Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1987, Page 49
ÓLAFUR G. VAGNSSON:
SAUÐFJÁRSÆÐINGASTÖÐ
NORÐURLANDS
Sauðfjársæðingastöð Norðurlands hóf starfsemi sína á árinu
1964 en þá um haustið var innréttaður braggi upp á Rang-
árvöllum fyrir ofan Akureyri fyrir starfsemina. Var húsnæði
þetta í eigu Búfjárræktarstöðvar Sambands nautgriparækt-
arfélaga Eyjafjarðar, SNE, en einn aðalhvatamaður að stofn-
un sauðfjársæðingastöðvarinnar var Sigurjón Steinsson, sem
þá var bústjóri á Lundi.
Formlegur stofnfundur stöðvarinnar var ekki haldinn fyrr
en 19. júlí 1966 og segir i lögum félagsins, sem samþykkt voru
á þessum fundi, að þetta sé sameignarfélag búnaðarsam-
banda í Norðlendingafjórðungi og nafn félagsins er ákveðið
Sauðfjársæðingastöðin Lundi. Aðaltilgangur félagsins er,
samkvæmt þessum lögum, að vinna að ræktun sauðfjár á
félagssvæðinu. Fyrsta stjórn, sem kosin var á stofnfundinum,
skipuðu: Sigurjón Steinsson formaður, Egill Bjarnason ritari
og Ævarr Hjartarson gjaldkeri. Núverandi stjórn skipa:
Ólafur G. Vagnsson formaður, Víkingur Gunnarsson ritari og
Ævarr Hjartarson gjaldkeri.
MARKMIÐ
Eins og fram kemur í innganginum segir í lögum félagsins að
tilgangur þess sé að vinna að ræktun sauðfjár á félagssvæðinu.
Að þessu markmiði hefur að sjálfsögðu verið reynt að vinna.
51