Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Qupperneq 78
æ meiri. — Væri fróðlegt að endurtaka þessa rannsókn og
jafnframt að bæta við sýnatökudögum, t.d. með hálfs mán-
aðar millibili allt sumarið og jafnvel fram á vetur ef veður
leyfa.
Skal nú vikið að prótein- og steinefnainnihaldi snarrótar-
sýnanna. í töflu 1 sést að prótein- og kalkmagn og Ca/P
hlutfall grassins eykst greinilega með hæð í Kerlingu þann
23. ágúst. Er þar um raunhæfa fylgni að ræða (r=0,73 fyrir
próteinið, r=0,83 fyrir kalsíumið og 0,70 fyrir Ca/P hlut-
fallið). Yfirleitt er lítill sem enginn munur á meðalefna-
magni milli staða nema ef vera skyldi varðandi prótein,
sem er heldur hærra upp af Hofsárkoti, einkum í seinni
slætti. I töflu 2 má ennfremur sjá að kalímagnið virðist
heldur lægra í Svarfaðardal. Aftur virtist snarrótin járnauð-
ugri í Kerlingu og sama má segja um koparinn í „þeirri
gömlu“ þann 6. júlí. Heldur virðist lítið til af rannsóknum
varðandi snarrót. Af innlendum rannsóknum má nefna
efnagreiningu fyrir kalsíum og fosfór í snarrót upp í 350 m
hæð í Borgarfirði (Þorsteinn Þorsteinsson, Jón Snæbjörns-
son og Magnús Óskarsson 1968). Framkvæmdin í þeirri
rannsókn var frábrugðin þessari að sumu leyti, einkum að
því er varðar sýnatökustaðina. Safnað var sýnum í hæðar-
snið frá sjö stöðum, 2—43 km frá sjó, auk þess sem sýnatöku-
dagarnir urðu fleiri. Enginn greinilegur munur kom fram,
hvorki á fosfór- né kalsíummagni snarrótar miðað við hæð.
Hins vegar virðist kalsíum fara heldur vaxandi frá 20. júní
—9. september og fosfór lækkandi, sem hvorttveggja kemur
saman við hér umrædda rannsókn frá sumrinu 1973 og er
slík breyting með tíma raunar vel þekkt fyrirbrigði meðal
grasa yfirleitt. Þetta endurspeglast að sjálfsögðu í hærra
Ca/P hlutfalli síðla sumars og er samræmi í þeim niðurstöð-
um í Borgarfirði og hér nú.
Hvað öðrum efnum viðvíkur að þessu leyti (sjá töflu 2),
standa magníum og mangan nokkurn veginn í stað, en kalí-
og sínkmagn lækkar með tíma. Járnmagnið virðist hækka
með tímanum ef eitthvað er. Natríummagn er mjög lágt,
mun lægra en t.d. almennt gerist í túngrösum. Varðandi
80