Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1987, Page 87

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1987, Page 87
Fóðurgildi heyjanna var að meðaltali 1.85 kg/FE, sem er það þriðja besta síðan mælingar á meltanleika hófust hjá RN. Best voru heyin í S-Þing., en af þeim þurfti 1.79 kg/FE að meðaltali. Efnainnihald að öðru leyti var að meðaltali svipað og undanfarin ár, nema hvað próteininnihald var litlu meira en á síðast ári. Ef litið er á votheyið sérstaklega þá var út- koman úr því mjög góð og þurfti aðeins 1.75 kg/FE af því að meðaltali miðað við 85% þurrefni. Meðaltalið í votheyinu eru sýni úr rúlluböggum, en allmörg slík sýni komu til mæl- inga á s.l. hausti, voru þau mjög góð enda hráefnið í mörgum tilvikum há eða grænfóður, bygg, hafrar eða rýgresi. Á síðastliðnu hausti var byrjað að tölvuvinna útreikninga á mælitölum við heyefnagreiningarnar. Töluverð vinna var við að útbúa númerakerfi og nafnaskrár vegna þessa, en gerð hugbúnaðar sá Halldór Árnason hjá Búnaðarfélagi Islands um. Niðurstöður heyefnagreininganna voru skrifaðar út í tölvu og einnig reikningar fyrir búnaðarsamböndin til inn- heimtu hjá bændum. Ný tœkni til fóðurefnagreininga. Á síðasta aðalfundi var lítillega rædd ný aðferð við heyefna- greiningar. Er hér um að ræða svokallaða NIR-aðferð (near infrared reflectance). Aðferðin byggir á því að infrarauðu ljósi með mismunandi bylgjulengdum er beint að sýninu. Lífræn efni eins og prótein, fita eða trefjar taka upp (absorberer) infrarautt ljós af ákveðnum bylgjulengdum og því meir sem styrkleiki efnanna eykst. Síðan er mældur sá hluti ljóssins sem endurkastast. Með útreikningum og samanburði á þekktu efnainnihaldi mældu á hefðbundinn hátt í samskonar fóðri t.d. heyi eru fundnar líkingar til að reikna út efnainnihald út frá NIR-mælingunum. Aðferðin er einföld í notkun því aðeins þarf að þurrka og mala sýnin og síðan eru þau mæld í þar til gerðum hylkjum. Við hjá RN höfum reynt að fylgjast svolítið með þróun þessarar tækni. Síðastliðinn vetur voru send 44 heysýni héðan og 23 af Suðurlandi til Bandarikjanna til mælinga með NIR-aðferð. Valur Þorvaldsson, þá ráðunautur á Suðurlandi, 89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.