Dagur - 12.02.1968, Qupperneq 7
Gísli Guðmundsson:
Dagur í hálfa öld
INGIMAR EYDAL, sem var
fyrsti ritstjóri Dags, og raunar um
lengri tíma en nokkur annar, eða
fram undir tvo tugi ára, gerði grein
fyrir því, þegar blaðið varð 25 ára
og aftur, þegar það varð 40 ára,
með hverjum hætti stofnun þess
hefði borið að. Frostaveturinn
mikli 1917—18 var gfenginn í
garð, og upp úr áramótum land-
fastur hafís fyrir öllu Norðurlandi.
Þá var enn eigi lokið hinni fyrri
heimsstyrjöld. I janúar og febrúar
var eldneytisskortur í höfuðstað
Norðurlands, og skólum lokað af
þeim sökum. Sums staðar gengu
bjarndýr á land af ísnum. í sveit-
um norðanlands höfðu menn víða
þungar áhyggjur af bústofni sín-
um, hversu hónum myndi reiða af
á næsta vori, ef slík harðindi héld-
ust, sem þá voru. A þessum haf-
ísvetri miðjum var maður á ferð
um Norðausturland, og þeim
manni var meira í hug en svo, að
hann léti veðráttuna . hefta för
sína. Sá maður var Jónas Jónsson
frá Hriflu. Jónas kom til Akureyr-
ar og mun hafa dvalið þar í nokkra
daga. „Færði hann þá í tal við
mig“, segir Ingimar, „hvílík vand-
ræði það væru fyrir Framsóknar-
og samvinnumenn í Norðlendinga-
fjórðungi, að hafa ekkert málgagn
fyrir sig og sín sjónarmið að bera,
hvað sem á dyndi. . . . Leitaðist
hann fyrir um það, hvort ég mundi
fáanlegur til að takast á hendur
ritstjórn slíks málgagns, ef til
kæmi.“ Sjálfur getur Jónas Jóns-
son þess í afmælisblaði Dags
1943, að um þetta mál hafi verið
haldnir nokkrir fundir á skrifstofu
Sigurðar Kristinssonar þáv. kaup-
félagsstjóra. Hafi þar ekki verið
margir menn mættir og fjárráð
þeirra lítil, en áhugi því meiri.
Stofnað var félag til útgáfu
blaðs, Ingimar Eýdal ráðinn rit-
stjóri þess og blaðinu valið nafn.
Ingimar getur þess, að félagsmenn
hafi verið „bændur og kaupstaða-
menn“ og að hver maður hafi lagt
fram 25—100 kr. hlut við félags-
stofnun. Dagur var ekki stór í
sniðum, þegar hann kom út í
fyrsta sinn 12. febrúar 1918, að-
eins 4 síður í tielmingi minna broti
en hann er nú, og komu ekki út
nema 2 blöð í mánuði. Ingimar
segist hafa unnið að því í prent-
smiðju Björns Jónssonar langt
fram á kvöld, að ganga frá fyrsta
blaðinu. Björn var þar til staðar
og söng við raust, að sögn Ingi-
mars, vísu þessa:
„Það sem slagur eyðir ýtum
andlitsfagur í réttan tíma
kemur dagur á hesti hvítum.
Héðan vagar blóðfull gríma.“
Ein lítil auglýsing var í fyrsta
blaðinu. Árgangurinn kostaði 2
krónur. Blaðið var prentað í prent-
smiðju Björn Jónssonar fyrstu tvö
árin, en eftir það í Prentverki
Odds Björnssonar. Fyrsti af-
greiðslumaður Dags var hinn
landskunni íþróttafrömuður Lárus
J. Rist, sem í þann tíð var fim-
leikakennari við GagnfræðaskóJ-
ann á Akureyri.
í ársbyrjun 1919 var blaðinu
breytt þannig, að brot þess stækk-
aði um helming, en var aðeins 2
síður í hvert sinn, og kom út viku-
DAGUR 50 ÁRA 7