Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2000, Síða 72
76
Tilvera
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
r>v
Vinsæl myndbönd
Gladiator
★★★★
The Perfect Storm
★★★
EM
Rancid Aluminium
í vondum
málum
★★
Ef hægt er
að segja um
eina kvik-
mynd að hún
sé eitt allsherj-
ar kaos þá á
það ágætlega
við um Rancid
Aluminium,
enn
breska kvik-
mynd sem ger- ^—
ir út á glæpa-
menn, ekki cockney glæpamenn held-
ur rússnesku mafíuna. Og eins og svo
oft áður í myndum á borð við Rancid
Aluminum þá er meiri húmor en al-
vara i söguþræðinum og lögreglan er
ijarri góöu gamni.
Aðalpersónan er Pete (Rhys Ifans),
sem er í vondum málum þegar mynd-
in hefst. Hann hefur erft fyrirtæki fóð-
ur síns, fóstbróður hans, Deeny (Jos-
eph Fiennes), tO mikillar skapraunar,
en hann hefur verið heilinn í fjármál-
um fyrirtækisins. Hann fær sem sé
ekki ekki krónu í sinn vasa. Deeny er
því ákveðinn í að losa sig við Pete,
ekki bara úr fyrirtækinu heldur af yf-
irborði jarðar. Til að gera plottið trú-
verðugt segir hann Pete að fyrirtækið
skuldi skattinum það mikið að ef ekki
verði fengið lán hjá rússnesku mafl-
unni endi hann í fangelsi. Pete trúir
fóstbróður sínum og lætur hann ráða
ferðinni, enda með önnur vandamál á
heilanum. Það vill svo til að hann og
kærasta hans, Sarah, eru að reyna að
eignast barn en ekkert gengur. Deeny
kemur Pete á kaldan klaka hjá rúss-
nesku mafíunni en vopnin snúast i
höndum hans þegar mafíuprinsessan
verður hrifrn af Pete.
Leikstjóri myndarinnar, Ed Thom-
as, yfirkeyrir myndina svo að það er
nánast engin leið að fá botn í söguna.
Þrátt fyrir góðan leik stendur ekki
steinn yfir steini í atburðarásinni og
þó myndin hafí nokkuð skemmtana-
gildi þá var maður fegnastur þeirri
stund þegar henni lauk.
Útgefandi Skífan. Leikstjóri: Ed Thomas.
Bresk,1999. Lengd: 95 mín. Bönnuö inna 16
ára -HK
Russell
Crowe
Russell Crowe leikur aðalhlutverkið
í Gladiator, Maximus og þó hann væri
orðinn vel þekktur og með óskarstil-
nefningu á bakinu fyrir leik sinn í The
Insider var það Gladiator sem lyfti
honum upp í hæstu hæðir á stjömu-
himninum í Hollywood, þar sem afíar
líkur em á að hann dvelji um hríð.
Russell Crowe fæddist á Nýja-Sjá-
landi 7. april 1964 en flutti barn að aldri
til Ástralíu. Foreldrar hans unnu i
kvikmyndaveri og aðeins tólf ára gam-
all hóf hann að leika í sjónvarpi. Hann
varð fyrst þekktur fyrir leik sinn í
Romper Stomper, ástralskri kvikmynd
sem fór sigurfór um heiminn. Sharon
Stone sá þá mynd og valdi
hann sem mótleikara í
The Quick and The
Dead og þar með
var Crowe kom-
inn á bragðið í
Hollywood og
reyndi fyrir sér
þar um hríð, en
lítið gekk fyrr en
hann fékk eitt að-
alhlutverkið í hinn
ágætu kvikmynd
Curtis Hansons,
L.A. Confídental.
Russell Crowe hef-
ur alla tíð verið nokk-
uð laus í rásinni og
ekki verið að spara stór-
yrðin í viðtölum við blaða
menn. Þá hefur einkalíf
hans verið milli
tannana á slúður-
blaðamönnum
og mikið verið
rætt og ritað
um sam-
band hans
við Meg
Ryan sem
oÚi hjóna-
skilnaði á þeim
bæ. Russell
Crowe er
rokkari og
hefur
starfrækt
hljómsveitina 30 Odd Foot of Grunts og
fyrstu tónleikar hans í Bandaríkjunum
eftir leiksigur sinn í Gladiator voru í
Austin Texas í ágúst siðastliðnum.
Uppselt var í hvelli og fóru miðamir á
svartamarkaðinum upp í 500 dollara
stykkið.
Ferillum í kvikmyndum
The Crossing, 1990
Proof, 1991
Prisoner of the Sun, 1991
Romper Stomper, 1992
The Éfficiency Expert, 1992
The Silver Brumby, 1993
Love in Limbo, 1992
The Sum of Us, 1993
For the Moment, 1994
The Quick and the Dead, 1994
Virtuosity, 1995
Rough Magic, 1995
Heaven's Burning, 1997
Breaking Up, 1997
L.A. Confidential, 1997
Mystery Alaska, 1999
The Insider, 1999
Gladiator, 2000
Proof of Live, 2000
Maxinus
Russelll Crowe í hlut-
verkinu sem geröi
hann að stjörnu.
Escape From Mars
Marsleiðangur
★★
Hér er boðið upp á
kvikmyndagerð eins
og hún getur best
oröið, þar sem sam-
an fer sterk leik-
stjóm, góð kvik-
myndtaka og snilld í
klippingu. Það er
alltaf eitthvað sem
grípur augað. Allar
bardagasenur em stórfenglegar, hvort
sem það er maður gegn manni eða hóp-
ar að beijast upp á líf og dauða í hring-
leikahúsinu Collosseum. Russell Crowe
leikur Maximus af miklu öryggi og
krafti. Hann hefur það til að bera að
maður trúir því að hann sé mestur
allra skylmingaþræla auk þess sem
mikill þungi er í túlkun hans. -HK
American Psycho
★★★★
American Psycho ^
byrjar nær óaðfinn- |jB
anlega og heldur
dampinum framan af L'aL jMB f J|
en lokakaflinn er [|j£ VI ,'S
heldur snubbóttur. I
Myndin hefði að M
ósekju mátt vera I
lengri og leikstjór- HH
inn, Mary Harron, hlýtur að hafa átt
nokkur atriði sem fómað var til að ná
tilhlýðilegri lengd. Það er sem sagt skil-
ið við allt í lausu lofti þótt það kurrni aö
vera réttlætt með niðurstöðu myndar-
innar sem er nokkuð á skjön við hina
frægu bók sem myndin byggist á og
heldur kraftminni. Þrátt fyrir aðfmnsl-
ur er myndin langtum betri en ég hafði
nokkra sinni þorað að láta mig dreyma
um. -BÆN
The Perfect Storm
er raunveruleg og
áhrifamikil. Það er
einungis einn
myndrammi sem set-
ur örlítinn óraun-
veruleikablæ á
myndina. Annars
hefúr tekist vel til í
tæknibrelludeildinni. Leikaramir skila
ágætlega sínu. George Clooney heldur
megnið af myndinni þessum hása sjó-
aramálrómi og Mark Wahlberg er full-
komin þversögn með sína silkirödd.
Heildin er meiri háttar og maður fyllist
stolti yfir afreki og dáðum fólks. Eigin-
lega verður maður að sjá svona mynd í
kvikmyndahúsi til að hún geti notið
sín til hins ýtrasta. -GG
Frequency
★★★
Frequency gerist
samtímis i tveimur
tímabeltum og það er
afrek hvemig tekist
hefur að tengja at-
burðina í myndinni
svo vel fari. Það er
gór stígandi i henni,
hún er spennandi,
enda er verið að leita
aö sama morðingjanum í tveimur tíma-
beltum og leikur er góður þar sem sér-
staklega Dennis Quaid sannar eina
ferðina enn hversu góður leikari hann
er. Helsti galli myndarinnar, og hann
er stór, er hvemig öllu er sópað saman
í endi sem skilur eftir of margar spum-
ingar. Að öðra leyti er Frequency fín
skemmtun fyrir þá sem hafa gaman af
vísindaskáldskap. -HK
Þegar frétt-
ist að stóru
kvikmynda-
fyrirtækin i
Hollywood séu
að gera eitt-
hvert stór-
virki sem
kemur til með
að vekja mikla
athygli hugsa
minni spá-
menn sér til
hreyfings og gera út á vinsældirnar.
Aðstandendur Escape to Mars voru
seinheppnir því bæði Mission to Mars
og Red Planet mistókust. Myndin sem
hefur alls ekki ómerkilegri söguþráð en
stóra myndimar en er öll minni í snið-
um tæknilega séð og leikur er allur
frekar á lágu plani. Fyrsti leiðangurinn
til Mars er aö hefja sig til flugs. Mikil
spenna er í loftinu og karlar og konur
sem skipa leiðangurinn era þegar orðin
þjóðhetjur. Myndin gerist fyrst um
borð í geimfeijunni og til að halda fólki
við efnið, því litið er varið í að sjá í
kvikmynd ferð í 119 daga án þess að
eitthvað gerist, koma upp hættulegar
bilanir sem gætu gert út um leiðangur-
inn. Ferðin til Mars tekur þó enda en í
mikilli loftsteinadrífu eyðileggst geim-
farið og það lítur út fyrir að geimfar-
amir endi líf sitt á steindauðri plánet-
unni. Escape to Mars er ekki merkileg
mynd en hún er svo sem í lagi sem af-
þreying á köldu vetrarkvöldi ef áhorf-
endur era ekki allt of mikiö að spá í
staðreyndir.
Útgefandl: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Neill Fe-
arnley. Bandarísk, 2000. Lengd: 98 mín. Ekki
við hæfi ungra barna. -HK