Dagur - 12.02.1968, Blaðsíða 49
T
Vegager'ð á Hólasandi ve&na Kísiliðjunnar.
Júní.
Fyrsta síldin barst til Raufarhafnar 3.
júní. Vegleg hátíðahöld skáta í Glerár-
gili. Verðbólgan hefur lamað rekstur
KEA, segir framkvæmdasjtórinn á aðal-
fundi KEA. Heildar-vörusala 925 millj.
króna. Karlakór Akureyrar i söngför er-
lendis. Slysavarnakonur í skemmtireisu
erlendis. Öll blöð full af kosningafrétt-
um. 104 stúdentar útskrifuðust frá MA.
Verkfall á kaupskipaflotanum bannað
með bráðabirgöalögum. Flugfélag Is-
lands 30 ára. Á Viðikeri í Bárðardal átti
kýr 4 kálfa á sama árinu. Góðaksturs-
keppni haldin á Húsavík. Utsvcrin á
Akureyri 05,8 milljónir króna. Boing
727 farþegaþota Flugféiags Islands kom-
in til landsins. Laxaseiðum sleppt í
Hörgá. Fyrsta skólflustungan tekin að
vistheimili vangefinna á Akureyri. Geim-
farar væntanlegir til Norðurlands. Byrj-
að að dæla botnleðju Mývatns upp í
þró.
Júlí.
Tva'.r deildir lokaðar í Landsspítalanum
vegna vöntunar hjúkrunarkvenna. Aga
Khan kom til Islands í einkaþotu. Full-
trúar herráðs NATO í heimsókn. Mót
hestamanna víða haldin. Mót ungtempl-
ara haldið ó Siglufirði. Förseti Islands í
opinberri heimsókn til Kanada. Fjögurra
ára drengur lézt í bílslysi á Akureyri.
Ákveðið að leyfa ekki hreindýraveiðar
á árinu. Verkfall í Straumsvík. Telpa
drukknar í sundlaug í Neskaupstað. Sjö
menn úr Flugbjölgúnarsveit Reykjavík-
ur gengu yfir Vatnajökul. Franskir vís-
indamenn rannsaka háloftin af íslenzkri
grund.
ÁgÚSt.
Mikið kal í túnum. Slippstöðin á Akur-
eyri hleypir 557 tonna stálskipi af átokk'-
unum. Það nefnist Eldborg GK 13. Efni
skíðalyftunnar er komið til Akureyrar.
Strákagöngin bráðum fullgerð. Bindind-
ismót haldiö í Vaglaskógi um verzlun-
armannahelgina. Félagsheimili vígt í
Varmahlíð í Skagafirði, heitir Miðgarð-
ur. Haraldur ríkisarfi Noregs kom í
heimsókn, svo og norskir skógræktar-
menn. Þá er svifnökkvinn sæli kominn
til landsins og fer á vatni og landi. Víða
byrjaði sláttur 3—-4 vikum síðar en í
meðalári vegna lélegrar sprettu. Dauða-
slys urðu í Lagarfljóti. Heildarsala
Kaupfélags Skagfirðinga nam 107 millj.
króna. Miðgarðakirkja í Grímsey varö
100 ára. Skipsfarmur af kartöflum flutt-
ur á haf út vegna Colorado-bjöllunnar,
sem þar fannst. Malbik flutt frá Akur-
eyri til Sauðárkróks. Ivar Eskeiand ráö-
Frá iþróttaveUi Akureyringa.
DAGUR 50 ÁRA 49