamt fé-
lögum sínum, komið á dansleikinn
á Laugaskóla. Vegna hegðunar var
þeim vísað af dansleiknum af ein-
um kennaranum. Út úr því urðu
slagsmál og bar ungi maðurinn
gaddahanskann í látunum.
Kennarinn kærði slagsmálin og
handtók lögreglan á Húsavík þá
félaga þar sem þeir voru á leiðinni
til Húsavíkur. Ungi maðurinn var
þá enn með gaddahanskann á sér.
Þensla í
lánskjörum
Lánskjaravísitala í nóvember verð-
ur 1.301 stig, 2,76% hærri en nú í
október. Hækkunin jafngildir 38,7%
árshækkun. Það er reyndar ná-
kvæmlega sú hækkun sem hefur
orðið á lánskjaravísitölunni síðustu
12 mánuði. HERB.
IKAN
alla vikuna
Úrval
vid allra hœfi
Lýsi hf. Grandavegi42, Reykjavík.
Þorskalýsi eða ufsalýsi frá Lýsi hf.
..heHsiinmr veema
ARGUS «€>
viDEO
MYNDBANDALEIGURI HiH
Nýtt efni komið, sama hagstæða verðið.
VIDEO
VIDED
Tilbúið .
til afgreiðslu | s
núþegar: ||
u
u
í„
o o
«|
I 8
£ Ul
Ss
U U
Tilbúið til 11
afgreiðslu 11
29. október: 1f
Vinsamlega hafið samband
við skrifstofu okkar sem fyrst.
Takmarkað upplag.
Opið frá kl. 13.00-17.00, sími 38150.
laugatfsbiA
©
X
■o
£
©
u
u
•<o a
■fc £
>. O
§ s
< c/>
S a
>S -M
13 W
Si
0. M
a
U .2
5 £
u
ú
■n
V.
X
C
O)
S