Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 18
18
LANDSBÓKASAFNIÐ 1968
Þess skal loks getiö, að tilmæli komu um það frá Henning Rasmussen, yfirbókaverði
í Skagen á Jótlandi, að sendar yrðu þangað til sýningar í Skagens Bibliotek myndir
af nokkrum merkum íslenzkum handritum. Vér urðum við þessum tilmælum og send-
um myndir af 10 handritum frá 16. öld til vorra daga, tveimur frá hverri öld, jafn-
framt því, sem vér stuðluðum að því, að send voru 14 málverk úr Listasafni Islands
til þessarar sömu sýningar.
Sýningin hófst 5. ágúst og stóð fram á haust.
ÚTGÁFUSTARFSFMI Tvær Árbækur komu út á árinu, Árbók 1966, er hafði seinkað
nokkuð, og Árbók 1967. Kom hin síðari út á afmælisdegi safns-
ins, 28. ágúst.
Skrá um erlend skákrit í Landsbókasafni íslands kom út í júnímánuði, en í henni
er fremst skrá um hina miklu skákritagjöf próf. Willards Fiskes.
Taflfélag Reykjavíkur efndi í júnímánuði til alþjóðlegs skákmóts í Reykjavík og
tileinkaði það minningu Fiskes. Oss þótti því hlýða að minnast hans einnig, bæði með
útgáfu skrárinnar og fyrrnefndri sýningu á völdum ritum úr gjöf þessa merka velgerð-
armanns Landsbókasafns og íslenzkrar skáklistar.
í formála fyrir skránni er og minnzt með sérstöku þakklæti þess manns, sem öðrum
Islendingum fremur lagði skákritadeild Landsbókasafns lið, en það var hinn mikli
skákunnandi Pétur Zophoníasson, er lézt 1946.
Pétur Sigurðsson, fyrrum háskólaritari, og þeir bókaverðirnir Haraldur Sigurðsson
og Ólafur Pálmason bjuggu skákritaskrána til prentunar.
Áður er getið skrár Ólafs Pálmasonar um rit þau, er Landsbókasafn gaf Háskóla-
bókasafninu í Odense til minningar um Carl Christian Rafn.
Fyrir ritaskránni fara nokkur ávarpsorð auk nafna þeirra einstaklinga og fyrirtækja,
er studdu Landsbókasafn í þessu skyni.
1 sambandi við sýningar Landsbókasafns á árinu (aðrar en skákritasýninguna)
sömdum vér í safninu greinar um það efni, er sýnt var hverju sinni, og birtum þær í
Lesbók Morgunblaðsins. Þessar greinar, alls sjö, hafa nú verið sérprentaðar, og
nefnist ritið: Fylgt úr hlaði sýningum í Landsbókasafni íslands árið 1968.
Horfið var á árinu að því nýmæli að fjölrita skrá um erlendan ritauka Landsbóka-
safns 1967. Guðbjörg Benediktsdóttir, ritari safnsins, tók saman skrána og annaðist
fjölritun hennar.
Vonir stóðu til, að þriðja aukabindi handritaskrár kæmi út á árinu, en því verður
ekki lokið fyrr en á þessu ári (1969).
Höfundar bindisins eru þeir Lárus H. Blöndal (nú borgarskjalavörður) og Grímur
M. Helgason, forstöðumaður handritadeildar Landsbókasafns. í hinu nýja bindi er
fjallað um alls 1303 handritabindi, er safninu hafa bætzt nær öll á þeim tíma, sem lið-
inn er frá því er annað aukabindi handritaskrárinnar kom út 1959.