Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1959, Blaðsíða 1

Frjáls verslun - 01.12.1959, Blaðsíða 1
FRJÁLS VERZLUN Útg.: Frjáls Verzlun Útgáfufélag h/f Ritstjóri: Valdimar Kristinsson Ritnejnd: Birgir Kjaran, formaður Gisli Einarsson Gunnar Magnússon í ÞHSSU HEFTI: PÉTUR BENEDIKTSSON: Ekki eintómir englar ★ GUNNAR ÁSGEIRSSON: Tollvörugeymsla ★ HANNES PÉTURSSON: Ur „Söngvum til jarðarinnar" ★ JÓHANNES BJARNASON: Islenza stóriðia ★ HERBERT V. PROCHNOW Nokkrar hugleiðingar um Sovétríkin ★ Hin vanþróuðu lönd ★ BJÖRN JAKOBSSON: Nýjar samgönguleiðir — ★ MAGNI GUÐMUNDSSON: Lok iranskrar skútualdar ó íslandi ★ OTTÓ A. MICHELSEN: Vélvæðing viðskiptalífsins ★ JÓN DAN: Óiánsbarn ★ o. m. fl. Stjóm útgáfufclags FRJÁLSRAR VERZLUNAR Birgir Kjaran, formaður Gunnar Magnússon Ilelgi Olafsson Sigurliði Kristjánsson Þorvarður J. Júlíusson Skrifstofa: Vonarstræti 4, 1. hæð Simi 1-90-85 — Pósthólf 1193 VÍKINGSPRENT HF PRENTMÓT nr FRJÁLS VERZLUN 19. ÁRGANGUR — 6. HEFTI — 1959 BráÖtini koma jólin Bráðum koma jólin, segja börnin og það eru fleiri. sem ættu að segja það með barnslegri gleði. Enginn skyldi halda að það beri vott um einfeldni, þó að fullorðið fólk gleðjist yfir f/msu á svi'paðan hátt og það gerði í œsku. Geti fólk eða vilji ekki gera svo, hefur það fjarlœgzt uppruna sinn meira en góðu hófi gegnir. Island er land bjartra sumarnótta og langra vetrarkvölda. Og vetrarlcvöldin voru oft æði dimm í einangruðum, lágreist- um hreysum örsnauðrar þjóðar. Þá var liugsað til jólanna, sem Ijósgeisla í allri „dimmunni“ og þjóðin vissi, að nokkru eftir að þeim lyki færi að birta smám saman á ný. Sjaldan var svo þröngt í búi, að ekki mætti gera sér einhvern daga- mun um jólin, og fólkið trúði því, að það œtii betra Hf fyrir liörndum, ef ekki í þessari jarðvist, þá atinars staðar. Nú eru aðstœður aðrar en áður var; að miklu leyti hefur tekizt að útrýma „dimmu“ fátœktar og myrkurs, og vonir sianda til, að þjóðin muni um þessi jól fá mikla jólagjöf, er enn frekar styrlci þennan sigur. Tœknin heldur áfram að auð- velda lífsbaráttuna. En þrátt fyrir hinar breyttu aðstœður, er sízt minni ástœða en áður til að gleðjast yfir jólunum og hugleiða liina dýpri merkingu þeirra. Flestir mestu liugsuðir og vísindamenn mannkynsins hafa skýrt svo frá, að því lengra sem þeir hafa náð, þeim mun Ijósara hefur þeim orðið live margt það var, sem þeir ekki vissu. Ef þessi er niðurstaða mikilmennanna hvað þá um alla hina? Lítillœti, sem byggt er á skynsemi, á að vera aðalsmerki sérhvers einstaklings. Gleðileg jól!

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.