Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1987, Page 73
hann ekki í baugunum á öðrum árstímum. Þessir mosabaugar
hafa verið kallaðir nornabaugar, en það er fráleitt heiti.
(Helgi Hallgrímsson 1987).
HULDURENDUR A DROPLAUGARSTÖÐUM
Þótt ég hafi nú litið eftir ekta hulduröndum nærfellt aldar-
fjórðung, datt ég ekki í lukkupottinn, hvað þetta snerti, fyrr en
síðastliðið sumar, nánar tiltekið þann 10. ágúst 1987, á æsku-
heimili mínu, Droplaugarstöðum í Fljótsdal.
Þar voru rendurnar í gömlu nýræktartúni, sem ræktað var
upp úr grasmólendi um 1950, með venjulegri fræsáningu.
Sáðgresið var aðallega háliðagras, sem enn er í meiri hluta,
enda þótt vallarsveifgras, língresi o.fl. tegundir hafi síðan
bæst við.
Aðalrendurnar voru tvær, með um 150 m millibili á tún-
inu. Voru báðar tæplega hálfur hringur. Sú syðri var um það
bil réttur hálfhringur. Var bogi hennar um 35 m á lengd, en
75