Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Page 10
10
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
HREINSIÐ UÓSKERIN
REGLULEGA.
DRÚGUM ÚR HRAÐA!
|| UMFERÐAR
HJOLBARÐAR
þurfa að vera með góðu mynstri allt árið.
Slitmr hjólbarðar hafa mun minna veggrip
og geta verið hættulegir - ekki sist
í hálku og bleytu.
DRÚGUM ÚR HRAÐA!
yUMFERÐAR
RÁO
Varmi
BlLASPRAUTUN / BllARÉTTINGAR
AUÐBREKKU 14. KÖPAV., SlMI 44250
P
4
VESTUR ÞYSK URVALSVARA
400 hr./MÍN. 2,2 KW
• 40 og 90 Itr. kútur
• TURB0 KÆLING/ÞRÝSTI -
JAFNARI
• ÖFLUGUSTU EINS FASA
PRESSURNAR Á MARKAÐNUM |
I
I
I
I
GREIDSLUKJ0R
MARKAÐSÞJÓNUJTAN j
Sldphohi 19 3. hæð |
t(fyrir ofan Radíóbúdina) ■
l sími; 2 6911
Einhell
vandaðar vörur
<m\,
M$m>
ARGON-
SUÐUVÉLAR
Á GÓÐU VERÐI
Skeljungsbúðin
Síöumúla 33
símar 681722 og 38125
Útlönd
Blóöugar forsetakosn-
ingar í El Salvador
Þrír fréttamenn urðu fórnarlömb bardaganna í El Salvador um helgina og sést hér lík eins þeirra. Simamynd Reuter
Hægri maðurinn Alfredo Cristiani,
forsetaframbjóðandi Lýðræðis-
bandalags þjóðernissinna í E1
Salvador, tók snemma forystuna í
forsetakosningunum í E1 Salvador í
gær sem einkenndust af bardögum
milli skæruliða og stjórnarher-
manna. Þrír blaðamenn voru meðal
þeirra sem biðu bana í átökunum.
Mörgum kjörstöðum var lokað fyrr
en áætlað var vegna bardaga,
sprenginga og skemmdarverka
skæruliða sem ollu rafmagnsleysi
um nær allt land. Skæruliðar Fara-
bundo-hreyfmgarinnar, sem viður-
kenna ekki kosningarnar, segjast
hafa drepið hundrað og fimmtíu her-
menn í bardögum víðs vegar um
landiö um helgina en yílrvöld segja
aö fjórtán skæruliðar og tveir her-
menn hafi látið lífið.
Varnarmálaráðherra E1 Salvador,
Eugenio Vides Casanova, hefur lofað
rannsókn á 'dauöa fréttamannanna
þriggja en einn þeirra var hollenskur
sjónvarpsmaður. Hann var skotinn
til bana af hermönnum í austurhluta
landsins þegar þeir réðust á skæru-
liða, að því er félagar sjónvarps-
mannsins segja. Bandarískur ljós-
myndari segir að herþyrla hafi skotið
á tvo bíla, sem greinilega hafi verið
merktir sem fréttamannabílar, þegar
þeir voru á leið meö Hollendinginn
á sjúkrahús. Á laugardaginn skutu
hermenn til bana ljósmyndara og
særðu annan þar sem þeir ferðuðust
um á mótorhjóli. Báðir voru þeir í
þjónustu Reuterfréttastofunnar. i
gær var sjónvarpsmaður frá E1
Salvador skotinn tO bana. Alls hefur
rúmur tugur fréttamanna látið lífið
í borgarastyrjöldinni í E1 Salvador
sem staðið hefur i níu ár.
Skæruliðar hvöttu almenning til
að fara ekki á kjörstaði og settu á
samgöngubann í síðustu viku í mót-
mælaskyni við það sem þeir kalla
afsökun stjórnarinnar til að halda
borgarstyrjöldinni áfram. Áætlað er
að rúmlega 60 prósent atkvæðabærra
manna hafi farið á kjörstað.
Lýöræðisbandalag þjóðernissinna,
sem mannréttindasamtök hafa sagt
vera í tengslum við dauðasveitir
hægri manna, hefur lofað hörðum
aðgerðum til að binda enda á borg-
arastyrjöldina í E1 Salvador sem alls
hefur krafist 70 þúsund mannslífa.
Frambjóðandi demókrata, Guillermo
Ungo, taldi í gær ekki víst að Lýðræö-
isbandalagið næði hreinum meiri-
hluta. Sigurvegari kosninganna í
gær þurfti meira en 50 prósent at-
kvæða til að sleppa við úrslitakosn-
ingar í næsta mánuði um það hver
veröi eftirmaður Duartes en stjórn
hans fær rúmlega milljón dollara á
dag í aöstoð frá Bandaríkjunum. Tal-
ið er að frambjóðandi flokks Duart-
es, KristOega demókrataflokksins,
Fidel Chavez Meria, verði í ööru sæti
íkosningunum. Reuter
Frambjóðandi Lýðræðisbandalags þjóðernissinna
í El Salvador, Alfredo Christiani, var sigurviss í
gær eftir að kjörstöðum var lokað. Simamynd Reuter
Hermenn á leið eftir skæruliðum sem gert höfðu
árás nálægt kjörstað.
Símamynd Reuter
Fréttamenn leita skjóls i bardögum stjórnar-
hermanna og skæruliða.
Simamynd Reuter
Stjórnin viður*
kennir mistök
Talsmenn breska Verkamanna-
flokksins sögðu í gær að þeir hefðu
grun um að rfkisstjórn Margrétar
Thatcher væri að reyna að breiða
yfir staðreyndir varðandi spreng-
ingu Pan Am júmbóþotunnar yfir
Lockerbie í Skotlandi í desember eft-
ir að uppskátt varð að aðvörunarbréf
var sent of seint.
Ríkisstjórnin viðurkenndi í gær að
bréf, sem var dagsett 19. desember,
tveimur dögum fyrir slysið, hefði
ekki verið sent fyrr en í janúar.
Talsmaður samgönguráðuneytis-
ins sagði að bréfið heföi tafist vegna
þess að þurft hefði að útbúa litmynd-
ir af kasettutæki sem taliö var að
sprengja væri í.
Ileuter