Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Síða 5
ur fram. Hópur „vorfuglanna" — þeir, sem eru opnir fyrir
nýjungum og reiðubúnir að taka áhættu, — fara að velta því
fyrir sér, á hvern hátt þeir geti lækkað framleiðslukostnað-
inn, þannig að þeir viðhaldi tekjum sínum. Þeir leita til
lánastofnana, leiðbeiningarþjónustunnar og annarra til að
fá þá hjálp og upplýsingar, sem þeir þurfa til að nýta nýjung-
ar til að lækka framleiðslukostnað.
Þær nýjungar, sem hér eru um að ræða, hafa ekki einvörð-
ungu þau áhrif að lækka framleiðslukostnað. Þær leiða
einnig til að framleiðsla viðkomandi bónda vex. Bændur
lækka þannig kostnaðinn með því að auka framleiðsluna.
Þannig auka þeir þau áhrif, sem upphaflega höfðu í för
með sér, að framleiðslan varð óarðbær, þ.e.a.s. þeir auka
offramleiðsluna.
Við getum því dregið þá rökréttu ályktun af þessu, að of-
framleiðslan mundi aukast enn hraðar en áður og verðið
lækka en lengra niður fyrir kostnaðarmörkin, ef allir bænd-
ur væru vorfuglar. Því verður hagur nýjungamannanna af
viðleitni þeirra við að lækka kostnaðinn háður því, að sem
fæstir bændur séu nýjungamenn.
Ef landbúnaðarstefnan og leiðbeiningarþjónustan hvetja
til að allir fylgi dæmi nýjungamanna við slíkar aðstæður, er
hún komin í mótsögn við sjálfa sig. Viðleitni okkar til að
koma tilraunaniðurstöðum fljótt til allra bænda er þá ekki
aðeins í mótsögn við markmiðið um stöðugan markað. Hún
er einnig í andstöðu við hagsmuni þeirra bænda, sem sýna
mesta viðleitni til að hagræða framleiðslunni með því að
nýta sér tækninýjungar, sem lækka framleiðslukostnaðinn.
Cochrane kallar þessa þróun „sandpokaburð landbúnað-
arins“. Hann virkar þannig, að landbúnaðinum bætast utan
frá hlutir, sem auka framleiðni vinnuaflsins og þá um leið
framleiðslugetuna þegar við tökum í notkun nýjungar, sem
draga úr kostnaði. Til að þetta sprengi ekki markaðinn,
verður á sama tíma að eiga sér stað annars staðar innan
landbúnaðarins svo mikill samdráttur í framleiðslu, að það
komi samanlagt í veg fyrir framleiðsluaukningu. Það gerist
þannig, að þeir bændur, sem eru í hópnum „hinir sein-
7