Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1987, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1987.
7
Nærri áttræð ekkja í Smárahvammi:
Með 270 milljóna króna
land í kringum sig
Smárahvammslandið í Kópavogi
og Garðabæ verður eigendum sín-
um drjúgt áður en yfir lýkur.
Nokkuð er búið að láta af því en
eftir eru um 53 hektarar og má
búast við að þeir fari á um 270-300
milljónir króna. Það er 78 ára göm-
ul ekkja í Smárahvammi sem er
aðaleigandi landsins.
Þau Kristján ísaksson og Guðrún
Kristjánsdóttir bjuggu lengi í
Smárahvammi og þar býr ekkjan
enn og einnig tveir synir þeirra
með fjölskyldum. Ein dóttir býr
annars staðar í Kópavogi með fjöl-
skyldu sinni. Þriðji sonurinn lést
frá fjölskyldu fyrir allnokkrum
árum. Afkomendur Smára-
hvammshjónanna hafa fengið litla
skika út úr búinu sem er annars
að mestu leyti óskipt.
Samband íslenskra samvinnufé-
laga hefur gert kaupsamning við
eigendur Smárahvamms um að
kaupa 23 hektara úr landinu.
Leynd hvílir yfir kaupverðinu en
með hliðsjón af landsölum á svip-
uðum slóðum og fasteignamati má
reikna með að fermetrinn kosti
500-750 krónur, meðal annars eftir
því hve stórar skákir eru keyptar.
Á lágmarksverði eru þetta því 115
milljóna króna kaup.
Þá virðast vera eftir um 9 hektar-
ar af landi á þeim parti Smára-
hvamms sem skipulagður var
undir iðnað og skyldan rekstur.
Lágmarksverð þeirra ætti að vera
45 milljónir króna. Þá eru eftir 17
hektarar vestar í dalnum sem eru
hluti af 43 hektara íbúðahverfi á
skipulagi Kópavogsbæjar og loks 5
hektarar undir íbúðir handan við
Arnarnesveginn, í Garðabæ. Þetta
má reikna minnst 110 milljóna
króna land.
Að undanskildu íbúðasvæðinu í
Kópavogi, sem ekki er reiknað með
að verði tekið undir byggingar
næstu tvo áratugi eða svo, er allt
Smárahvammslandið til ráðstöfun-
ar um þessar mundir, það er að
segja það sem eftir er af því. Á lág-
marksverði reiknað er sá hluti
landsins 185 milljóna króna virði
en svæðið sem geymist 85 milljóna
króna virði.
-HERB
Fréttir
Fóðurbætisgjald:
Um 26% af
söluverði
kjúklings
Upphæð fóðurbætisskatts í útsölu-
verði kjúklingakjöts er um 90 krónur
af hverju kílói en kílóverðiö er um
350 krónur út úr búð og er hlutur
fóðurbætisskattsins í verðinu því
tæplega 26%. Þessar upplýsingar
fékk DV hjá Pétri Björnssyni hjá
kjúklingabúinu Reykjagarði.
Pétur sagði að fóðurbætisgjald
hefði fyrst verið sett í júní 1980 en
síðan dæmt ógilt í október 1981. Síðan
hafa tvisvar verið lagðir á fóðurbæt-
isskattar og síðast síðastliðið sumar.
Pétur Björnsson sagði að kíló af
fóðri kostaði um 25 krónur og af því
væri fóðurbætisskattur um 12,25
krónur. -ój
Olfusárbrúin:
Verklok áætluð 1. júlí
„Verkið gengur vel og því miðar eftir
áætlun," sagði Guðmundur Arason,
yfirverkfræðingur hjá Vegagerðinni,
í samtali við DV þegar hann var að
því spurður hvernig byggingu brúar
yfir Olfusárósa miðaði.
Brúin verður 360 metrar að lengd
og verður hún fimmta lengsta brú á
landinu en lengst er brúin yfir Skeið-
ará, tæplega 1000 metra löng. Næst-
lengsta brúin er Borgarfjarðarbrúin
sem er 520 metra löng. Brúin er átta
höf og nú stendur yfir vinna við
fimmta brúarhafið.
Áætlaður kostnaður við brúar-
smíðina og vegarlagningu frá
Óseyrartanga að Þorlákshafnaraf-
leggjara er á núvirði nálægt 230
milljónum króna.
Verkiö hófst í febrúar síðastliðnum
og á brúin að vera tilbúin þann 1.
júlí næstkomandi og bendir ekkert
til annars en að sú áætlun standist,
að sögn Guðmundar. -ój
Ársþing LH:
Eifitt að ná
fram sáttum
í dag lýkur 31. ársþingi Landssam-
bands hestamannafélaga (LH) en
það er haldið á Selfossi. Þetta árs-
þing er óvenjumikilvægt því glufa
hefur myndast í röðum félags-
manna og gæti sú glufa valdið því
að félagar í þremur hestamannafé-
lögum í Eyjafirði segöu sig úr
samtökunum. Málið snýst um val
á landsmótsstað. Stjórn LH hefur
valið Vindheimamela í Skagafirði
sem næsta landsmótsstað fyrir árið
1990. Þessu vilja félagar í hesta-
mannafélögunum Funa, Létti og
Þráni ekki una og telja sig eiga inni
loforð um næsta landsmót sem yröi
þá haldið á Melgerðismelum í Eyja-
firði.
Að sögn Jónasar Vigfússonar,
sem mætti á ársþingið á Selfossi
ásamt sex félögum sínum úr Eyja-
firði, er þungt hljóð í hestamönnum
í Eyjafirði. „Við höldum því fram
að sá sáttmáli, sem gerður var í
Varmahlíð áriö 1980, sé enn í gildi
og hann hafi ekki rýrnaö með árun-
um nema síður sé. Stjórn LH hefur
sniðgengið þennan sáttmála. Við
teljum að við eigum að fá næsta
landsmót á Melgerðismela," segir
Jónas.
„Stjórn LH leggur fram tillögu á
þessu ársþingi um að landsmóts-
staður verði framvegis valinn á
næsta ársþingi eftir landsmót. Ef
tillagan verður samþykkt verður
gengið til atkvæða á þessu þingi
um Vindheimamela sem næsta
landsmótsstað. Ef sú tillaga verður
samþykkt munum við ákveða á
aðalfundi hvers félags fyrir sig
hvort viö göngum úr LH. Éf tillag-
an verður ekki samþykkt er málið
í óvissu."
Margir þingfulltrúar hafa tekið
til máls og sýnist sitt hverjum.
Guðrún Gunnarsdóttir lagði til að
Skagfirðingar gæfu mótsstað eftir
til að ná fram sáttum og talsmenn
stjórnarinnar hafa sakað Eyfirð-
ingana um skort á félagsþroska.
Það er því greinilegt að þungt hljóð
er í þingfulltrúum og að erfitt getur
reynst að ná fram sáttum sem allir
geri sig ánægða með.
-E.J.
Dýra gröfin:
Matsnefnd skipuð
a næstu
Sýslumanni Árnesinga hefur borist
bréf frá sóknarnefndum Hveragerð-
is- og Ölfussókna, þar sem óskað er
eftir því að sýslumaður skipi mats-
nefnd sem meti vinnu við gröf sem
tekin var í Kotstrandarkirkjugarði
nýlega. Reikningur fyrir gröfinni
þótti óeðlilega hár, að mati sóknar-
nefndanna.
Andrés Valdimarsson sýslumaður
sagði í samtali við DV að næstu daga
dogum
myndi hann kveðja tvo matsmenn til
setu í nefndinni. Þeir hefðu síðan
einhvern tíma til matsins, en auðvit-
að hvíldi sú skylda á mönnum að
ljúka því eins fljótt og hægt væri.
Þegar matið liggur fyrir sagði
Andrés aö það yrði sent til mats-
beiðenda, sóknarnefndanna, og það
væri síðan þeirra að taka ákvörðun
um áframhaldið.
-ój
Brúin teygir sig smám saman yfir Ölfusárósa en reiknað er með að framkvæmdum Ijúki um mitt næsta sumar.
DV-mynd KAE
Fl Jeep Árgerð 1988
CHEROKEE
COMANCHE
Amerísk gæðavara
Sýningarbílar á staðnum
Örfáum bifreiðum óráðstafað
OPIÐ LAUGARDAGA 13-17
ri Jeep EGILL VILHJALMSSON HF.,
einkaumboð a islandi Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202.