Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2000, Síða 70
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
—
Tilvera dv
Treflar, lyklakippur, húfur,
markmannshanskar,
legghlífar.
Mikið úrval búninga úr
ensku deildinni.
Klippið út.
Augiýsingin giidir
sem 10% afsláttur.
Opið laugardag kl. 11-18
Opið sunnudag 13-17
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 - sími 588 1560
www.mitre.com
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps 75 ára:
« Söng Finna í kaf og
drakk þá undir borðin
r ^
Liðabúningar
- kórinn sem hófst með rödduðum gangnamannasöng
er næstelstur karlakóra landsins
ísland
bv, saudArkróki:
Hún var fjölbreytt og skemmtileg
samkoman sem haldin var í Húnaveri
nýlega þegar Karlakór Bólstaðarhlíð-
arhrepps fagnaði 75 ára afmæli. Þar
voru gamanmál og skemmtiatriði í
öndvegi ásamt fróðleik frá árdögum og
fyrri tímum kórsins, einnig söngur og
dans og veglegar kaffiveitingar, en
konur kórmanna stóðu i stórbakstri
fyrir þessa hátíð eins og jafnan þegar
eitthvað stendur til hjá kómum.
@.mfyr:Gangnamenn sungu raddað
Segja má að Sigurjón Guðmundsson
frá Fossum, annar bassi af bestu gerð,
eins og Baldur Daníelsson veislustjóri
kynnti hann, hafi verið aðalræðumað-
ur kvöldsins. Fór Sigurjón í stuttu
máli yfir sögu kórsins, allt frá því að
ómur söngs frumherjanna barst frá
gangnamannaskálanum við Ströngu-
kvísl á Eyvindarstaðaheiði fyrsta
gangnakvöldið 1924, en þá er talið að
drög hafi verið lögð að stofnun kórs-
ins. Það vora einmitt gangnamennim-
ir á Eyvindarstaðaheiðinni sem fóru
að syngja raddað og vildu færa stemn-
inguna af heiðinni til fólksins niðri í
byggðinni. Sigur-
jón sagði að
bændur hefðu
þurft talsvert á
sig að leggja til að
stunda æfmgar
en ekki séð eftir
þeim tíma, enda
kórstarfið ómet-
anlegur félags-
skapur. Það hefði
breytt miklu að
komast á æfingar
þegar nokkrir
Willysjeppar
komu í sveitina
upp úr seinna
striðinu.
En hvað er það
sem dregur menn
Benedikt Blöndal formaður flytur
gamanmál, strangar æfingar í kiö-
settsöng.
á söngæfingar? Sigurjón sagði að við
því væri ekkert einhlitt svar en menn
væru ailtaf að reyna að ná hinum þétta
og hreina hljómi. Hann sagðist aldrei
gleyma því þegar hann stóð ungur
drengur á hlaðinu í Bólstaðarhlíð og
hlýddi á Karlakórinn Geysi syngja
undir stjóm Ingimundar Ámasonar.
Þá hefði hann ákveðið að syngja í
karlakór þegar hann yrði stærri.
Siguijón nefhdi stjórnendur kórsins
um tíðina og sagði þar bera hæst starf
Jóns Tryggvasonar frá Ártúnum sem
stjómaði kómum í 40 ár. Hann fagnaði
einnig þeirri nýliðun sem orðið hefði í
kómum, það er að segja því að margir
ungir menn hefðu gengið til liðs við
kórinn á siðustu árum og að kórinn
væri því sennilega enn þá það félags-
lega afl sem stæðist önnur áreiti í þjóð-
félaginu. Enn fremur fengu eiginkonur
kórmanna hól frá
Sigurjóni á Foss-
um og sagði hann
fulla ástæðu til að
minnast á þeirra
framlag; þeirra
starfa væri oft að
litlu getið sem
unnin væm í
kyrrþey.
@.mfyr:Annar
elsti kór landsins
og frægur fyrir
klósettsönginn!
Það var reynd-
ar Benedikt Blön-
dal, formaður
kórsins, sem reið
á vaðið og fjallaöi
á gamansaman
DV-MYNDIR ÞÓRHALLUR ASMUNDSSON
Sigurjón Guömundsson á Fossum, aöalræöumaður
kvöldsins - frumherjarnir í gangnamannaskálunum.
hátt um kór-
starfið en gat
þess jafnframt
að Karlakór
Bólstaðarhlíð-
arhrepps, sem í
fyrstu var ein-
ungis tvöfaldur
kvartett, væri
nú annar elsti
karlakór lands-
ins - aðeins
Þrestimir í
Hafnarfirði séu
eldri.
Benedikt
sagði að söng-
gleðin hlyti að
geisla af kór-
Þetta var aöalunglingaborö kvöldsins. Næstinnst viö borðiö má greina Grím Gíslason, fréttaritara útvarpsins á
Blönduósi, í hópl unga fólksins og lengst tll hægri eru Sturla Blrgisson og Björg Eiðsdóttir sem komu úr Reykjavík
á skemmtunina í boöi dóttur sinnar, Sesselíu, og tengdasonar síns, Jakobs Sigurjónssonar frá Steiná, sem sitja
næst þeim.
Afmælistertan var vegleg og elginkonur kórmanna, sem
kalla sig 3KB, létu sig ekki muna um aö skreyta hana
meö fyrstu stefjum lagsins „Ég mun vaka“, og sjálfsagt
vaka konurnar einhvern tíma eftir körlum sínum þegar
þeir koma heim af kóræfingum, en þaö er helsti félags-
skapur þeirra margra.
mönnum, a.m.k. væri hún næg innra
með þeim, og haft hefði verið á orði að
söngurinn væri kraftmikill eins og
lækur í vorleysingum, „og hvers ættu
þá fjallatenórar að gjalda?" Benedikt
minntist á söngferð kórsins, þeirrar
fyrstu út fyrir landsteinana, sem farin
var síðasta vor, en þá gerði kórinn víð-
reist og stóð sig ailvel, að sögn þeirra
sem fóra, og sungu þeir Finnana í kaf
og dmkku þá svo undir borðið. Þetta
sagði Benedikt vera árangur strangra
æfinga í klósettsöng sem kórfélagar
em frægir fyrir víða. Þetta hafi að
minnsta kosti ekki komið eiginkonum
þeirra á óvart sem segja karlana dvelja
langdvölum á klósettum í stað þess að
dansa við þær.
Magnús Sigurðsson, bóndi á Hnjúki,
skemmti með gamanvísnasöng og fékk
dúndrandi undirtektir. Þá var komið
að söng kórsins en hann söng nokkur
lög í lok skemmtidagskrárinnar. Fékk
söngurinn góðar undirtektir og á hann
sjálfsagt eftir að verða enn betri er líð-
ur á veturinn. -ÞÁ
Klukkur,
merktar
ensku
liðunum
Blaðberar óskast
í eftirtalin hverfi:
Reykjavík
Laufásvegur
Miðstræti
Blesugróf
Jöldugróf
Hjallavegur
Kambsvegur
Gnoðarvogur
Lindargata
Klapparstígur
Garðabær
Hegranes
Blikanes
Haukanes
Mávanes
Sendlar óskast
á blaðadr. DV eftir hádegi.
Æskilegur aldur 13-15 ára.
^•| Upplýsingar í síma 550 5000
Aðventukvöld í Súðavíkurkirkju:
Eftirminnilegt og
uppbyggjandi
DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON
Góöir söngkraftar
Frá aöventukvöldi í Súðavíkurkirkju, viö kirkjuna starfa ágætir söngkraftar
sem hér flytja tónlist sem helguö er komu jólahátíöarinnar.
DV, SÚÐAVÍK:
Síðastliðinn sunnudag gekk tími
aðventukvöldanna í garð. Að kveldi
fyrsta sunnudags í aðventu var
haldið aðventukvöld í Súðavíkur-
kirkju. Kór kirkjunnar söng undir
stjórn Beata Joó organista. Söng-
konurnar Guðrún Jónsdóttir og Ing-
unn Ósk Sturludóttir sungu fögur
verk úr tónbókmenntunum sem
helguð eru aðventunni og komu jól-
anna.
Anna María Guðjónsdóttir, Eygló
Valdimarsdóttir og Erling Sörensen
spiluðu á þverflautur og unglingar
fluttu jólaguðspjallið. Öllum bar
saman um að kvöldið hefði verið i
senn eftirminnilegt og uppbyggj-
andi. -VH