Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1987, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 14. NOVEMBER 1987.
Fréttir
Ungfrú heimur:
Góð frammistaða
íslenskra stúlkna
Sföastliðin sex ár hafa íslenskar
stulkur náö góöum árangri í
keppninni um titilinn ungfrú heira-
ur. Áriö 1982 komst María Björk
Sverrisdóttir í 15 stúlkna úrsliL
1983 hafnaði Unnur Steinsson í
fjórða sæti keppninnar og buöust
henni í kjölfar þessmörg atvinnut-
ilboö erlendis frá. Áriö 1984 komst
Berglind Johansen í 7 stúlkna úr-
slit. Hólmfríður Karlsdóttir var
kjörinn ungfrú heimur áriö 1985 en
árið 1986 komst fulltrúi íslands,
Gígja Birgisdóttir, hins vegar ekki
í úrsht og var því um kennt að túli-
trúum þeirra þjóða, sem eiga
ungfrú heim það áriö, vegni ekki
sem skyldi að ári liðnu. í keppninni
í ár hafhaði eins og kunnugt er
Anna Margrét Jónsdóttir, fúlltrúi
íslands, í þriðja sæti
-J.Mar
Heiðar Jónsson snyrtir.
Heiðar Jónsson snyrtir:
Kristjana Geirsdóttir veitingastjóri.
Krístjana Geirsdóttir:
Mjög stoK af
Önnu Margréti
„Ég er míög ánægö með frammi-
stöðu Önnu Margrétar, hún stóð sig
frábærlega vel,“ sagði Kristjana
Geirsdóttir sem undanfarin ár hefur
séð um Fegurðarsamkeppni íslands.
„Það kom mér hins vegar á óvart
að austurríska stúlkan skyldi vinna,
þaö yar nokkuð sem ég bjóst aldrei
við. Ég hélt að stúlkan frá Venezuela
og Anna Margrét yrðu í tveimur
efstu sætunum.
Það er mjög ánæjulegt hyersu hátt
skrifaðar íslenskar stúlkur eru orðn-
ar í keppninni um titíhnn ungfrú
heimur, þær hafa hka staðið sig með
sóma undanfarin ár.“ -J.Mar
Hólmfríður Karisdóttir fóstra:
Skritið að þekkja
engan keppandann
„Mér fannst það alveg meiriháttar
að Anna Margrét skyldi hafna í
þriðja sæti. Ég bjóst alveg eins við
því því að maður veit aldrei hvað
gerist í svona keppni," sagði Hólm-
fríður Karlsdóttir.
„Ég var alveg rosalega spennt þeg-
ar ég var að horfa á keppnina,
maginn á mér herptist alveg saman.
Annars fannst mér voðalega skrítið
að horfa á keppnina og þekkja engan
eftir aö hafa þekkt flestá keppend-
urna undanfarin tvö ár - fyrra árið
þegar ég var kjörin ungfrú heimur
og seinna árið þegar ég krýndi arf-
taka minn.
Þessi frammistaða Önnu Margrét-
ar getur opnað henni marga mögu-
leika í framtíðinni, það skiptir
sjálfsagt mestu máli hvernig hún
spilar sjálf úr þeim tækifærum sem
henni bjóðast."
-J.Mar
Hólmfríður Karlsdóttir fóstra og fyrr-
um ungfrú heimur.
Var búinn
að spá
þriðja sætinu
„Ég var búinn að spá því að Anna
Margrét mundi hafna í þriðja sæti
en sem íslendingi fannst mér nátt-
úrulega að hún ætti að vinna,“ sagði
Heiðar Jónsson snyrtir.
„Mér fannst sigurvegarinn mjög
glæsilegur þó aö mér þætti hárið
dálítið tætingslegt. Mér fannst það
áberandi við þessa keppni hversu
jafnhuggulegar stúlkumar voru og
lítið af sláandi fallegum stúlkum.
Frammistaða Önnu Margrétar var
mjög góð, hún var eðlilega snyrt og
langminnst máluð af stúlkunum í
keppninni. Þaö var hennar fegurð en
ekki einhver tilbúin fegurð sem hún
státaði í keppninni." -J.Mar
Sóley Jóhannsdóttir danskennari:
Hélt að stúlkan frá
Venezuela yrði númer eitt
Sóley Jóhannsdóttir danskennari.
„Ég var búin að spá því að ungfrú
Venezuela yrði númer eitt, Anna
Margrét yrði í öðru sæti og þýska
stúlkan í því þriðja," sagöi Sóley Jó-
hannsdóttir en hún sá um þjálfun
Önnu Margrétar fyrir keppnina um
titilinn ungfrú ísland.
„Anna Margrét kom mjög vel fyrir
í keppninni, hún er sviðsvön og svar-
aði vel fyrir sig. Hún var ekki
taugaóstyrk og stóð sig í alla staði
frábærlega vel.
Mér fannst stelpurnar, sem kepptu
í ár, vera fallegri en í fyrra. Það er
eins og það séu svolítii áraskipti af
því hversu glæsilegar stúlkur veljast
til keppninnar. Ég held að við íslend-
ingar megum vera stolt af frammi-
stööu Önnu Margrétar."
-J.Mar
Anna Margrét
kom heim í gær
öllum að óvörum
„Ég er varla búin að átta mig á því sæti í keppninni um titilinn ungfrú Jónsdóttir við komuna til íslands í
ennþá að ég skyldi hafna i þriöja heimur," sagði Anna Margrét gær. „Ég átti ekki von á því að ég
Guómundur Pálsson framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs og Erna Hrólfsdóttir yfirflugfreyja hjá Flugleiöum,
færðu Önnu Margréti blóm og árnaðaróskir þegar hún gekk inn í flugstöð Leifs Eirikssonar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Anna Margrét þreytt en alsæl við komuna til Keflavikur í gær.
DV-mynd Brynjar Gauti
myndi ná svona langt. Ég vissi ekki
heldur fyrr en eftir keppnina að ég
var hæst að stigum þeirra stúlkna
sem komust í úrslit.“
í verðlaun fékk Anna Margrét
1000 pund og verðlaunagrip frá Top
Shbp. Hún hefur líka fengið atvinn-
utilboð frá ýmsum aðilum í London
sem vilja gjarnan fá hana í fyrir-
sætustörf.
„Þetta er búinn að vera mjög
skemmtilegur tími og það var mjög
gaman að kynnast stelpunum sem
tóku þátt í keppninni ásamt mér.
Það var svolítið sárt að þurfa að
kveðja þær og sjá þær kannski
aldrei aftur,“ sagði Anna Margrét
aö lokum og var að vonum farin
að hlakka til að hitta fjölskyldu
sína og sambýlismann sem vissu
ekki að hún var að koma heim, hún
kom því öllum að óvörum.
-J.Mar