Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1987, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1987, Side 19
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987. 19 Ákærður fyrír morð KENNEDYS 24 prn bandarísbur kommúnkli L Oswald • Lif og slarf Konnedys, bls. 3 • Myndir frá morðinu á bls. 5 MIKIU BARÁTTUMADUR OC MIKIll MAUUAt^TTIBSSS^ foœihrá&herra Bjaml B< minnht J. F. Kennodyt Band JOHNSON forsétí Ástsæll forséti fallinn ' UlMdlnflar < Oollai itgln Ömurlegt ústandí borginni og ótti í Dallas - þrjár síður helgaðar forsetanum í Vísi 23. nóvember 1963 Laugardaginn 23. nóvember 1963 var forsíða Vísis lögð undir frásögn af morði Kennedys. Að auki voru tvær síður inni í blaðinu. Menn voru agndofa og íslendingar sem aðrir harmi slegnir af þessum voðaatburði. Haft var eftir íslendingi, búsettum í Dallas, að ástandið í borginni væri ömurlegt og svo virtist sem borgarbúar væru haldnir sektartilfmningu vegna þess að atburðurinn skyldi gerast í borginni. Eftir aö tilkynnt var um lát forsetans var undar- leg kyrrð í borginni, kyrrð hryggðar og ótta. Fólk ráfaði um götumar í örvæntingu. sýna fólki hvernig maður John F. Kennedy var í raun og veru og við viljum gera það sannleikanum sam- kvæmt. Eins og aðrir menn átti Kennedy sér vandamál og honum urðu á mistök í lífmu,“ segir Jim Goddard leikstjóri. Yngsti forsetinn Kennedy var 35. forseti Bandaríkj- anna. Hann var fyrsti kaþólski forsetinn. Kennedy var fyrsti forseti Bandaríkjanna sem notfærði sér sjónvarp til að tala til þjóðarinnar. Myndaflokkurinn á að segja frá þeim þúsund dögum sem Kennedy var for- seti Bandatíkjanna; forsetanum; manninum og fjölskyldunni, völdum hans, persónutöfrum, áhrifum og ímyndinni sem hann gaf frá sér. Myndaflokkurinn hefst daginn fyrir kjör hans sem forseta í nóvember 1960 og hann nær til dagsins er morð- ið var framið, 22. nóvember 1963. Þetta er ekki eingöngu saga um póli- tískan frama heldur einnig íjölskyld- una, heimilið og einkalífið. John F. Kennedy var yngsti forseti Bandaríkjanna og þjóðin dáði hann. Það var því mikið áfall þegar hann var myrtur og margir minnast þeirr- ar stundar enn í dag. John F. Kennedy kom úr merki- legri fjölskyldu. Faðir hans, Joseph Kennedy, var írsk/amerískur. Hann var umsvifamikill í viðskiptum og Þrír Kennedybræður, Bobby (John Shea), John (Martin Sheen) og Teddy (Kevin Conroy). síðar sendiherra Bandaríkjanna í London en einnig þótti hann afburða snjall peningamaður. Sagt er að hann hafi selt öll verðbréf sín daginn fyrir verðbréfahrunið mikla í Wall Street og orðið stórauðugur. Hann átti níu börn. Elsti sonurinn féll í síðari heimsstyrjöldinni, annar varð forseti og síðar myrtur, þriðja barnið var þroskaheft, fjórða dó í flugslysi, sjö- unda var myrt og áttunda er Teddy Kennedy sem einn er lifandi af fimm bræðrum. Á þing 29 ára John F. Kennedy fæddist 29. maí 1917 í Boston í Massachusetts. Hann hefði því orðið sjötugur í maí sl. hefði hann lifað. John var fyrst kjörinn á þing aðeins 29 ára gamall. Hann varð strax virtur stjórnmálamaður en fékkst einnig við ritstörf. Hann fékk sæti í öldungadeild þingsins árið sigraði hann í öllum fylkjum þegar að forkosningum kom. Hann sigraði þó Richard Nixon naumlega þegar að kosningu kom. Upphaf og endir Við upphaf þáttanna er sagt frá morðinu og viðbrögðum nánustu ættingja og samstarfsmanna. Síðan er lýst kosningunum og undirbún- ingi embættistökunnar, einnig hvernig hann fékk Róbert bróður sinn til að taka að sér embætti dóms- málaráöherra. Einnig er sagt frá innrásinni í Svínaflóann sem bæði var ósigur og niðurlæging fyrir Bandaríkjamenn. í öðrum þætti er sagt frá mannrétt- indamálum í Suðurríkjunum. Jackie vakti athygli fyrir eyðslusemi og ýmsir mætir menn, svo sem Martin Luther King, koma við sögu. Sagt er frá ferð forsetahjónanna til Evrópu og veikindum Joseps Kennedy. í lokaþættinum, sem sýndur verð- ur í kvöld, er sagt frá Kúbudeilunni, fréttum um orðsendingar á milli Kennedy og Krúsjoffs og skipaferð- um á Karíbahafinu. Sagt er frá ræðu Kennedys í Vestur-Berlín og ræðu Martins Luthers King sem var flutt um svipað leyti. Fylgst er með forset- anum, fjölskyldunni og markverðum atburðum í sögunni allt fram til hins örlagaríka dags, 22. nóvember 1963, í Dailas. -ELA Það ber enginn á móti þvi að John F. Kennedy hafi geislað af persónu- töfrum enda átti hann hug og hjarta manna um allan heim. 1952. Árið 1953 kvæntist John Jaque- line Bouvier sem var tólf árum yngri en hann. Þau áttu saman þrjú börn,' Karolínu, sem var sex ára þegar fað- ir hennar var myrtur, John, sem var þá þriggja ára, og Patrick, sem lést tveimur dögum eftir fæðingu, sum- arið 1963. John F. Kennedy beitti sér fyrir ýmiss konar velferðarmálum og mannréttindum. Fjórum árum áður en hann var kosinn forseti hóf hann í raun kosningabaráttu sína enda Foreldrar Johns F. Kennedy, Rose (Geraldine Fitzgerald) og Joe Kennedy (E.G. Marshall), i myndaflokknum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.