Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1987, Page 1
BJARNI E. GUÐLEIFSSON:
FYRSTU NEMENDUR
BÚVÍSINDADEILDAR Á HVANNEYRI
Á árinu 1987 voru 40 ár liðin frá því stofnað var til fram-
haldsnáms i búvísindum við Bændaskólann á Hvanneyri. Af
þessu tilefni var boðað til hátíðasamkomu á Hvanneyri hinn
19. október 1987, og var um leið vígt nýtt rannsóknahús á
staðnum. Guðmundur Jónsson, fyrrum skólastjóri, greindi frá
aðdraganda þess að framhaldsdeildin var stofnuð svo og
byrjunarörðuleikum. Þegar námið var auglýst vissu menn
ekki hver áhugi væri á slikri framhaldsmenntun, en 19. októ-
ber 1947 hófu 8 nemendur nám í framhaldsdeildinni á
Hvanneyri. Það merkilega var að allir þessir nemendur voru
Norðlendingar sem og skólastjórinn, Guðmundur Jónsson.
Fimm af þessum fyrstu nemendum eru enn á lífi, einn komst
ekki á afmælishátíðina vegna veikinda en það var Grímur
Jónsson frá Ærlækjarseli í Öxarfirði ráðunautur N-Þing-
eyinga. Fjórir nemendanna voru viðstaddir fertugsafmæli
deildarinnar en þeir voru:
Aðalbjörn Benediktsson frá Aðalbóli í Miðfirði,
V-Húnavatnssýslu, nú Hvammstanga, ráðunautur
V-Húnvetninga.
Bjarni Arason frá Grýtubakka í S-Þingeyjarsýslu, nú í
Borgarnesi, fyrrum ráðunautur Eyfirðinga en siðar
Borgfirðinga.
3