Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1987, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1987, Page 24
24 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987. „Geti maður ekki látiö sér lynda að vera af og til kallaöur „moldrík- ur“ er maður auli og getur aöeins tekiö aulalegar ákvaröanir. Þaö þýðir þó ekki að þótt maður sé æðstráðandi í einu stærsta fyrir- taeki Danmerkur, Spiessamsteyp- unni, eigi maður aö taka þar allar ákvarðanir. Þaö er skynsamlegt að láta sér nægja að taka aðeins stærstu ákvarðanimar og helst að gera það brosandi, einkum ef það r'f;: „Það er skynsamlegt aö láta sér nægja að taka aðeins stærstu ákvaröanirnar og helst að gera það bros- andi, einkum ef það gerir þeim sem starfa meö manni léttara að sætta sig við þær.“ kynnist stööugt nýju fólki heldur hún tryggð við gamla vini og vin- konur. Og þótt hún hafl úr miklu að spila segir hún með vissu stolti að hún sé af verkafólki komin. Hún hafi þó ekki átt í neinum vanda með að breyta um lifsstíl að svo miklu leyti sem það hafl verið nauðsynlegt. „Við látum fara vel um okkur á sama hátt og við höfum alltaf gert. Viö sitjum ekki og mokum í okkur Einkaeigandi Spiesfyrirtækjanna Aðalstj ómandinn má ekki óttast um vinsældir sínar „Hann á aðeins að taka helstu ákvarðanir,“ segir Janni Spies „Þaö má e( til vill segja að ég sé dálitið nfsk og jafnvel smásmuguleg. En ég er eln's og Sfmon að því leyti tfl aö ég er ekki þeirrar skoðunar aö maöur eigi að sóa peningunum f alls kyns tllraunir." gerir þeim sem starfa með manni léttara aö sætta sig við þær.“ Trúaryfirlýsing Með nokkurn veginn þessum orðum, þó ef til vill á dálítið hisp- urslausari hátt, setur Janni Spies, 25 ára, fram „trúaryfirlýsingu" sína. Og með hana í huga getur það varla talist tilvfljun að stjóm fyrir- tækjasamsteypunnar skuli vera skipuð þeim sem í henni sitja eða að aðalframkvæmdastjórinn, E.H. Jensen, er líkari „einum meðal jafningja“ en „einræðisherranum sem gegnir framkvæmdastj óra- starfinu'1. Og þótt Janni Spies geri sér ef til vill ekki grein fyrir því gefur þaö henni gott tækifæri til þess að fá yfirsýn yfir fyrirtækin en það gæti aftur orðið til þess að hún gæti síðar tekið harða afstöðu gegn þessari stjóm sem hún hefur svo oft lýst yfir að sé starfi sínu mjög vel vaxin. Þess sér varla merki Það em nú liðin átta ár síðan Janni Brodersen, þá 17 ára, byijaði sem vikastúlka hjá Spies. Þess sér þó varla merki á ytra borðinu að svo langt sé síðan. Hún er létt í lund, hlær gjaman og er ótrúlega opinská. Þá er hún mjög jákvæð í afstöðu sinni til annarra og minnir því frekar á unga og glaöa stúlku en þá 25 ára gömlu konu sem er svo efnuð aö eignir hennar eru metnar á aö minnsta kosti fimm milljarða króna (ísl). Aftur á móti hefur hún bætt miklu við mannþekkingu sína og svarar sá þekkingarauki til fleiri ára en þeirra sem liðin em síðan hún var vikastúlka. „Þaö er ekki rétt aö ég sé önnum kafin og í fríi samtímis. Slíkur stjómarformaöur er ég ekki og það er ekki rétt að ég hafi nokkm sinni sagt að ég sé það,“ segir Janni Spi- es og vísar til ummæla um sig. Yfirsýn „Þaö sem ég vildi aftur á móti segja er að sem stjómarformaður og eigandi er ég alls ekki að reyna að sýna meiri þekkingu en fram- kvæmdastjóramir mínir. Sem stjómarformaöur er ég að reyna aö öölast meiri yfirsýn en ég hef nú. Þess vegna skipti ég mér ekki af smærri atriöum, aðeins því sem meira skiptir. Af þeirri ástæðu hef ég lagt á hfiluna þær áætlanir sem ég var búin að gera um að afla mér einhvers konar menntimar á sviði rekstrarhagfræði. Til þess hef ég einfaldlega ekki tíma. Með stjómarmönnum mínum ætla ég aö reyna að vega og meta tillögur framkvæmdastjóranna svo hægt sé að taka réttar ákvarðanir þegar þær þarf að taka. Það þýðir þó ekki aö ég ætli að vera að blanda mér 1 málin í tíma og ótíma. Maður á ekki að misnota rétt sinn til ákvarðanatöku. Ósanngjarnt Þaö er mjög ósanngjamt að mínu mati aö tala um kjaftasamkomu. Enginn af stjómarmönnunum hef- ur tíma til þess að sitja og spjalla bara spjallsins vegna." Svo bætir hún við: „Eftir aö Símon lést þurfti aö ger- breyta öllum fyrirtækjarekstrinum og hverfa frá einkafyrirtækisform- inu yfir í hlutafélagsformið. Það var ekki búiö að gera búið upp fyrr en í maí i ár og því höfum við að- eins haft hálft ár til þess að koma nýja fyrirtækinu í þá vem sem við stefnum að. Hafi fundirnir verið margir er það meðal annars vegna þess að taka hefur þurft ákvaröan- ir sem ekki varö skotið á frest. Sjálf tel ég hins vegar að sá dagur komi er viö þurfum aðeins að halda fimm stjómarfundi á ári.“ íhaldssöm Janni Spies, sem er smekkvís og lætur sér annt um ytra útlit sitt, er ekki hrædd viö að viðurkenna að innst inni sé hún dálítið íhalds- söm þegar fjármál eru annars vegar. Hún kýs því öryggi og hefð- bundna afstöðu fram yfir tilrauna- starfsemi, sérstaklega þegar taka skal um það ákvarðanir hvemig veija á peningum viðskiptavin- anna. „Þaö má því ef til vill segja," seg- ir hún, „að ég sé dálitiö nísk og jafnvel smásmuguleg. En ég er eins og Símon var aö því leyti til að ég er ekki þeirra skoðunar að maður eigi aö sóa peningunum í alls kyns tilraunir. Líti því einhver þannig á aö við séum dálítiö heíöbundin í rekstrin- um þá er það í raun aðeins vegna þess að við erum þeirrar skoðunar aö okkur beri aö haga okkur eins og viðskiptavinimir vilja. Svo lengi sem viö hér heima þurf- um aö búast við alls konar veðri á sumrin og leiðinlegum vetrum held ég að langflestir kjósi Miðjaröar- hafsströndina á sumrin og Kanarí- eyjamar á vetuma. Mín persónulega skoöun er aftur á móti aö New York sé afar áhuga- verð borg en mér finnst það þó ekki skynsamleg stefna að reyna aö efna til ódýrra fjöldaferöa þang- aö og hvers vegna ætti að vera betra aö fara til Flórída? Tímamis- munurinn er sex eða sjö tímar og fólk verður eftir sig eftir þotuflug- ið. Er ekki betra að fara til Gran Canarias. Tímamismunurinn er enginn og flugið tekur fimm tíma.“ Einkalífið íhaldssemi Janni Spies kemur einnig fram í einkalífinu. Þótt hún rússneskum kavíar. Vinir mínir vita vel að það er ekki alltaf létt að vera í mínum spomm. En það má þó ekki misskilja þessi orð. Að vísu kom þaö fyrir hér áður fyrr að ég var næstum búin að harma að ég skyldi vera komin í þessa aðstöðu. En nú er ég fyllilega sátt við að bera þá byröi sem því fylgir að vera eigandi stórrar fyrirtækja- samsteypu og að þurfa að bera ábyrgö gagnvart starfsfólki og við- skiptavinum. Og ég get bætt því við að ábyrgö er í rauninni alls ekki slæm.“ Það kemur því ef til vill ekki á óvart að Janni Spies telur af því góða hugmyndir um að starfsfólkið fái að hafa áhrif á reksturinn. Starfsmenn flugfélagsins Conair hafa um nokkurt árabil haft full- trúa í stjóm þess. Hún vill þó ekki ganga svo langt aö draga sjálf fulltrúa starfsfólks- ins inn í stjórnir fyrirtækjanna. „Ef það vill láta tú sín heyra verö- ur það sjálft að taka fyrsta skrefið," segir hún. I stjóm þess fyrirtækis, sem mestu ræður, þess sem á í rauninni öll hin fyrirtækin, vill hún þó helst aðeins hafa þá stjómarmenn sem hún hefur sjálf valið. „Ég er ekki þeirrar skoðunar," segir hún, „að starfsfólkið þurfi endilega að hafa sömu þekkingu á fyrirtækjunum og ég eða þann áhuga á velgengni þeirra sem ég hef. „Efst uppi“' vil ég því helst vera sú sem ræður ef um þaö er aö ræða að segja síðasta oröið.“ Dugmikil kona Janni Spies verður ekki móðguö þótt hún sé spurö aö því hvort hún óttist ekki að verða álitin „hörö í hom aö taka“. „Ég vona aö ég verði það aldrei. Það er hins vegar Ijóst að fólk getur smám saman orðiö þaö án þess að gera sér grein fyrir því. Ég held hins vegar að ég hafi stað- ið af mér undanfarin ár án þess að bíða andlegt tjón. Þótt ég sé skapmikil er ég mjög þolinmóð og venjulega er ég já- kvæð og læt liggja vel á mér. Ég verð sjaldan reið, frekar leið, ef eitthvað fer úrskeiðis. Minn heimur er annars enginn dans á rósum og ég fæ ótrúlega lít- ið hrós frá öðram. Ástæðan er ef til vill sú aö fólk óttast að ég líti á það sem einhvers konar smjaður. Ég get hins vegar huggað mig viö að hrósa öðram. Mér þykir gott að geta þaö. Þó er ég ekkert hrædd við aö segja fólki til syndanna ef mér sýnist það nauðsynlegt." Þýð. ÁSG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.