Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1987, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987.
Erlendbóksjá
Smásögur Bradbury
THE DAY IT RAINED FOREVER.
Höfundur: Ray Bradbury.
Penguln Books, 1987.
Eftírminnilegasta skáldsaga
bandaríska vísindasagnahöfund-
arins Rays Bradbury er án efa
„Fahrenheit 451“ um framtíðar-
þjóðfélag skipulagðra bóka-
brenna.
En Bradbury vaktí fyrst á sér
athygli sem smásagnahöfundur
og ýmis áhugaverðustu verk
hans eru einmitt af því tagi. Þegar
best tekst til skapar hann í sögum
sínum forvitnilegar persónur
sem búa við öfugsnúinn en jafn-
framt trúverðugan veruleika
einhvern tíma í framtíðinni.
í þessu smásagnasafni er að
finna tuttugu og þrjár sögur eftir
Bradbury. Hér eru nokkrar smá-
sögur sem gerast eiga á Mars sem
er eitt eftirlætisviðfangsefni
Bradbury, meöal annars „Dark
They Were and Golden-eyed“ um
lífseiga Marsbúa og samskipti
þeirra við jarðneska landnema.
Og sú magnaða saga „Here there
by Tygers“ um sérkennilega plá-
netu sem jarðneskir geimfarar
lenda á.
Bradbury hefur um áratuga
skeið verið í fararbroddi vísinda-
sagnahöfunda og þessar smásög-
ur eru tilvahn kynning á verkum
hans.
Ævi og ástir
Ari Onassis
ARI. THE LIFE, TIMES AND WOMEN
OF ARISTOTLE ONASSIS.
Höfundur: Peter Evans.
Penguin Books, 1987.
Einn af forvitnilegustu ævin-
týramönnum viðskiptalífsins á
lessari öld er gríski skipakóngur-
inn Aristotele Socrates Onassis.
Af dugnaði, hörku og hömlu-
lausri ástríðu byggði hann upp
eitt mesta íjármálaveldi lands
síns. Hann beitti til þess öllum
tiltækum ráðum, ólöglegum ef
annaö dugði ekki. Og náði tak-
marki sínu.
í þessari ævisögu er frá því
skýrt í meginatriðum hvemig Ari
byggði upp fyrirtæki sín þar til
hann stjómaði íjármálalegu stór-
veldi. En einnig er ítarlega fjallað
um einkalíf skipakóngsins: erfið-
leika og vonbrigði í íjölskyldulíf-
inu, sem náðu hámarki þegar
sonur hans lést ungur að árum,
og ævintýraleg kvennamál sem
fylgst var með víða um lönd, svo
sem langvarandi ástarsambandi
hans við söngkonuna Mariu CaU-
as og síðar hjónabandinu með
ekkju Jack Kennedy Bandaríkja-
forseta, Jacqueline.
Margt misjafnt hefur veriö sagt
um Ari Onassis og sumt með
réttu samkvæmt þessari bók. En
í honum var þóslega gífurlegur
náttúrukraftur sem knúði hann
áfram til mikilla afréka á við-
skiptasviðinu.
Pólitískar gamansögur
sem hitta beint í mark
NO LAUGHING MATTER. A COLLECTION
OF POLITICAL JOKES.
Valið hafa: Steven Lukes og
Itzhak Galnoor.
Penguin Books, 1987.
í löndum þar sem einræði eða al-
ræði ríkir og almenn skoðanaskipti
á opinberum vettvangi eru bönnuð
blómstrar þó ein tegund íjölmiðlun-
ar. Þar er átt við pólitískar gaman-
sögur um foringja flokks og lands
sem berast manna á milli.
Mark Twain sagði eitt sinn að þýsk
skrítla væri ekkert gamanmál. Og
vissulega er það svo að gamansögur
geta oft reynst mönnum dýrkeyptar
í einræðisríkjum: jafnvel kostað
menn frelsið í löndum eins og Þýska-
landi nasismans, Tékkóslóvakíu
kommúnismans og Santiago herfor-
ingjafasismans.
I þessari bók hafa tveir stjórn-
málafræðingar, annar breskur, hinn
ísraelskur, valið um 500 pólitískar
gamansögur úr viöamiklu safni sínu
sem þeir segja að í séu nú rúmlega
3000 slíkar sögur. Þeir flokka sögurn-
ar í fimm meginkafla eftir efni:
„Politics and Joking", „Boundaries
and Identity", „Debunking and Un-
masking", „Power and Resistance"
og „Facts of Life“.
Eins og þessi kaflaskipting ber með
sér eru sögurnar úr ýmsum áttum
og taka á flestum sviðum þjóðfélags-
ins. í allnokkrum tilvikum eru birtar
margar útgáfur af sömu skrítlunni
sem hefur þá verið aðlöguð að veru-
leika fleiri en eins lands eða snúið
srt-:v!> u M.ss, \
upp á marga stjórnmálaforingja.
Gamansögurnar eru yfirleitt stutt-
ar og hnitmiðaðar og hitta oft beint
í mark svo undan hlýtur að svíða hjá
þeim sem fyrir verða. Sanna þær
sögur enn það sem George Orwell
sagði eitt sinn að pólitísk gamansaga
væri eins konar smábylting.
Það er rétt að birta hér örstutt sýn-
ishorn úr bókinni í lauslegri þýð-
ingu:
Til dæmis söguna um mann sem
þurfti allt í einu að æla á miðju Vens-
elásartorginu í Prag. Maður nokkur
kom þá til hans og sagði: „Ég skal
segja þér, félagi, að ég er þér alveg
sammála!“
Þessi er um muninn á frelsi manna
í austri og vestri:
Á valdadögum sínum hittust þeir
Walter Ulbricht, leiðtogi austur-
þýskra kommúnista, og Willy
Brandt, kanslari Vestur-Þýskalands,
og spjölluðu saman.
„Segðu mér, Herr Brandt, átt þú
þér eitthvert tómstundagaman?"
spyr Ulbricht.
„Já,“ svarar Brandt, „ég safna
gamansögum sem fólk segir um mig.
En þú?“
„Æ, já,“ svarar Ulbricht, „ég safna
fólki sem segir gamansögur um mig!“
Og svo ein um það hvað pólitískar
gamansögur eru af ýmsum taldar
hættulegar:
„Hefurðu heyrt fréttirnar? Pravda
ætlar að efna tíl samkeppni um bestu
pólitísku gamansöguna.“
„Jæja, og hver eru fyrstu verðlaun-
in?“
„Tuttugu ár.“
Þá er það sagan af rússneska vís-
indamanninum sem fór til Prag og
hélt þar fyrirlestur um geimferðir í
nútíð og framtíð:
„Þess verður skammt að.bíða,"
sagði hann „að við getum farið til
Mars, Júpíter, Satúrnus, Venus-
ar...“
Einn áheyrenda rétti hikandi upp
höndina:
„Segðu mér, félagi, hvenær megum
við þá fara til Vínarborgar?"
Já, það má vissulega hafa bæði
ánægju og gagn af þessu tímabæra
úrvali pólitískrar fyndni.
Frank Sinatra afhjúpaður
vegar á engan hátt dregið úr vinsæld-
um hans sem söngvara og skemmti-
krafts, en hann var um langt árabil
ókrýndur konungur glassúrliðsins í
Hollywood.
í þessari bók er farið mjög ofan í
saumana á uppruna Franks Sinatra
og ævi allri, jafnt einkalífi sem söng-
ferli, og ekkert dregið undan. Sinatra
birtíst hér oft á tíðum í frekar ógeð-
felldu ljósi þar sem sjálfselska og
óstöðvandi metorðagirnd virðast í
fyrirrúmi.
Menn geta svo velt því fyrir sér að
lestri loknum hvort þetta tvennt,
ásamt óbilandi sjálfstrausti, sé ekki
einmitt nauðsynlegt til þess að kom-
ast upp á tind frægðar og auðlegðar
í amerísku skemmtanalífi. Þar kom-
ast menn alla vega ekki áfram á
góðsemi og náungakærleika.
Metsölubækur
Bretland 1. Stephen King: Bandaríkin 1. Belva Plaín: S. Judith Viorst: NECESSARY LOSSES.
IT. THE GOLDEN CUP. (Byggt á Now York Times Book Re-
2. Catherine CooKson: ? PD .Íamtrc- view.)
BILL BAILEY. 3. Jack Higgins: NIGHT OF THE FOX. A TASTE FOR DEATH. 3. Stephen Coonts: FLIGHT OF THE INTRUDER.
4. Kingsley Amis: rianmnrlf
THE OLD DEVILS. IT.
5. P.J. James: S. Isaac Asímow: FnilNnATION AND FARTH 1. John Mortimer:
A TASTE FOR DEATH. PARADIS 1 MORGEN.
6. Raymond E. Feist: 6. Tom Clancy: RED STORM RISING. 2. Jean M. Auel:
A DARKNESS ATSETHAN HULEBJORNENS KLAN.
ON. 7. James Clavell: 3. Isabel Allende:
7. Jeffrey Archer: WHIRLWIND. ÁNDERNES HUS.
A MATTER OF HONOUR. 8. Dana Fuller Ross: 4. Jean M. Auel:
8. Paul Theroux: KENTUCKY! HESTENES DAL.
O-ZONE. 9, Picrs Anthony: 5. Elsa Morante:
9, Olivia Manning: VALE OF THE VOLE. HISTORIEN.
THE BALKAN TRILOGY. 6. Isabel Allende:
10. Lena Kennedy: DREAMS ARE NOT ENOUGH. KÆRLIGHED OG MORKE.
DOWN OUR STREET. 7. Karen Blixen:
Rit almenns eðlis: 1. Susan Hicks: Rit almenns eðlis: BABETTES GÆSTEBUD. 8. Umberto Eco: ROSENS NAVN.
THE FISH COURSE. 1. Joseph Wambaugh: ECGHOES IN THE 9. Gabriel G. Marquez:
2. Keith Floyd: HISTORIEN OM ET
FLOYD ON FRANCE. DARKNESS. BEBUDET MORD.
3. GILES CARTOONS. 4. Kitty Kelley: HIS WAY. 2. M. Scott Peck: 10. I. og R. Rachlin: 1fi ÁR I SIBIRIEN
THE ROAD tESS TRAVELED. (Byggt ,i Poiitiken Sondag.)
6. Stephenson: HOW TO BE A COMPLETE BITCH. (Byggt 6 The Sunday Timea.) 3. Beryl Markham: WEST WITH THE NIGHT. 4. Bill Cosby: FATHERHOOD.
Umsjón Elías Snæland Jónsson
HIS WAY. THE UNAUTHORIZED
BIOGRAPHY OF FRANK SINATRA
Höfundur: Kitty Kelley.
Bantam Books, 1987.
í Bandaríkjunum er það líklegt til
vinsælda og auðæfa að semja op-
inskáar ævisögur frægra manna þar
sem reynt er að komast að sem flestu
neikvæðu í fari þeirra og rekja í ítar-
legu máh. Nýlegt dæmi um slíkt er
umdeild ævisaga Elvis Presley.
Þessi bók fetar þá troðnu slóð. Kitty
Kelley, bandarískur blaðamaður
sem hefur skrifað umdeilda ævisögu
Jacqueline Kennedy Onassis, eyddi
þremur árum ævi sinnar í að reyna
að grafa upp allt það sem hún gat
um einkalíf söngvarans góðkunna
Frank Sinatra, ekki síst það sem
misjafnt mátti telja. í þessu skyni
átti hún meðal annars viðtöl við að
sögn um átta hundruð manns sem á
einn eða annan hátt höfðu átt sam-
skipti við kappann á löngum ferli
hans.
Sinatra hefur um langt skeið verið
umdeildur maður í Bandaríkjunum,
einkum vegna vináttu sinnar við,
þekkta mafiuforingja. Þá hefur hann
hvorki lært að temja skap sitt né
tungu og því látið margt flakka sem
betur væri ósagt. En þetta hefur hins
Árásin á Niimberg
THE NUREMBERG RAID.
Höfundur: Martin Middlebrook.
Penguin Books, 1987.
í síðari heimsstyrjöldinni hélt
breski flugherinn uppi sífelldum
loftárásum á iðnaðarborgir í
Þýskalandi. Markmiðið var að
draga úr framleiðslu Þjóðverja á
hernaðarlega mikilvægiun vör-
um. Loftárásirnar höfðu í for með
sér mikið tjón þótt umdeilanlegt
sé hvort þær hafi náð þeim mark-
miðum sem að var stefnt. En þær
kostuðu einnig breska flugherinn
marga flugmenn og flugvélar sem
voru skotnar niöur af þýskum
loftvarnabyssum.
í þessari bók er lýst einni slíkri
árásarferð, sem stóð í 24 stundir,
30.-31. mars árið 1944. 779
sprengjuflugvélar tóku þátt í árá-
sinni. 96 þeirra sneru ekki aftur.
Þessi aðgerð, sem átti að vera til-
tölulega hefðbundin árásarferð
gegn þýskri iðnaðarborg, varð í
reynd að mesta áfalli breska flug-
hersins í slíkri árásarferð.
Hvað gerðist?
Því lýsir sá snjalli breski sagn-
fræðingur Martin Middlebrook
ítarlega í þessari bók sem er
byggð á fyrirliggjandi gögnum á
Bretlandi og Þýskalandi og við-
tölum við fjölmarga þá sem komu
við sögu. í lokin fjallar hann um
þá kenningu sem sett var fram
fyrir nokkrum árum og vakti
nokkurt umtal að leyniþjónustu-
menn hafi látið Þjóðverja vita
fyrirfram um árásina og hafnar
henni.
Hvaðan komu
tölumar?
FROM ONE TO ZERO. A UNIVERSAL
HISTORY OF NUMBERS.
Höfundur: Georges llrah.
Penguin Books, 1987.
„Hvaðan komu tölurnar?
Hvemig lærði fólk að telja?“
Þessar spumingar skólanem-
anda komu stærðfræðikennaran-
um Georges Ifrah í opna skjöldu.
Hann hugsaði sig um og komst
að raun um að hann vissi ekki
svarið. Spumingamar vora hon-
um hins vegar svo hugleiknar að
hann fór sérstaklega aö kanna
uppmna talnanna. Þessi bók er
afrakstur þeirra athugana.
Ifrah rekur hér sögu talna allt
aftur til frumstæðra forfeðra
okkar. Elstu fornleifar gefa til
kynna að forfeður nútímamanns-
ins gerðu sér grein fyrir gildi
talna fyrir 20 til 30 þúsund ámm.
Fyrir um fimm þúsund árum eða
svo fóru Súmerar, Egyptar og
fleiri þjóðir fara að skrá tölur meö
myndletri. Það er svo ekki fyrr
en með tilkomu prenttækninnar
að núgildandi talnakerfi nær
yfirburðum.
Ifrah fjallar ítarlega um talna-
þekkingu og talnakerfi Súmera,
Egypta, Gyðinga, Rómverja, Fön-
ikíumanna, Grikkja og araba,
Kínverja, maja og hindúa, svo
nokkur dæmi séu tekin, og er það
afar fróðleg og auðskilin frásögn,
ríkulega myndskreytt.