Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2000, Síða 68
Tilvera
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
► Mikil
verðlækkun
► Mikið
úrval bíla
Uppítökubílar frá
Ingvari Helgasyni hf.
og Bílheimum ehf.
► Fyrsta
afborgun
í apríl
2001
►Afhending
í dag
Qpj0. Mán.-fös. 09-18
Lau. 12-17
BORGAR-
BÍLASALAN
Grensásvegi 11 - Sími 588 5300
www.ih.is
I>V
A kafi í trjám
Þaö er nóg aö gera hjá Magnúsi Stefánssyni þessa dagana eins og hjá fleiri
sölumönnum jólatrjáa um land allt.
Jólatréssalan komin á fullt og flestir vilja norömannsþin:
Furufólkið erfið-
ustu kúnnarnir
- segir Magnús Stefánsson jólatréssali
Jólatréð er ómissandi þáttur í
jólahaldinu og margar fjölskyldur
hafa komið sér upp fastmótuðum
hefðum þegar kemur að vali trésins.
Bömin hafa líka sitt að segja um
þessi innkaup og eru foreldrum sín-
um oftar en ekki til ráðgjafar.
„Við kaupum jólatréð alltaf sam-
an, ég og stelpan. Það er okkar hefð.
Nú fær mamman að vera með,“ seg-
ir Friðrik Guðmundsson sem var í
óðaönn að velja jólatré fyrir heimil-
ið ásamt eiginkonu sinni og dóttur
þegar blaðamann DV bar að garði á
einni jólatréssölu borgarinnar. Að-
spurður sagði Friðrik að ekki hefðu
skapast neinar sérstakar hefðir við
jólatréskaupin hjá fjölskyldunni og
bætir við að þau séu óvenjusnemma
á ferðinni í ár. „Við erum svona
viku fyrr en vanalega enda erum
við bæði í vaktavinnu og verðum að
vinna um jólin,“ segir Friðrik sem
kveðst þó ekki kaupa tréð á sama
degi á hverju ári enda gangi það
ekki upp hjá vaktavinnufólki.
Eins og fleiri íslendingar vill
Friðrik öðru fremur barrheldið jóla-
tré sem þar að auki þarf að vera í
hærri kantinum. „Við erum með
mikla lofthæð þannig að við kaup-
um alltaf stórt jólatré. Það verður
að minnsta kosti að vera yfir tveir
metrar," segir Friðrik um leið og
hann virðir fyrir sér nokkra stæði-
lega norðmannsþini. En skyldi hon-
um aldrei hafa komið til hugar að fá
sér jólatré úr plasti? „Mér fmnst
það bara ekkert sniðugt. Þau eru að
vísu sum orðin mjög falleg en við
viljum hafa þetta lifandi. Þá kemur
líka lykt af þessu sem tilheyrir,"
segir Friðrik Guðmundsson.
Tré taka ekki tískusveiflum
„Norðmannsþinurinn er langvin-
sælasta jólatréð," segir Magnús Stef-
ánsson, yfirmaður jólatréssölu
Blómavals, en sala á jólatrjám
stendur sem hæst um þessar mund-
ir. Magnús telur aö norðmannsþin-
urinn sé örugglega á milli 90 og 95%
af seldum trjám og sé það svipað
hlutfall og undanfarin ár. „Norð-
mannsþinurinn er búinn að vera
það alvinsælasta og það er náttúr-
lega vegna þess að hann er lang-
barrheldnasta tréð auk þess sem
hann er mjög fallegur og skemmti-
legur,“ segir Magnús. Norðmanns-
þinurinn er innflutt trjátegund en
íslensk jólatré hafa einnig verið að
Ekkert undir tveimur metrum
Friörik Guömundsson og Oddný, dóttir hans, leita aö rétta trénu. Hátt
og fallegt skal þaö vera.
sækja f sig veðrið þó að markaös-
hlutdeild þeirra sé enn frekar lág.
„Það er alltaf eitthvað sem selst af
rauögreni og furan er líka vinsæl.
Það eru nokkuð margir sem vilja
furur,“ segir Magnús sem telur að
vinsældir hennar megi meöal ann-
ars þakka því að hún er barrheldin
eins og norðmannsþinurinn. „Fur-
an heldur sér mjög vel en hún er
kannski ekki eins jólatrésleg og aðr-
ar tegundir," segir Magnús og bætir
við að útlit trjánna skipti marga
máli.
Að sögn Magnúsar tekur markað-
urinn hér á landi litlum breytingum
frá ári til árs og er alveg laus við
hvers kyns tískusveiflur. Sem dæmi
má nefna að hvít jólatré hafa ekki
enn náð hingað til lands þó að þau
megi sjá víða erlendis. Segist Magn-
ús efins í að slíkt myndi ganga í Is-
lendinga enda séu þeir vanafastir
þegar kemur að jólatrjám. Þeir hafa
ákveðnar hugmyndir um hvaða teg-
und skuli velja og hvemig hún eigi
að líta út. „Ég myndi til dæmis segja
að furufólkið væri mjög vanafast og
það er oft og tíðum erflðustu kúnn-
arnir. Það hefur mjög ákveðnar
skoðanir og gerir miklar kröfur til
furunnar. Maður fær náttúrlega alls
kyns kúnna en sumir vilja hafa
þetta alveg „tipp topp“. Það gengur
nú samt yfirleitt mjög vel að sinna
kröfum þeirra," segir Magnús. -eöj