Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Síða 28
28
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
íþróttir
Frétta-
stúfar
Frosttapaði
Kínverski heims-
meistarinn Yang
Yang sigraöi Danann
Morten Frost í úr-
slitaleik á opna All England mót-
inu í badminton sem lauk í Lon-
don i gær. Yang sigraði af öryggi,
15-6 og 15-7, en Frost var þarna
að leika til úrslita á þessu móti
áttunda árið í röð. Þar af hefur
hann sigrað flórum sinnum, en
Yang hefur áður lengst náð í 8-
manna úrsht á mótinu. Leikur-
inn þótti óvenjustuttur en Yang
var aðeins 37 mínútur að afgreiða
Danann.
Kínverjar hrepptu einnig gullið
í einliðaleik kvenna en þar vann
Li Iingwei sigur á Susi Susanti,
heimsmeistara unglinga frá Indó-
nesíu, 11-8 og 11-4 í úrslitaleik.
Afríkubúar fljótastír
Afríkubúar hrepptu í
gær tvenn gullverð-
laun af flórum á
heimsmeistaramót-
inu í víöavangshlaupi sem fram
fór í norska bænum Stavanger.
John Ngugi frá Kenýa sigraði í
karlaflokki og Addis Abebe frá
Eþíópíu í piltaflokki, en í síðar-
nefnda flokknum röðuðu Kenýa-
menn sér í sæti tvö til fimm. í
kvennaflokkum voru sigurvegar-
ar hins vegar evrópskir. Annette
Sergent frá Frakklandi vann í
eldri flokknum og Malin Ewerlo-
es frá Svíþjóð i þeim yngri.
Breti vann á Spáni
Breski kylfmgurinn Mark Roe
vann um helgina sinn fyrsta sig-
ur á stórmóti í Evrópu þegar
hann varð hlutskarpastur á opna
katalónska meistaramótinu.
Hann háði einvígi við Spánveij-
ann kunna, Jose-Maria Olazabal,
og lék á 279 höggum en sá
spænski á 280. Gordon Brand og
Colin Montgomerie frá Bretlandi
náöu einnig að leika á 280 högg-
um.
Kvalfoss meistari
Erik Kvalfoss frá Noregi tryggði
sér um helgina heimsmeistaratit-
ilinn í tvíþraut norrænna skíöa-
íþrótta, þrátt fyrir heldur slaka
frammistöðu á tveimur síðustu
mótum vetrarins sem haldin
voru í heimalandi hans. Hann
varð sjöundi á því fyrra en var
dæmdur úr leik á þvi síðara eftir
að hafa skipt um byssu á miðri
leið. Elena Golovina frá Sovét-
ríkiunum varö heimsmeistari í
kvennaflokki en hún hafði haft
svipaða yfirburði og Kvalfoss í
stigakeppninni í vetur.
Atvinnuknattspyrna
»Rúmeníu í ár?
Rúmenar hafa hug á
JP. að taka upp atvinnu-
mennsku
knatt-
spymu í sumar, eða
áður en næsta keppnistímabil
gengur i garð. Til þessa hefur
áhugamennska verið ríkjandi í
landinu, að nafninu til, en sterk-
ustu liðin hafa þrátt fyrir það æft
tvívegis á dag og leikmenn 1.
deildar hafa fengið aukagreiðslur
frá ríkinu, til viöbótar við þau
laun sem þeir hafa haft fyrir sína
hefðbundnu atvinnu. Hátt setfur
maður í knattspyrnuforystu
landsins sagði um heigina að
ástæðan fyrir breytingunni væri
sú að landsliðsmaöur frá Steaua
Búkarest hefði í desember flúið
til Belgrad og gerst þar atvinnu-
maður hjá Rauðu stjömunni.
Rúmenar hefðu ekkert getað gert
í málinu þar sem leikmaöurinn,
Miodrag Belodedic, befði sam-
kvæmt þeirra bókum verið
áhugamaöur í heimalandinu.
• Júlíus Jónasson freistar þess aö koma boltanum framhjá Peter Pysall, hinum öfluga varnarmanni Magdeburg.
Júlíus skoraði tvö mikilvæg mörk fyrir Val seint í leiknum í Magdeburg á laugardaginn, en í lokin voru það Pysall
og félagar sem hrósuðu happi og sæti í undanúrslitum keppninnar.
Stórleikur Óla
Ben ekki nóg
- Valur úr leik eftir hræðilegar lokaminútur í Magdeburg
Vonir Valsmanna um að komast í
undanúrslit Evrópukeppni meistara-
hða í handknattleik uröu aö engu á
örlagaríkum þremur mínútum í
Magdeburg á laugardaginn. Þeir
virtust hafa leikinn í hendi sér, stað-
an var 18-15, heimamönnum í hag,
þegar aðeins þijár mínútur voru til
leiksloka, en á þeim skamma tíma
gerði Magdeburg þrjú mörk, vann
leikinn, 21-15, og þar með var marka-
tala liöanna jöfn. Valur hafði unnið
heimaleikinn, 22-16, en Magd.eburg
kemst í undanúrslitin á því að hafa
skorað fleiri mörk á útivelli.
Magdeburg skoraöi tvö fyrstu
mörk leiksins en Siguröur Sveinsson
hafði jafnað, 2-2, á 5. mínútu. Heima-
menn komust í 5-2 en síðan mátti sjá
á töflunni 6-4, 7-5 og 8-6. Þá 10-6 og
11-7, en Valdimar Grímsson minnk-
aði muiúnn í 11-8. Á lokasekúndum
hálfleiksins fékk Valur gullið tæk-
ifæri til aö laga stöðuna enn frekar
en þá skaut Sigurður Sveinsson í
stöng úr vítakasti.
Martröð í byrjun síðari
hálfleiks
Fyrri hluti síðari hálfleiks var
hrein martröö fyrir Valsmenn.
Magdeburg skoraði fimm mörk gegn
einu og staðan var skyndilega orðin
16-9. Austur-Þjóðverjarnir höfðu þar
með náð eins marks forskoti saman-
lagt. Skömmu síðar stóð 18-11 en þá
gerðist það að Ólafur Benediktsson
kom í mark Valsmanna.
Óli Ben varði af snilld
Óli sýndi strax gamla takta, varði
hvert skotiö á fætur öðru og Valur
gerði íjögur mörk í röö. Staðan 18-15
og útlitið orðið gott. En þá gerðist
það undir lokin að dæmd voru fjögur
sóknarbrot í röö á Valsmenn. Fjögur
hraðaupphlaup Magdeburg með Hol-
ger Winselmann i fararbroddi, og
þrjú þeirra skiluðu mörkum. Það síð-
asta, á síðustu mínútunni, eftir að
dæmdur hafði verið mjög umdeildur
ruðningur á Theodór Guðfinnsson.
Sex sekúndna sókn í lokin
Valur fékk boltann þegar 6 sekúnd-
ur voru eftir og þá var enn von. Sókn-
inni lyktaði með aukakasti og úr því
skaut Sigurður Sveinsson í varnar-
vegg Þjóðverjanna. Leikurinn var
úti, Valsmenn höföu fallið fyrir einu
frægasta félagsliði Evrópu með
minnsta hugsanlega mun.
Sigurður Sveinsson var atkvæða-
mestur Valsmanna og skoraði 6
mörk, 3 þeirra úr vítaköstum. Valdi-
mar Grímsson skoraði 4, Jón Kristj-
ánsson 3 og Júlíus Jónasson 2. Hol-
ger Winselmann, hornamaðurinn
eldfljóti, var í aðalhlutverki hjá
Magdeburg og skoraði 8 piörk.
-VS
Vítaköi
réðu úi
- sagði Stanislav Mo
„Við töpuðum þessum slag ekki hérna í
Magdeburg, heldur í Laugardalshöllinni
með því að skora ekki þar úr fimm víta-
köstum. Síðan mistókust tvö í síðari leikn-
um, og þessi 7 víti réðu úrslitum um að
Magdeburg kemst í undanúrslitin en ekki
Valur. Ég kenni ekki dómurunum um
úrslitin,“ sagði Stanislav Modrowski, hinn
pólski þjálfari íslandsmeistara Vals í
handknattleik, í samtali við DV eftir tap
Valsmanna í Magdeburg.
„Valsliðið lék alls ekki illa, allir börðust
vel og við höfðum góð tök á leiknum í fyrri
hálfleik, hleyptum þeim aldrei langt fram-
úr okkur. í síðari hálfleik datt þetta nokk-
uð niður, Magdeburg skoraði nokkur ódýr
mörk, en þegar Ólafur Benediktsson kom
í markið fór allt að ganga. Við vorum orðn-
ir sjö mörkum undir og menn gerðu sér
grein fyrir því að engu var að tapa og þaö
losnaði um pressuna sem hvíldi á liðinu.
Magdeburg missti tökin á leiknum, þau
voru komin í okkar hendur."
Valur betri en Magdeburg
„Þegar dæmt var á Theodór á síðustu
mínútunni héldu allir leikmenn Vals að
dæmt yrði aukakast eða vítakast og stopp-
uðu alveg. Á meðan brunuðu Þjóðveijarn-
ir upp völlinn og skoruðu úrslitamarkið.
Ég er sannfærður um það eftir þessa
leiki aö Valur er með betra lið en Magde-
Vendipi
kringum
- sagði Pétur Guðmu
„Vendipunkturinn í. leiknum var sitt
hvoru megin við leikhléið. Á síðustu sek-
úndu fyrri hálileiks skaut Sigurður
Sveinsson í stöng úr vítakasti, og í byrjun
þess síðari var varið frá okkar mönnum
úr dauðafæri af línu. Staðan breyttist í
12-8 í staðinn fyrir 11-10 og þetta réði úr-
slitum að mínu mati,“ sagði Pétur Guð-
mundsson, liðsstjóri Vals, í samtali við
DV um Evrópuleikinn í Magdeburg.
„Það er hrikalegt að falla út úr keppn-
inni á þennan hátt, jafnri markatölu, ekki
síst þegar möguleikarnir í stöðunni voru
svona miklir. Það sem geröist á lokamín-
útunum var að Þjóðverjarnir tóku Júlíus
og Sigurð úr umferð, hinir fóru of nálægt
vörninni og fengu dæmt á sig sóknarbrot.
Þau voru þó vafasöm, í eitt skiptið var
slegið á hönd Jóns og þegar Theodór fór
inn af línunni á síöustu mínútunni héngu
tveir Þjóðverjar í honum. Annar dómar-
Hef ak
annai
- sagöi Stefán Carlssi
„Að mínu mati var hér um hreint dóm-
arahneyksli að ræða. Dómararnir hol-
lensku dæmdu Val í óhag allan leikinn,
tóku af liðinu ein sjö vítaköst, og það gróf-
asta var á síðustu mínútunni þegar brotið
var á Theodóri, einn Þjóðveiji stóð inni í
vítateignum og annar lamdi í höndina á
honum, og þeir dæmdu ruðning á Theod-
ór. Eg hef upplifað margt i ferðum með
íslenska landsliðinu en hef aldrei séð ann-
að eins,“ sagði Stefán Carlsson, læknir
Valsliðsins, í samtali viö DV.
„Fyrrverandi formaður vestur-þýska
handknattleikssambandsins, Bemard