Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1993, Page 52
60
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1993
Með formála eftir
Melwin Morse
lækni og metsöluhöfund
Völundurinn Snorri í Papey:
Júlía Imsknd, DV, Homafirði:
Á Djúpavogi, í litlu húsi sem
stendur skammt ofan viö voginn
með útsýni yfir höfnina og inn-
siglinguna, býr Snorri Gíslason
sem fyrir 78 árum fæddist í Papey
næstyngstur 10 systkina. Snorri
fluttí. úr Papey árið 1949 og síðan
hefur hann lítíð verið í eyjunni
sinni en hefur þó gaman af að
skreppa yflr sundið svona stöku
sinnum. Til að verða fróðari um
þennan fyrrum eyjadreng var
ákveðið að heimsækja hann einn
sunnudagseftirmiðdag, líta inn í
smíðastofuna hans og rabba við
hann smástund.
Hvemig var að alast upp 1 Pa-
pey?
„Það var gott, við höfðum alitaf
nóg af öllu sem við þurftum og
aldrei skorti mat. Segja má að
eyjan hafi verið og sé enn matar-
búr. Þar var fiskur, fugl og svo
eggjataka á vorin auk þess sem
mjög gott var til búskapar í eynni.
Við fengum farkennara sem var
nokkrar vikur á vetri og fengum
við kennslu frá 10 ára aldri til
fermingar. Ég man að þegar
kennslutímabiiinu lauk kom fyr-
ir að kennarinn gerðist vinnu-
maður í Papey langt fram á vor.
Oft gat verið erfitt að komast
milli lands og eyjar, einkum á
vetuma, og þegar ég var að alast
upp var árabáturinn eini farkost-
urinn. Þegar ég var 12 ára fengum
við triUu, það var mikið betra og
mér faimst það mikið skip og þá
var hægt að fara í land á vélbát."
Saknaðirðu ekki eyjalífsins eft-
ir aö þú fluttir í land?
„Nei, alls ekki, ég hef aldrei
haft gaman af rollum eða búskap
en auðvitað vom þetta viðbrigði.
Ég fékk nóg að gera, fór í bygging-
arvinnu og var stundum á sjó.
Svo hugsaði ég um vitann í Papey
í þrjú ár eftir að ég fluttí í land,
þá þurfti ég að fara nokkrar ferð-
ir á ári út í ey. Stundum voru
þetta hálfgerðar slarkferðir þegar
vont var í sjó og brim við eyna.“
Hefurðu ferðast mikið um
ævina?
„Ekki mikið, eina skemmtiferð-
in sem ég hef farið var þegar ég
fór einu sinni hringferð með Esju
og þá var komið við í öllum helstu
höfnum landsins og farþegum
gefinn kostur á að fara í skoðun-
arferðir um staðinn. Þetta var
mjög góð ferð og ég hefði gjaman
viljað fara aftur. Mig langar ekki
til útlanda, af því ég hef aldrei
komið þangað og ætla ekki að
fara, af því að þá mundi mig langa
að fara aftur. Ég fór fyrst til
Reykjavíkur 1952 og þá mátti ég
tii með að fara þangað aftur.
Svona er þetta, einu sinni er
ómögulegt, tvisvar var svolítið
skárra. Seinna urðu ferðirnar
fleiri meðan ég vann hjá verktök-
um en nú em ein 12 ár síðan ég
hef komið til Reykjavíkur."
Nú er Snorri í Papey, eins og
vinir hans gjaman kalla hann
„sestur í helgan stein“ dyttar að
húsinu sína og dundar, eins og
hann segir, í smíðastofu sinni þar
sem óreiða fyrirfinnst ekki og öll
tól og tæki eru á sínum stað.
Snorri hlaut í vöggugjöf hæfileika
sem of seint og of lítið hafa fengið
að njóta sín, hann er listasmiður,
smiður af guðs náð í þess orðs
fyllstu merkingu. Á fullorðinsá-
rum fór hann að stytta sér stund-
ir við að smíða bátamódel, fyrir-
myndimar vom árabátar og trill-
ur þær sem hann hafði best
kynnst á sínum yngri ámm. Pa-
peyjartrillan, sem honum sem
ungum dreng fannst mikiö skip,
og árabátar af þeim gerðum sem
notaðir vom á Austurlandi fyrr
á árum era honum hugstæðustu
viðfangsefnin. Þeim sem líta
þessa smíðisgripi Snorra og
kunna að meta fallegt handbragð
er ljóst að þarna era kjörgripir
sem bera meistaranum fagurt
vitni.
Snorri við einn smíðisgripa sinna.
DV-mynd Ragnar Imsland
Áhrifamikil, sönn saga
sem vakið hefur heimsathygli
Betty Eadie dó eftir uppskurð en vaknaði aftur til lifsins og mundi i smáatriðum
það sem fyrir hana hafði borið. Það sem fyrir hana bar í dánarheimum hefur verið
kallað áhrifamesta dauðareynslan fyrr og síðar.
í faðmi ljóssins
kemur um þessar mundir út á 19 tungumálum, auk endurútgáfu á ensku í mjúkri kápu
i meira upplagi en dæmi eru til áður. Bókin hefur undanfarnar vikur verið á „topp
tíu" sölulista Publishers Weekly.
í faðmi ljóssins
bók með boðskap sem hefur gefið fjölda fólks bjartari von og endurnýjaðan I ífsvilja.
Áhrifamesta dauðareynslan
fyrr og síðar
Bók til að gefa - bók til að eiga
FRJALS
FJÖLMIÐLUN HF.
Sesturí
helgan
stein og
smíðar
bátamódel