Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1993, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1993, Page 10
10 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1993 Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverö á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Betra en ekki neitt Stofnanir landbúnaðarins hafa gefið út bækling, þar sem endurbirt er röð baráttuglaðra blaðaauglýsinga þeirra með frekari skýringum og rökstuðningi. Bækling- urinn er fróðlegur fyrir þá sök, að hann sýnir, hvað stend- ur eftir af röksemdafærslu á vegum þessara stofnana. Hálfur sannleikur er í hluta þessa málflutnings land- búnaðarkerfisins. Til dæmis er rétt, að beitarálag hefur minnkað við fækkun sauð^ár. Ósagt er hins vegar, að álagið er of mikið á afréttum móbergssvæðanna, þar sem landey ðing er meiri en landgræðsla enn þann dag í dag. Ekki er hægt að segja, að sauðQárrækt sé komin í sátt við landið, fyrr en lögð hefur verið niður beit á afrétt- um móbergssvæðanna og snúið hefur verið vöm í sókn í landgræðslu þessara svæða. Fram að þeim tíma verður landbúnaðurinn áfram sakaður um landeyðingu. Það er líka hálfur sannleikur, 'að beingreiðslur fari ekki beint í vasa bænda. Þeir þurfa að greiða ýmsan kostnað við búreksturinn og þurfa því meiri tekjur en sem nemur launum einum. Osagt er hins vegar, að í þessu felst einmitt margumtöluð verðmætabrennsla. Gallinn við landbúnaðinn er, að hann er þrefalt dýrari í rekstri en atvinnuleysisbætur mundu vera. Hann þarf til dæmis að nota mikinn gjaldeyri í kaup á vélum, tækj- um og kjamfóðri og mikið af innlendu fjármagni til að halda uppi stofnunum á borð við Áburðarverksmiðjuna. Röng er sú fullyrðing bæklingsins, að ríkið hafi dregið úr stuðningi við landbúnaðinn. Samkvæmt bækiingnum nemur stuðningurinn 6,8% ríkisútgjalda á þessu ári, en nam 6,7% árið 1986 og 6,9% árið 1987. Stuðningurinn sveiflast til, en hefur ekki minnkað síðustu sjö árin. Röng er sú fullyrðing bæklingsins, að niðurgreiðslur séu fyrst og fremst neytendum til hagsbóta. Þær beinast nefnilega ekki að þeim matvælum, sem ódýrast em og henta bezt fátæku fólki, heldur að þeim tiltölulega litla og dýra hluta, sem framleiddur er af landbúnaðinum. Einnig er ruglað saman þeim hluta matarreiknings heimilanna, sem notaður er til að greiða innlenda bú- vöra og innflutta, þar á meðal komvöra og margs konar pakkavöra. Lækkun matarreiknings vegna lækkunar innfluttrar búvöra er ekki landbúnaðinum að þakka. Gagnrýnendur landbúnaðarstefnunnar segja, að hún kosti neytendur og skattgreiðendur 17-19 milljarða á hverju ári, annars vegar í hömlum á innflutningi erlendr- ar búvöra og hins vegar í útgjöldum ríkissjóðs til land- búnaðar. í bæklingnum er ekki reynt að svara þessu. í rauninni hefur landbúnaðarráðuneytið viðurkennt 19 milljarða árlegan stuðning með tilboði sínu til alþjóð- lega tollamálaklúbbsins GATT. Þegar stofnanir landbún- aðarins þurfa að verja innflutningshömlur, hentar það þeim að nota réttar tölur, sem þær hafna í annan tíma. Gagnrýnendur landbúnaðarstefnunnar segja, að leggja beri niður sérstök afskipti ríkisins af landbúnaði, þar á meðal innflutningshöft á kostnað neytenda og greiðslur úr ríkissjóði á kostnað skattgreiðenda. í bæklingi land- búnaðarins er lítið reynt að rökræða þetta atriði. Þó er þar bent á, að atvinnuleysi kosti líka peninga. Það er að vísu rétt, en það kostar aðeins brot af þvi, sem landbúnaðurinn kostar núna. Hefðbundinn landbúnaður á íslandi er í rauninni dulbúið atvinnuleysi, sem er þre- falt dýrara en venjulegt atvinnuleysi mundi vera. Auglýsingaröð og útskýringabæklingur stofnana land- búnaðarins era ekki merkilegt innlegg í umræðuna um landbúnaðinn, en eigi að síður betra en ekki neitt. Jónas Kristjánsson Rússnesk þjóðremba magnar vanda Eftir að úrslit tóku að berast úr einraenningskjördæmum í kosn- ingum til Rússlandsþings sýndi það sig að kosningasigur ofstopafullra þjóðemissinna er minni en útlit var fyrir meðan aðeins lágu fyrir atkvæðatölur úr listakosningunni. Af 450 þingmönnum í Ríkisdúm- unni, neðri deild þingsins, er helm- ingur kjörinn af flokkslistum með hdutfallskosningu en hinn helm- ingurinn í einmenningskjördæm- um. Þegar þetta er ritað þykja horfur á að Val Rússlands, flokkurinn sem Égor Gaidar, fyrsti varaforsætis- ráðherra og aðalhöfundur efna- hagsstefnu Jeltsíns forseta, fer fyr- ir, verði liðflest með um fimmtimg deildarmanna eða 75. Að minnsta kosti þrír aðrir flokkar, sem styðja umbótastefnu Jeltsíns í stórum dráttum, koma mönnum að, líklega á annan tug hver. Rangnefndur flokkur Vladimirs Shírinovskís, Fijálslyndi lýðræðis- flokkurinn, er líklegur til að verða næststærstur þingflokka með inn- an við 70 sæti. Næstir í röðinni koma svo kommúnistar og Bænda- flokkur nátengdur þeim. Baggamuninn milli fylkinga í Ríkisdúmunni ríða því flokkar eins og kvennaframboðið Konur Rúss- lands en þó öllum öðrum fremur öflug fylking óháöra frambjóðenda, sem í raun verða íjölmennasti hóp- urinn á þingi, allt að 150 talsins eftir ágiskunum. Þetta eru fyrst og ffemst áhrifamenn hver í sínu kjördæmi sem ekki hafa kært sig um flokksstimpil í framboði. Gert er ráð fyrir að meirihluti þeirra muni leggjast á sveif með umbóta- stefnumönnum þegar á reynir. En fyrirsjáanlegt er að óvæntur uppgangur Shírinovskís og hans manna í kosningunum hefur áhrif héðan í frá á andrúmsloftið í rúss- neskum stjómmáium. Hann hefur sett rússneska þjóðernisstefnu og þjóðarmetnað á dagskrá svo að aðrir telja sig verða að sýna lit í því efni. Ekki svo að skilja að dólgslegar yfirlýsingar Shírinovskis um að færa Rússaveldi ekki aðeins út yflr fyrrum sovétlýðveldi heldur einnig að Indlandshafi og yfir Finnland, Pólland og Alaska, verði teknar upp víðar. Þetta er bara froðan á auglýsingavaðli lýðskrumarans sem hann hleypur svo frá jafnóðum í návígi við heimspressuna. Það sem nú er óhjákvæmilegt er að öll þau milhríkjavandamál sem fylgdu skyndilegri upplausn Sovét- ríkjanna og hruni sovétveldisins í Austur- og Mið-Evrópu verða hálfu erfiðari og viðkvæmari við að fást. Fyrrverandi sovétlýðveldi og Var- Erlend tídindi Magnús Torfi Ólafsson sjárbandalagsríki verða enn varari um sig en áður. Jafnframt gerist Rússland hvumpnara gagnvart viðleitni þessara ríkja til að efla öryggi sitt með tengslum í aðrar áttir. Taka má Úkraínu sem dæmi. Fjármál, atvinnulíf og kjör fólks eru þar í enn meira lamasessi en í Rússlandi. Framundan eru þing- kosningar í mars og forsetakosn- ingar í júní. Úkraína á þegar í deilu við Rússland um yfirráð yfir Svartahafsflota Sovétríkjanna og aðalstöð hans á Krímskaga. Þar á ofan deilir Úkraínustjórn bæði viö stjórnir Rússlands og Bandaríkj- anna um meðferð hundraða kjamavopna í landinu. Kröfur Úkraínumanna um öryggisábyrgð gegn tilslökunum í þessum efnum hljóta nú að magnast um allan helming. Svipuð dæmi mætti lengi enn til- færa, að breyttu breytanda, frá Eystrasaltslöndum, Moldóvu, Kákasusríkjum, Mið-Asíu. En það mál sem var á dagskrá þegar fyrir kosningamar í Rússlandi var af- staða Atlantshafsbandalagsins til óska Póllands, Ungverjalands, Tékklands og Slóvakíu um fyrir- heit mn inngöngu í bandalagið. Þrem dögum fyrir kosningamar var Boris Jeltsín á ferð í Brussel, undirritaði samvinnuyfirlýsingu Evrópubandalagsins og Rússlands og ræddi við Manfred Wömer, framkvæmdastjóra NATÓ. Rúss- landsforseti varaði þá við skjótri útþenslu bandalagsins til austurs. Wörner svaraði að NATÓ áskildi sér allan rétt til sjálfstæðra ákvarð- ana en vildi vinna að eflingu örygg- is í Evrópu „ekki á móti heldur ásamt Rússlandi". Á fundi æðstu manna NATÓ eftir áramótin er ætlunin að fara í kringum máhð með því að bjóða samstarf um heræflngar og her- stjómarþjálfun en enga fjölgun í bandalaginu í náinni framtíð. Eftir kosningaúrslitin í Rússlandi eru ríki Mið- og Austur-Evrópu allt annað en ánægð með slíkar undir- tektir. Bill Chnton Bandaríkjaforseti ætlar til fundar við Jeltsín frá Bmssel. Þeir ættu að hafa nóg að ræða. Vladimir Shírinovskí grúfir sig yfir kort af Sovétríkjunum fyrrverandi. Símamynd Reuter Skoðanir annarra Takmörkum byssusölu „Martin Luther King var vanur að segja að Amer- íka þyrfti að vera tilbúin áður en hægt væri að setja löggjöf um borgararéttindi sem dygði. Hann beitti friðsömum mótmælaaðgerðum til að ná því marki. Á okkar dögum hefur handahófskennt ofbeldið, sem hann leit á sem plágu, gert það að verkum að menn em tilbúnir að nýju. Almenningur er loksins farinn að krefjast árangursríks eftirhts með framleiðslu og sölu á handbyssum og að endi verðinn bundinn á stríðsástandið á götum Ameríku.“ Úr forystugrein New York Times 13. desember. Ekki traðka á þinginu „Þótt nýja stjómarskráin færi Jeltsín meiri völd en sú fyrri leyfir hún honum ekki að traðka á þing- inu. Ef hann verður aftm- farinn að stjóma með til- skipunum og hóta að leysa upp þingið eftir sex mán- uði verður það málstað hans eða lýðræðinu ekki tfl framdráttar. Nýja þingið var jú vahð í fijálsum kosn- ingum og lögmæti þess er miklu meira en hins gamla sem var kosið samkvæmt Sovétskipulaginu.“ Úr forystugrein Washington Post 15. desember. Ekki óverðskuldað hjá Uffe „Það er ekki óverðskuldað aö Uffe EUemann- Jensen hafi náð jafn langt og raun ber vitni. Hann hefur verið utanríkisráðherra Danmerkur í meira en tíu ár og gegnt því starfl af mikilli fagmennsku. Þótt áhrifamátturinn hér heima hafi verið sveiflu- kenndur bera samstarfslönd Danmerkur mikla virð- ingu fyrir gáfum hans, kappi og stíl sem hefur það eitt að leiðarljósi að árangur náist.“ Úr forystugrein Politiken 14. desember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.