Dagur - 12.02.1968, Síða 31
Eggert Ólafsson:
Kveðja til Dags
frá Félagssambandi Framsóknarmanna
í Norðurlandskjördæmi eystra (F.F.N.E.)
MÉR ER ÞAÐ bæði ljúft og skylt að
senda „Degi“ kveðju Kjördæmissam-
bands Framsóknarmanna í Norðurlands-
kjördæmi eystra í tilefni af hálfrar ald-
ar afmæli Dags. Ég álít að Dagur hafi
alltaf verið og sé enn mesta fyrirmynd-
ar blað. Hann hefur verið ötull málsvari
Framsóknarflokksins og samvinnufélag-
anna. Fyrirmyndar fréttablað og rekinn
af duglegum áhugamönnum, án alls tyld-
urs og íburðar, enda staðið vel á eigin
fótum fjárhagslega og náð mikilli út-
breiðslu.
Ég tel það mikið lán fyrir hin ungu
stjórnmálasamtök í okkar landshluta
(F.F.N.E.) að eiga Dag að, til þess að
vinna okkar hugðarefnum gagn.
Þegar andstöðuflokkar Famsóknar-
flokksins tóku höndum saman 1959 um
breytta kjördæmaskipan í landinu, beint
til þess að skerða rétt hinna dreifðu og
fámennari byggðarlaga, átti í leiðinni að
þjarma að Framsóknarflokknum, svo
um munaði. Þetta herbragð náði þó ekki
tilgangi sínum nema að litlu leyti.
Ef það er athugað hversu gerólíkar
stefnur þessara flokka, sem stóðu að
kjördæmabreytingunni eru, má segja að
nýju kjördæmin hafi verið getin í
dæmafáum lausaleik. Þetta svíður okkur
enn í augum a. m. k. sveitakörlum, sem
finnst við standa mun hallar í þjóðfélag-
inu eftir en áður. En þó er það svo með
okkur sem falið hefur verið uppfóstur
Kjördæmissambands Framsóknarmanna
í Norðurlandskjördæmi eystra, að okk-
ur þykir vænt um það eins og önnur
börn, og vinnum einhuga að vexti þess
og viðgangi. Þegar við ofurefli er að
etja, þýðir ekki alltaf að einskorða sig
við bezta hlutinn, en mest um vert að
halda þeim næstbezta og vinna hann
Ingvar Gíslason.
upp með manndómi, samtakamætti og
þrautseygju.
Strax eftir kjördæmabreytinguna
1959, hófust þingmenn þessa kjördæmis
handa, um stofnun félagasamtaka með
Framsóknarfélögunum í kjördæminu,
undir forustu 1. þingmanns Framsóknar-
flokksins, Karls Kristjánssonar.
Var boðað til stofnfundar að Laugum
2. júlí 1960. Þingið setti Karl Kristjáns-
son alþingismaður. 1. forseti var kjörinn
Bernharð Stefánsson fyrrv. alþingismað-
ur, sem hefur gegnt því starfi undan-
tekningalítið síðan. A þessu fyrsta þingi
voru samþykkt lög fyrir sambandið og
því kosin stjórn. Fyrsti formaður var
kjörinn Ingvar Gíslason þóv. 1. vara-
þingmaður. Þar sem öll stjórnarstörf og
allt slíkt í þágu sambandsins hlaut að
vera unnið í þegnskylduvinnu, þótti rétt
að hafa ákvæði um það að stjórnar-
menn Mgtu jekki lengur en tvö ár í senn
(nú bréyy í 4 'ár). Þar af leiðandi hafa
þegar 5 menn gegnt formannsstörfum
fyrir sambandið. Þeir eru þessir: Ingvar
Gíslason, Valtýr Kristjánsson, Haraldur
M. Sigurðsson, Hjörtur E. Þórarinsson
og Eggert Ólafsson. Það er ánægjulegt
að minnast þess, sem gjörðabók sam-
bandsins ber með sér, að það var enginn
frumbýlisbragur á fyrsta þinghaldi Kjör-
dæmissambandsins. Þingið sátu 53 full-
trúar, auk allmargra gesta, umræður
fjörugar í tvo daga og fjöldi gagnlegra
DAGUR 50 ARA 31