Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2000, Blaðsíða 78
82
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
Tilvera
DV
Heimsmeistaratitill FIDE:
Anand og Shirov
keppa til úrslita
Bókaskápur fyrir tvo lesendur
Verk eftir Daníel Þ. Magnússon
frá árinu 1995.
Þeir Viswanathan Anand og Al-
exei Shirov unnu báðir sina viður-
eign og eiga að tefla einvígi um
heimsmeistaratitil FIDE i Teheran i
íran sem hefst 20. desember. Anand
vann Michel Adams 2,5-1,5 og
Shirov sigraði Alexander Grischuk
með sömu tölum. Það er athyglis-
vert að þarna tefla einvígi um
heimsmeistaratitilinn þeir 2 skák-
menn sem Kasparov „sveik“ um
einvígi um titilinn. Kasparov hefur
sjálfur áréttað að hann sé fyrrver-
andi heimsmeistari í skák.
Á næsta ári verða haldin mörg
„ofurskákmót" og það verður fróð-
legt að sjá hvemig fjórmenninga-
klíkunni, Anand, Kasparov
Kramnik og Shirov, vegnar á þeim
mótum. Það verður rétt mælistika
að mínu mati hver er sterkasti
skákmaður heims. Vonandi ber
Kramnik gæfu til að snúa á
Kasparov og tefla sameiningarein-
vígi við þann sem sigrar í Teheran.
Eða var þetta það sem Kaspi vildi?
Það verða allavega skemmtileg jól
hjá skákáhugamönnum því það er
ekki haldið upp á jólin hjá allatoll-
unum í Iran. Það verða tefldar 6
skákir og síðan bráðabani. Anand
hefur teflt eitt úrslitaeinvígi með
þessu fyrirkomulagi. Það var við
Anatolí Karpov hér um árið, þegar
Anand varð að hafa fyrir því að
komast alla leið 1 úrslitin og varð
síðan að tefla úrslitaeinvígi við Kar-
pov sem fékk að mæta fyrst þá. Það
einvígi fór í bráðabana og Anand
var með gjörunnið í síðustu skák-
inni en tókst að tapa henni. Skákin
er harður skóli!
Hvítt: Viswanathan Anand (2762)
Svart: Michael Adams (2755)
Spánski leikurinn.
Nýju Delhi 13.12. 2000
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Bc5. Sjaldgæft af-
brigöi sem kennt er við Alexander
Aljechin, fyrrverandi heimsmeist-
ara. Það sem einkennir marga af
þeim fremstu í dag er að þeir eru
óhræddir að leita í smiðju til gömlu
meistaranna. 6. c3 b5 7. Bc2 d6 8.
a4. Algengari leikur er 8. d4 en An-
and velur óhefðbundnari leið sem
Adams reyndar þekkir vel. En það
er nýjung í uppsiglingu. 8. - Bg4 9.
h3 Bh5 10. d3 0-0 11. Rbd2 b4 12.
a5! Hb8 13. g4! Nýjung, nýleg skák,
Peter Svidler - Michael Adams -
þar var leikið 13. De2 bxc3 14. bxc3
d5 15. d4 og hvítur náði frumkvæð-
inu. Adams hefur haft hvítt í þess-
ari stöðu á móti Joel Benjamin en
hann lék sjálfur 13. Hel Dc8 14. Rfl
og hvítur vann um siðir. Anand hef-
ur að sjálfsögðu ekki viljað bíða eft-
ir endurbót á þessum skákum held-
ur tekur sjálfur af skarið: 13. - Bg6
14. Rc4 bxc3 15. bxc3 Dc8 16. Ba4
Ra7?! Fyrsti leikur skákarinnar
sem stenst ekki hæstu gæðakröfur!
16. - Re7 er mun eðlilegri leikur. 17.
Be3 Bxe3 18. Rxe3 c6 19. Dd2 Dc7.
Næsti leikur hvíts miðar að því
að taka b5-reitinn af riddaranum.
En Adams bregst rangt við og lokar
miðborðinu. 20. - Rd7, með hug-
myndinni Rc5, er mun heilbrigðara.
Hvítur nær nú óþægilegum þrýst-
ingi á b-línunni. 20. c4 c5 21. Rh4
Kh8 22. g5 Rh5 23. Rd5 Dd8 24.
Hfbl Rf4 örþrifaráð sem dugar
skammt. Svartur reynir að ná
kóngssókn. 25. Rxf4 Dxg5+ 26.
Rhg2 exf4 27. Hb6 Hbd8 28. Dxf4
De7 - b-línan ræður úrslitum -
29. Habl Rc8 30. Hb7 De6.
mm i ■
V s iii
A if k
& WTM'm
±
A A
W:
Næsti leikur Anands er mér vel
að skapi. Riddarinn er á leiðinni til
d5! Stöðulega séð er svartur í heljar-
greipum: 31. Dg5 h6 32. Dg3 Df6
33. Rf4 Re7 34. Kg2 Rg8 35. Rd5
De6 36. Bdl 1-0. Peðið á a6 er
dauðadæmt. Þaö sýnir virðingu Ad-
ams fyrir Anand að hann áleit að
betra væri að gefast upp strax en að
kveljast í mun lakari stöðu.
Það er ekkert skrýtið að Shirov
skuli vera í miklu uppáhaldi hjá
mér. Hann teflir stundum eins og
Tal á sínum bestu stundum, stund-
um þróaðan stöðustil og svo á hann
það til að leika óskiljanlega af sér.
Grischuk fannst hins vegar ekkert
skrýtið að hann hefði unnið þrátt
fyrir það að hafa haft verri stöðu.
„Ég hef fengið 11,5 vinninga af 12 í
ensku árásinni í Sikileyjarvörn."
En Shirov vann næstu skák glæsi-
lega engu að síöur.
Hvítt: Alexander Grischuk (2606)
Svart: Alexei Shirov (2746)
Sikileyjarvöm.
Nýju-Delhi 13.12. 2000.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Í3 Db6!?
Óvenjulegur leikur. Riddarinn á d4
verður að yfirgefa miðborðið en
hvítur nær leikvinningi með Be3
seinna meir. 7. Rb3 Rc6 8. De2 e6
9. Be3 Dc7 10. g4 b5 11. 0-0-0 Bb7
12. h4 Hc8 13. Kbl Rd7. Þessi
peðasókn nefnist enska árásin.
Næsti leikur hvíts er ekki sá besti.
Betra er 14. g5 strax. Shirov leggur
nú lúmska gildru fyrir unglinginn.
14. Hgl Rce5 15. Df2 b4 16. Ra4.
Flétta Shirovs byggist á 4 atriðum:
1. Sterk staða biskupsins á b7. 2.
Slæm staða riddarans á a4. 3. Peðið á
c2 er í uppnámi. 4. Möguleikinn Dc6
er afar óþægilegur fyrir hvítan. 16. -
Rxf3! 17. Dxf3 Dc6 18. Rac5! Ef 18.
Ra5 Dxc2 19. Kal Bxe4! 20. De2
Dxa4 og svartur er með unnið tafl.
18. - Rxc5?! Ekki besti leikurinn því
eftir 18. - dxc5 19. Ra5 Dc7 20. Rxb7
Dxb7 21. Bg2 Be7 hefur hvítur ekki
nægilegar bætur fyrir peðið. 19.
Bxc5 dxc5 20. Ra5 Dc7 21. Rxb7
Dxb7 22. Bc4 Be7. Hvítur hefur ein-
hverjar bætur fyrir peðið; mislita
biskupa og peðasókn sem gæti orðið
að einhverju. 23. De2 Dc6 24. g5 0-0
25. h5 Hcd8 26. g6 Hxdl+ 27. Hxdl
fxg6 28. hxg6 Hf4?
Síðasti leikur svarts er hræðileg-
ur afleikur. 28. - h6 er góður leikur
eða jafnvel 28. hxg6. Shirov hefur ef-
laust talið sig vera aö vinna en 29.
Dh2!. 1-0. Sér til mikillar skelfing-
ar uppgötvar hann að eftir 29. Hh4
30. Db8+ BíB 31. Bxe6+ verður svart-
ur mát.
Jólapakkamót Hellis
Taflfélagið Hellir heldur Jóla-
pakkamót Hellis í samvinnu við
Skákhúsið og Leikbæ. Jólapakka-
mót Hellis er orðið árviss viðburður
í skáklífi íslenskra unglinga og er
gríðarlega vel sótt, bæði af drengj-
um og stúlkum. Þótt mótið sé hald-
ið í Reykjavík takmarkast það eng-
an veginn við börn úr Reykjavík. Á
fyrri mótum hafa þátttakendur ver-
ið allt frá Borgarnesi til Eyrar-
bakka. Mótiö hefur verið best sótta
skákmót landsins undanfarin ár.
Mótið er ætíð haldið síðasta
sunnudag fyrir jól og fer því fram
sunnudaginn 17. desember nk. Mót-
ið hefst kl. 14.00 og mun Helgi
Hjörvar, forseti borgarstjómar,
setja mótið.
Keppt verður í 4 flokkum: Flokki
fæddra 1985-1987, flokki fæddra
1988-89, flokki fæddra 1990-91 og
flokki fæddra 1992 og síðar. Tefldar
verða 5 umferðir með 10 mínútna
umhugsunartíma á mann.
Glæsilegir jólapakkar eru í verð-
laun fyrir 3 efstu sætin í hverjum
flokki. Auk þess verða þrenn
stúlknaverðlaun i hverjum flokki og
einnig verður happdrætti um 3 jóla-
pakka í hverjum aldursflokki fyrir
sig. í lok mótsins verða nöfn allra
keppenda sett í pott og heppinn
keppandi fær veglega skáktölvu í
jólagjöf sem Skákhúsið gefur.
Allir keppendur hafa því mögu-
leika á verðlaunum en mótið tekur
um 3 klst.
Mótið fer fram í Félagsheimili
Taflfélagsins Hellis, Þönglabakka 1,
efstu hæð - sami inngangur og hjá
Bridgesambandinu og Keilu í
Mjódd.
Enn er hægt að skrá sig og er
áhugasömum bent á að skrá sig í
gegnum Heimasíðu Hellis www.sim-
net.is/hellir eða með faxi: 5578220.
Jón Viktor, Sigurður Páll og
Stefán sigruöu á Helgarmóti TR
Jón Viktor Gunnarsson, Sigurður
Páll Steindórsson og Stefán Krist-
jánsson sigruðu á desember-helgar-
móti TR sem fram fór um síðustu
helgi. Þeir félagar fengu allir 5 vinn-
inga af 6 mögulegum. Fjórði varð
Arnar E. Gunnarsson með 4 vinn-
inga. Þarna var á ferðinni sterkt
mót með íslandsmeistarann Jón
Viktor og Stefán Kristjánsson. Það
er því athyglisverð frammistaða hjá
Sigurði Páli að ná að deila efsta sæt-
inu. Þetta var nokkurs konar fram-
haldsskólaverkfallsmót hjá strákun-
um í taflfélaginu.
Heimsmeistaraeinvígi kvenna
Það voru 2 kínverskar stúlkur
sem tefldu um titilinn og Jun Xie
varði titil sinn naumlega. Hún vann
Kanying Qin 2,5-1,5 og var einvígi
þeirra haldið samtímis heimsmeist-
arakeppni karla í Nýju-Delhi á veg-
um FIDE.
Listasafn íslands:
Nýjar
sýningar
I dag verður opnuð sýning á úr-
vali rýmisverka sem Listasafn ís-
lands hefur keypt á undanfórnum
árum eftir starfandi listamenn. Á
sýningunni eru verk eftir Ragnhildi
Stefánsdóttur, Rósu Gísladóttur,
Brynhildi Þorgeirsdóttur, Steinunni
Þórarinsdóttur, Guðjón Ketilsson,
Kristin E. Hrafnsson og Daníel
Magnússon. í safninu stendur nú
sýning af úrvali verka i eigu safns-
ins þar sem lögð er áhersla á mál-
verk frá fyrri helmingi 20. aldar. Á
henni gefur að líta verk eftir frum-
herjana Þórarin B. Þorláksson, Ás-
grím Jónsson, Jón Stefánsson og Jó-
hannes S. Kjarval. Þessir fjórir mál-
arar hófu allir listamannsferil sinn
á fyrstu áratugum 20. aldar og lögðu
þar með grunninn að nútímamynd-
list hér á landi.
Jafnframt eru í tveimur sölum
sýnd verk í eigu safnsins eftir þau
Guðmund Thorsteinsson, Finn
Jónsson, Gunnlaug Blöndal, Svein
Þórarinsson, Jón Þorleifsson, Krist-
ínu Jónsdóttur, Júlíönu Sveinsdótt-
ur, Gunnlaug Scheving, Snorra Ar-
inbjarnar, Þorvald Skúlason, Jó-
hann Briem og Jón Engilberts. Báð-
ar þessar sýningar standa til 15. jan-
úar 2001.
í kaffistofu stendur yflr sýning á
úrvali grafikverka eftir hollenska
listamanninn Bram van Velde.
Kafílstofan er opin alla daga nema
mánudaga, frá kl. 11 til 17. Veitinga-
maður er Sveinn Kjartansson. Sýn-
ingar Listasafns íslands eru opnar
alla daga nema mánudaga, frá kl. 11
til 17.
Jólatónleikar:
Hljómsveitar-
svítur Bachs
í ár er minnst 250. árstíðar meistara
barroktónlistarinnar, Johanns Sebasti-
ans Bachs. Af því tilefni mun Kammer-
sveit Reykjavikur flytja allar hljóm-
sveitarsvítur hans á jólatónleikum sín-
um í Langholtskirkju á sunnudaginn.
Fiðluleikarinn Reinhard Goebel
mun stjórna sveitinni en hann er
þekktur sem einn af frumkvöðlum í
fluttningi barokktónlistar á gömul
hljóöfæri. Forsala aðgöngumiða er í
Máii og menningu og tónleikarnir hefi-
ast klukkan 16.00.
JóLatiLboö
Boróstofuborð, stólar, skápar
borðbúnaður og ýmislegt fLeira
á frábæru jólaverði næstu daga.
Langholtsvegi 130-Reykjavík
antik2000@simnet.is -O 5 3333 90
Jólatónleikar
- veröa haldnir í Langholtskirkju á sunnudaginn. Fiðiuleikarinn Reinhard Goebel mun stjórna sveitinni en hann er
þekktur sem einn af frumkvöðlum í flutningl barokktónlistar á gömul hljóðfæri.