Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1987, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1987, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 31. OKTÖBER 1987. 67 dv Fólk í fréttum Jón Baldvin Hannibalsson Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra fundaði með for- ystumönnum verkalýðshreyfmg- arinnar á miðvikudagskvöldið en þá lýsti hann því yfir að matar- skattinum svonefnda yrði frestað fram til áramóta. Þetta kom fram í DV-fréttum sl. fimmtudag. Jón Baldvin er fæddur 21. febrúar 1939 á ísafirði og lauk prófi í hag- fræði frá Edinborgarháskóla 1963. Hann var í framhaldsnámi í vinnu- markaðshagfræði í Stokkhólmi 1963-1964 og lauk prófi í uppeldis- og kennslufræðum frá Háskóla ís- lands 1965. Jón var kennari við Hagaskóla 1964-1970 og skólameist- ari Menntaskólans á ísafirði 1970-1979. Hann var ritstjóri Al- þýðublaösins 1979-1982 og alþingis- maður Reykvíkinga frá 1982. Jón varð formaður Alþýðuflokksins 1984 og fjármálaráðherra 1987. Kona Jóns er Bryndís Schram, f. 9. júlí 1938, varaborgarfulltrúi. For- eldrar Bryndísar eru Björgvin Schram stórkaupmaður og kona hans, Aldís Brynjólfsdóttir. Börn Jóns og Bryndísar eru Aldís Bald- vinsdóttir, f. 21. janúar 1959, lög- fræðingur; Glúmur Baldvinsson, f. 13. október 1966, nemi í markaös- fræðum í Bandaríkjunum; Snæ- fríður Baldvinsdóttir, f. 18. maí 1968, sýningastúlka í París; Kol- finna Baldvinsdóttir, f. 6. október 1970, menntaskólanemi. Systkini Jóns eru Arnór, f. 1934, dósent í heimspeki, giftur Nínu Sveinsdótt- ur viðskiptafræðingi, þau eiga fimm börn; Ólafur, f. 1936, sem var bóndi í Selárdal, á þrjú börn; Elín, f. 1937, kennari á Flúðum í Hruna- mannahreppi, á fjögur börn; Guðríður, f. 1938, bankastarfsmað- ur, á tvö börn; og Ingjaldur, f. 1951, iðnaðarverkfræðingur. Foreldrar Jóns eru Hannibal Valdimarsson, fyrrverandi ráð- herra, og kona hans, Sólveig Ólafsdóttir. Hannibal er bróðir Finnboga, fyrrv. alþingismanns og ritstjóra. Faðir Hannibals var Valdimar, b. í Fremri-Arnardal í Norður-Isaíjarðarsýslu, Jónsson- ar, b. í Litlu-Ávík í Strandasýslu, Jónssonar, b. á Melum í Víkur- sveit, Guðmundssonar. Móðir Valdimars var Helga Guðmunds- dóttir, b. á Kjörvogi í Reykjarfirði, Jónssonar. Móðir Hannibals var Elín Hannibalsdóttir, b. á Neðri- bakka í Langadal, Jóhannessonar, b. á Kleifum í Skötufirði, Guð- mundssonar, sterka á Kleifum, Sigurðssonar. Móðir Elínar var Sigríöur Arnórsdóttir, prests í Vatnsfirði, Jónssonar, bróður Auð- uns, langafa Jóns, fóður Auðar Auöuns. Móðir Sigríöar var Guðr- ún Magnúsdóttir „eymdar- skrokks", b. í Súöavík, bróöur Ingibjargar, ömmu Jóns forseta og Jens rektors, langafa Jóhannesar Nordal. Magnús var sonur Ólafs lögsagnara á Eyri, Jónssonar, for- fóður Matthíasar Á. Mathiesen, Geirs Hallgrímssonar og Vals Arn- þórssonar. Móðir Jóns, Sólveig, er systir Guðrúnar, móður Jóns Helgason- ar, fyrrv. formanns Einingar á Akureyri, og Friðfmns, forstjóra Háskólabíós, fóður Bjöms, aðstoð- armanns Jóns Sigurðssonar dóms- og kirkjumálaráðherra. Faðir Sól- veigar var Ólafur, b. í Strandseljum í Ögurhreppi, Þórðarson, b. á Hjöll- um í Skötufirði, Gíslasonar. Móðir Ólafs var Guðrún Ólafsdóttir, b. á Skjaldfónn, Jónssonar og konu hans, Jóhönnu Egilsdóttur, b. á Bakkaseli, Sigurðssonar „réttláta" á Gilsíjarðarmúla, Jónssonar. Móöir Sólveigar var Guðríður Haf- liðadóttir vegghleðslumanns, Jóhannessonar, bróður Hannibals, afa Hannibals Valdimarssonar. Móðir Guðríðar var Þóra Rósin- kransdóttir, b. á Svarthamri, bróður Sigurðar, afa Jóns Bald- vinssonar, fyrsta formanns Al- þýðuílokksins og langafa Ingigerð- ar, móður Þorsteins Pálssonar. Sigurður var sonur Hafliða, b. í Kálfavík, Guðmundssonar sterka, Sigurðssonar, forfóður Ólafs Þ. Þórðarsonar og Sverris Hermanns- Jón Baldvin Hannibalsson. sonar. Móðir Þóru var Elísabet Jónsdóttir, b. á Svarthamri, Jóns- sonar. Langamma Elísabetar var Sigríður Magnúsdóttir, bróður- dóttir Jóns Teitssonar biskups, langafa Katrínar, móöur Einars Benediktssonar skálds. Móðir Sig- ríðar var Ingibjörg Markúsdóttir, systir Herdísar, formóður Guö- laugs Tryggva Karlssonar hag- fræðings. Afmæli Gunnhildur Hrólfsdóttir Gunnhildur Hrólfsdóttir, rithöf- undur og skrifstofustúlka hjá Flugleiðum, til heimilis að Ásgarði 77, Reykjavík, verður fertug á morgun. Gunnhildur fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hún var ung þegar hún missti móður sína en faðir hennar kvænt- ist aftur. Hann er nú látinn en eftirlifandi seinni kona hans er Hrefna Sveinsdóttir sem nú starfar hjá Alþingi. Gunnhildur hefur ve- rið forstöðumaður barnaheimilis og hún hefur verið gjaldkeri en hún starfar nú hjá Flugleiðum og stund- ar auk þess nám á viðskiptasviði i öldungadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Með námi og vinnu hef- ur Gunnhildur svo stundað ritstörf en út hafa komið tvær bækur eftir hana, verðlaunabókin Undir regn- boganum, 1980, og Vil, vil ekki, 1986. Von er á þriðju bók hennar nú fyrir jólin. Heitir hún Spor í rétta átt. Gunnhildur á þrjá syni: Ólafur, f. 6.10.1964; Stefán, f. 1.3.1970; Kári, f. 1.4. 1976. Sambýlismaður Gunnhildar er Finnur Eiríksson. Gunnhildur á sjö systkini: Andri, f. 29.3. 1945, er stöðvastjóri Flug- leiða á Reykjavíkurflugvelli; Ing- ólfur, f. 23.5.1946, er hitaveitustjóri á Akranesi; Elsa, f. 19.10. 1949, er skrifstofustúlka og býr í Mosfells- bæ; Bryndís, f. 27.8. 1952, er húsmóðir í Reykjavík; Sveinn, f. 12.1.1961, býr í Noregi og er húsa- smiður þar; Daði, f. 30.3. 1963, er sjómaður í Vestmannaeyjum; Arn- ar, f. 11.2. 1968, er við nám í Reykjavík. Foreldrar Gunnhildar voru Hrólfur, f. á Vopnafirði 20.12.1917, d. 1984, Ingólfsson og fyrri kona hans, Ólöf, f. 1.12.1920, d. 23.5.1959, Andrésdóttir. Hrólfur var bæjar- gjaldkeri i Vestmannaeyjum 1946-54, framkvæmdastjóri Fiski- vers Vestmannaeyja 1960-63, bæjarstjóri á Seyðisfirði 1963-1970 og sveitarstjóri í Mosfellssveit frá 1970-74. Föðurforeldrar Gunnhild- Gunnhildur Hrólfsdóttir. ar voru Ingólfur, b. að Vakurstöð- um í Vopnafirði og síöar verkamaður á Seyðisfirði, Hrólfs- son og kona hans, Guðrún Eiríks- dóttir, ættuð af Jökuldal. Móðurforeldrar Gunnhildar voru Andrés, b. á Stóru-Breiðuvíkur- hjáleigu við Eskifjörð, Sigfússon og kona hans, Valgerður Kristjáns- dóttir, en þau hjónin voru bæði ættuð úr Vöðlavík. Sigurður Sigurður Ólafsson bakari, Sunda- bakka 10A, Stykkishólmi, verður sjötugur á morgun. Sigurður fæd- dist við Barónsstíginn í Reykjavík en var á fyrsta árinu þegar faöir hans drukknaði. Sigurður var þá sendur í fóstur í Skáleyjar á Breiða- firði, til hjónanna Skúla Berg- sveinssonar b. og konu hans, Kristínar Einarsdóttur. Meðal upp- eldisbræðra Sigurðar má því nefna Bergsvein, höfund Breiðfirskra sagna. Sigurður var í Skáleyjum til fimmtán ára aldurs en fór þá til Reykjavíkur og hóf bakaranám í Björnsbakaríi en þar starfaði hann í tíu ár. Sigurður hefur búið í Reykjavík um árabil og ein sextán ár í Kópavogi en þau hjónin fluttu vestur í Stykkishólm 1984 og búa þar enn. Kona Sigúrðar er Unnur Lilja, f. Sérverslun með blóm og skreytingar. Opit) til kl. 21 iilI kviild nöBlóm wQskicjtingar Laugauegi 53, sími 20266 Sendum um land allL Ólafsson á Hellissandi 3.9.1922, en þau giftu sig 1941. Foreldrar hennar: Jó- hannes, formaður á Hellissandi, Jónsson, og Anna Guðmundsdótt- ir. Sigurður og Unnur Lilja eignuö- ust fjögur börn en misstu eitt í fæðingu. Elst er Ingveldur, f. 6.4. 1942. Hún býr í Reykjavík, á einn son og er gift Þór Hróbjartssyni. Skúli, f. 1.5.1946, býr í Hafnarfirði og er starfsmaður hjá Ofnasmiðj- unni. Ólafur, f. 2.1.1964, á einn son og býr í Reykjavík. Sigurður átti sex systkini og eru þrjú þeirra á lífi: Unnur er látin en hún var gift Jóhanni Karlssyni heildsala í Reykjavík; Eggert vél- stjóri, fórst með mótorbátnum Erninum frá Hafnarfirði 1935; Ægir er skrifstofumaður í Reykjavík; Bára er látin en maður hennar var Sigurður Jóhannesson, starfsmað- ur Pósfs og síma í Reykjavík; Ólafur er heildsali í Reykjavík, gift- ur Sigrúnu Eyþórsdóttur, og eiga þau fimm börn. Foreldrar Sigurðar voru Ólafur Sigurður Ólafsson. skipstjóri, Sigurðsson, f. 5.5. 1875, en hann fórst með skipinu Beautif- ul Star út af Vestfjörðum 1917, og kona hans. Guðrún, f. á Siglunesi 2.8. 1878, d. 1945, Baldvinsdóttir. Föðurforeldrar Sigurðar voru Sig- urður, formaður og útvegsbóndi frá Hrólfsbúð í Flatey á Breiða- firði, Ólafsson, og Guðrún frá Skriðnafelli, f. 1849, Þórðardóttir. Móðurforeldrar Sigurðar voru Baldvin, hákarlaformaöur og út- vegsbóndi á Siglunesi, f. 1856, Jóhannsson, og Jónína Ásta, f. á Kvíabekk í Ólafsfirði, Magnúsdótt- ir. Andlát Sæmundur Friðjónsson, Gullteigi Eyþór Óskar Sigurgeirsson, Kjarr- 29, Reykjavík, andaðist í Borgarsp- hólma 36, Kópavogi, lést fóstudag- ítalanum aðfaranótt 30. október. inn 30. október. Guðríður Þorkelsdóttir, Snorra- Jón Heiðar Kristinsson, fyrrver- braut 73, Reykjavík, lést fimmtu- andi bóndi, Ytra-Felli, lést á heimili daginn 29. október. sínu, Sólvöllum 1, Akureyri, að _______________________________morgni 30. október._____ Þuríður Sigurðardóttir Þuríöur Sigurðardóttir, Há- steinsvegi 60, Vestmannaeyjum, er áttræð í dag. Hún fæddist að Rafns- eyri í Vestmannaeyjum, ólst upp hjá foreldrum sínum í Eyjum og hefur búið þar alla sína tíð, að einu ári slepptu þegar hvað mest gekk á í gosinu. Þuríður vann mikið í fiski á unglingsárunum en hún missti fóður sinn úr spönsku veik- inni 1918. Eiginmaður Þuríðar var Sigur- lás, f. í Miðhúsum í Hvolhreppi 13.8. 1893, d. 1980, en hann var verkamaöur og var mikið við fisk- vinnslu. Foreldrar hans: Þorleifur, b. í Miðhúsum, Nikulásson og Kristín Þorvaldsdóttir. Þuríður átti eina dóttur fyrir hjónaband en hún og Sigurlás eign- uðust fimmtán börn. Þuríður átti sjö systkini en á nú eina systur á lífi. Sú er Ólafía sem nú býr á Hrafnistu í Hafnarfiröi. Foreldrar Þuríðar voru Sigurður Ólafsson, ættaður úr Landeyjum. og Margrét Þorsteinsdóttir. 75 ára______________________ Anna Jónsdóttir, Miklubraut 30, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. 70 ára_________________________ Ingvar Róbert Bjarnason, Langa- gerði 64. Reykjavík. er sjötugur í dag. Geir J. Geirsson vélstjóri. Hagamel 30. Reykjavík. er sjötugur í dag. 60 ára______________________ Unnur Sigurjóna Jónsdóttir, Lóu- rima 7, Selfossi, er sextug í dag. Friðrik P. Benediktsson. Grettis- götu 37. Reykjavík. er sextugur í dag. 50 ára_____________________ Guðjón Benediktsson húsasmíða- meistari, Melabraut 49. Seltjarnar- nesi, er fimmtugur í dag. Vilmundur Þ. Kristinsson, Árbergi, 75 ára________________________ Sigtryggur Ólafsson, Hafnarstræti 77, A-kureyri, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Rósa Jónsdóttir, Hávegi 15, Siglu- firöi, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Þórhildur Frímannsdóttir, Ægis- götu 3, Árskógshreppi, verður sjötíu og fimm ára á morgun. 70 ára________________________ Ellert N. Hannesson, Grænukinn 12, Hafnarfiröi, verður sjötugur á morgun. Sigurður P. Björnsson, Garðars- braut 19, Húsavík, veröui sjötugur á morgun._____________________ 60 ára________________________ Ólafur Guðmundsson bifreiðar- stjóri, Bröttukinn 27, Hafnarfirði, verður sextugur á morgun. Gnúpverjahreppi, er fimmtugur í dag. Guðmundur Jónsson, Hofsstöðum. Skútustaðahreppi. er fimmtugur í dag. Lúðvík Ólafsson, Melabraut 45, Seltjarnarnesi. er fimmtugur í dag. Grétar Geirsson, Áshóli, Ása- hreppi. er fimmtugur í dag. 40 ára___________________________ Sigurbergur Hauksson. Gilsbakka 2. Neskaupstaö. er fertugur í dag. Ásta Sigurðardóttir, Asparlundi 5, Garðabæ. er fertug í dag. Hólmgrímur G. Stefánsson. Skóla- braut 45. Seltjarnarnesi, er fertug- ur í dag. Evgló Óskarsdóttir. Glitvangi 9. Hafnarfirði. er fertug í dag. Sigurður Ingólfsson. Háeyrarvöll- um 34. Eyrarbakka, er fertugur í dag. Erna Einarsdóttir, Sveinsstöðum. Fellsstrandarhreppi, er fertug í dag. Óskar Guðmundur Jóhannesson skipstjóri, Fjarðarstræti 57, ísafirði, verður sextugur á morgun. 50 ára_________________________ Guðný Árnadóttir, Laugargerðis- skóla, Eyjahreppi, verður fimmtug á morgun. Ólafur Þórðarson, Austurvegi 10, Mýrdalshreppi, verður fimmtugur á morgun. 40 ára_________________________ Óskar Óskarsson, Ósabakka 15, Reykjavík, veröur fertugur á morg- un. Maron Tryggvi Bjarnason, Hryggj- arseli 13, Reykjavík, verður fertug- ur á morgun. Sigurlaug Ingimundardóttir, Skólastíg 13, Bolungarvík, verður fertug á morgun. Kristín Jónsdóttir, Melbæ 28, Reykjavík, verður fertug á morgun. C
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.