Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1987, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987.
Áreiðanlegar heimildir
Mér brá satt að segja dálítið um
daginn þegar mér var sagt að tóm-
atsósa væri ekki búin til úr tómöt-
um, appelsínusafi væri ekki
framleiddur úr appelsínum en hins
vegar kæmi kakómjólkin úr kún-
um og var það síðastnefnda haft
eftir áreiðanlegum heimildum en
eins og menn vita er allt haft eftir
áreiðanlegum heimildum nú til
dags, ekki síst ef það er verið aö
ljúga einhverju að manni.
Fréttamaður segir kannski allt í
einu: Áreiðanlegar heimildir
herma að í gærkvöldi hafi Jón
Jónsson elt köttinn sinn um allt
Bústaöahverfið í þeim tilgangi að
snúa hann úr hálsliðnum og stafaði
reiði Jóns af því að skömmu áður
hafði hann fengið sér gúlsopa úr
glasi sem hann hélt að í væri tólf
Háaloft
Benedikt Axelsson
ára gamalt viskí.
Þar sem fréttin um Jón í Bústaða-
hverfinu er svokölluð stórfrétt er
henni fylgt eftir eins og það er kall-
að og fer það eftir því hvað Jón er
fljótur að hlaupa hvenær frétta-
maðurinn getur farið að snúa sér
að öðru eins og til dæmis því að
telja frystihúsin í landinu: Haft er
eftir áreiðanlegum heimildum að
nú muni vera starfrækt í landinu
þijú hundruð fimmtíu og sjö frysti-
hús og svo framvegis.
Og nú hef ég það sem sagt eftir
áreiðanlegum heimildum að jólin
séu komin niðri í miðbæ og þar séu
jólasveinamir farnir að ganga fyrir
rafmagni dag og nótt og veldur
þetta okkur sem búum í úthverfun-
um ekki hinu minnsta hugarangri.
Aftur á móti hrökkvum við
stundum við á kvöldin þegar dyra-
bjöllunni er hringt því að við erum
ailtaf að bíða eftir mönnum með
svartar skjalatöskur fullar af
pappírum um það hvað við skuld-
um mikið í skatta og útsvar og
afborganir af lánum sem tilkynna
okkur hvað þeir ætli að flýta sér
mikið að selja ofan af okkur kof-
ann.
En þegar við opnum dyrnar til
hálfs og gægjumst út stendur þar
lágvaxin manneskja og spyr hvort
ekki megi selja okkur jólakort til
styrktar einhverju kvenfélagi.
Kaupmennska
Og ég komst mjög fljótlega að
raun um að maður yrði ekki lengi
að gera sig rúmlega gjaldþrota ef
maður ætlaði sér að styrkja öll
kvenfélögin í landinu því að þrátt
fyrir áætlanir um jafnan rétt
kvenna og karla til að vaska ekki
upp eftir matinn virðist kvenfélög-
um fara fjölgandi og er það svo sem
allt í lagi á meðan jólin eru ekki
nema einu sinni á ári.
En á þessum árstíma eru fleiri á
ferðinni en jólasveinamir og kven-
félögin, einstaklingsframtakið
grasserer líka í fólki og það líður
varla sá dagur að ekki sé einhver
staddur fyrir utan húsið hjá manni
sem vill endilega pranga inn á
mann sokkum, vettlingum, trefl-
um, húfum eða happdrættismið-
um. Oftast nær öllu þessu og um
daginn komu meira að segja til
okkar einhverjar útlendar konur
sem buðust til að selja konunni
minni guðsríkið, hvorki meira né
minna, á hundrað og fimmtíu krón-
ur.
Og ekki má gleyma hjálparstofn-
unum sem verða sér alltaf úti um
hungursneyð um þetta leyti árs og
er það svo sem gott og blessað því
aö þegar hátíðin, sem hjartanu er
skyldust, nálgast finnst fólki til-
heyra að láta eitthvað gott af sér
leiða.
Og þótt það komi þessu máli í
sjálfu sér ekkert við sakar ekki að
geta þess að í Ameríku söfnuðu
menn eitt sinn dágóðri upphæð til
styrktar ekkju óþekkta hermanns-
ins.
Kveðja
Ben. Ax.
Finnurðu
átta breytingar?
69
Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins. En á neðri
myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða þeir
breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt að flnna
þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa
þetta trúum við þvi að allt komi þetta að lokum.
Merkið með hring eða krossi, þar sem breytingarnar eru,
og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar.
Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og
veitum þrenn verðlaun, öll frá versluninni Japis, Brautar-
holti 2. Þau eru Supertech ferðatæki (verðmæti 3.860,-), LED
útvarpsvekjari (verðmæti 2.350,-) og Supertech útvarpstæki
(verðmæti 1.365,-).
I öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu
en ný þraut kemur í næsta helgarblaði.
Góða skemmtun!
Merkið umslagið:
„Átta breytingar - 69, c/o DV, pósthólf5380,125 Reykjavík.
Verðlaunahafar 67. gátu reyndust vera: Sigríður Guð-
mundsdóttir, Boðaslóð 19, 900 Vestmannaeyjar (ferðatæki);
Trausti Finnsson, Melbæ 17, 110 Reykjavík (útvarpsvekj-
ari); Andrés Jónsson, Engjaseli 84,109 Reykjavík (útvarps-
tæki).
Vinningarnir verða sendir heim.